Nguyễn Phú Trọng

Aðalritari Kommúnistaflokks Víetnams frá 2011 til 2024 From Wikipedia, the free encyclopedia

Nguyễn Phú Trọng
Remove ads

Nguyễn Phú Trọng (14. apríl 1944 – 19. júlí 2024) var víetnamskur stjórnmálamaður og aðalritari Kommúnistaflokks Víetnams frá 2011 til dauðadags. Hann var forseti víetnamska þingsins frá 2006 til 2011[1] og var jafnframt forseti Víetnams frá 23. október 2018 til 5. apríl 2021.

Staðreyndir strax Aðalritari Kommúnistaflokks Víetnams, Forveri ...
Remove ads

Æviágrip

Nguyễn Phú Trọng fæddist þann 14. apríl 1944 í bænum Dông Hôi í umdæminu Dông Anh í útjaðri Hanoí. Hann stundaði nám við Þjóðarháskólann í Hanoí og lærði rússnesku undir lok sjötta áratugarins. Hann talar einnig reiprennandi mandarínkínversku.

Trong var kjörinn í miðstjórn og stjórnmálamefnd Kommúnistaflokks Víetnams á 10. flokksþingi hans í apríl árið 2006. Hann var forseti víetnamska þingsins frá 26. júní 2006 til 27. júlí 2011.

Árið 2011, á 11. flokksþingi Kommúnistaflokksins sem haldið var frá 12. til 19. janúar, var Trong kjörinn til að taka við af Nông Đức Mạnh sem aðalritari flokksins.[2][3] Trong heimsótti Barack Obama Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu í Washington árið 2015 og var þetta í fyrsta sinn sem leiðtogar Víetnams og Bandaríkjanna áttu formlegan fund frá því að ríkin tóku upp eðlileg stjórnmálasamskipti tveimur áratugum fyrr.[4]

Þann 23. október 2018 var Trong einnig kjörinn forseti Víetnams af víetnamska þinginu með 476 atkvæðum af 477. Hann tók við embættinu af Trần Đại Quang, sem hafði látist í embætti mánuði fyrr. Trong varð þar með fyrsti maðurinn til að gegna samtímis embætti flokksleiðtoga og forseta landsins frá því að Hồ Chí Minh lést árið 1969.[5] Trong gegndi embætti forseta Víetnams til ársins 2021 en síðan tók Nguyễn Xuân Phúc við af honum.[6]

Trong bauð sig fram til endurkjörs sem aðalritari Kommúnistaflokksins á 13. flokksþingi hans í janúar 2021. Hann naut þá nokkurrar alþýðuhylli vegna skilvirkra viðbragða stjórnarinnar við Covid-19-faraldrinum, sem leiddi ekki til margra dauðsfalla í Víetnam, og vegna hagvaxtar sem var með hinum mesta á heimsvísu.[7] Trong var endurkjörinn til þriðja kjörtímabils síns þann 31. janúar 2021.[8]

Þann 1. febrúar 2021 hélt Nguyễn Phú Trọng blaðamannafund þar sem hann sagði: „Ég er ekki við sem besta heilsu […] Ég er gamall og hefði gjarnan viljað fá að hvíla mig, en flokksþingið kaus mig og ég mun því sinna skyldu minni með því að beita mér af alefli í þágu flokksins míns.“[9]

Trọng lést þann 19. júlí árið 2024, aðeins einum degi eftir að hann hafði tilkynnt að hann hygðist stíga til hliðar sem aðalritari Kommúnistaflokksins.[10]

Remove ads

Viðurkenningar

  • 2018: Heiðursdoktorsgráða við Háskólann í Havana.[11]

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads