Seung-Hui Cho

From Wikipedia, the free encyclopedia

Seung-Hui Cho (f. 18. janúar, 1984, d. 16. apríl, 2007), einnig þekktur sem Cho Seung-hui og Seung Cho, var fjöldamorðingi sem skaut 32 manns til bana þann 16. apríl árið 2007. Í átökunum meiddust einnig 29 aðrir. Eftir blóðbaðið framdi Seung-Hui Cho sjálfsmorð. Fjöldamorðið, oft kallað Virginia Tech fjöldamorðið, átti sér staði í Virginia Tech háskólanum í Virguníufylki í Bandaríkjunum.

Staðreyndir strax Fæddur, Dáinn ...
Seung-Hui Cho
Fæddur
Cho Seung-Hui (Cho: Eftirnafn)

18. janúar 1984
Dáinn16. apríl 2007
DánarorsökSjálfsmorð
StörfHáskólanemi
Þekktur fyrirVirginia Tech fjöldamorðið
Loka

Saga

Seung-Hui Cho fæddist í Suður-Kóreu í Dobong hverfi í Seoul. Þar bjó fjölskylda hans við fátækt svo þau ákvaðu að flytja til Bandaríkjanna í leit að betra lífi.

Í september 1992 fluttist Seung-Hui Cho og fjölskylda hans til Bandaríkjanna, þá var hann átta ára gamall.

Virginia Tech fjöldamorðið

Undirbúningur

Talið er að Seung-Hui Cho hafi notað 9 mm Glock 19 og .22 caliber Walther P22 skammbyssur í fjöldamorðinu. Cho keypti fyrst .22 caliber Walther P22 skammbyssuna þann 22. febrúar árið 2007 á netinu hjá TGSCOM Inc. Þann 13. mars árið 2007 keypti Cho sér svo hina skammbyssuna, 9 mm Glock 19.

Ástæða

Lögreglan fann í herbergi hans blaðaknippi þar sem hann gagnrýnir „ríka krakka“, „siðspillingu“ og „svikahrappa“. Í annarri setningu í knippinu má finna textann „þú gerðir mér þetta“. Allt bendir til að tilgangur morðanna hafi verið hefnd gagnvart fórnarlömbunum sem höfðu áður strítt honum og lagt í einelti.

Miðlunarpakki sendur til NBC

Seung-Hui Cho sendi NBC í New York myndbönd, ljósmyndir og texta sem útskýrði af hverju hann framkvæmdi fjöldamorðið. NBC gaf aðeins út sáralítinn hluta af því sem það fékk frá Cho.

Heimildir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.