Simon Harris
Forsætisráðherra Írlands From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Simon Harris (f. 17. október 1986) er írskur stjórnmálamaður sem er fyrrverandi forsætisráðherra Írlands (Taoiseach) og leiðtogi stjórnmálaflokksins Fine Gael. Harris tók við embætti eftir afsögn Leo Varadkar í mars árið 2024 og er yngsti forsætisráðherra í sögu Írlands.
Remove ads
Æviágrip
Simon Harris er fæddur 1986. Hann er alinn upp í strandbænum Greystones, skammt frá höfuðborginni Dyflinni. Hann gekk til liðs við ungliðahreyfingu Fine Gael þegar hann var sextán ára og komst þar hratt til metorða.[1]
Harris var kjörinn á írska þingið þegar hann var aðeins 24 ára gamall. Hann var gerður heilbrigðisráðherra landsins árið 2016. Í ráðherratíð hans var bann við þungunarrofi afnumið á Írlandi, auk þess sem hann hélt utan um fyrstu viðbrögð landsins við kórónuveirufaraldrinum árið 2020.[2] Harris varð síðar háskólamálaráðherra ríkisstjórn Leo Varadkar.[3]
Varadkar sagði óvænt af sér af sér sem leiðtogi Fine Gael og forsætisráðherra í mars árið 2024. Harris var í kjölfarið kjörinn nýr leiðtogi flokksins, án mótframboðs.[2] Harris þykir svipaður Varadkar í skoðunum, en hann hefur jafnframt orð á sér fyrir að vera virkur á samfélagsmiðlum sem njóta vinsælda meðal ungs fólks á borð við Instagram og TikTok.[3]
Írska þingið samþykkti Harris sem nýjan forsætisráðherra þann 9. apríl 2024.[4]
Harris lét af embætti forsætisráðherra þann 23. janúar 2025 og varð aðstoðarforsætisráðherra í stjórn Micheáls Martin eftir nýtt stjórnarsamkomulag Fine Gael og Fianna Fáil.[5]
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads