Ubuntu
Debian-undirstaða Linux stýrikerfi From Wikipedia, the free encyclopedia
Ubuntu er fullbúið og ókeypis stýrikerfi sem byggir á GNU/Linux. Ubuntu miðar að því að vera ókeypis, frjálst og umfram allt notendavænt. Slagorð Ubuntu er á ensku Linux for human beings (lauslega þýtt sem „Linux fyrir fólk“ eða „Linux fyrir venjulegt fólk“, og vísar til þess hve auðvelt það er í notkun).
![]() Ubuntu 21.10 (Impish Indri) á ensku (en líka hægt að breyta yfir í íslensku) | |
Fyrirtæki / Hönnuðir | Canonical Ltd. |
---|---|
Stýrikerfafjölskylda | Linux |
Source model | Frjáls hugbúnaður[1][2] some proprietary drivers[3] |
Fyrsta útgáfa | 20. október 2004 |
Nýjasta útgáfa | 25.04 (Plucky Puffin)/ 17. apríl 2025; nýjasta lengur-studd útgáfan er 24.04.2 LTS (Noble Numbat) |
Tungumál í boði | Fleiri en 55 tungumál |
Uppfærsluforrit | Software Updater |
Pakkakerfi | GNOME Software, APT, dpkg, Snappy, flatpak |
Studd kerfi | x86-64, IA-32 (í eldri útgáfum), ARM64, ARMhf (ARMv7 + VFPv3-D16); o.fl t.d. fyrir þjóna eingöngu: ppc64le (POWER8), s390x[4] |
Kjarni | Linux |
Aðal skjáborðsumhverfi | GNOME |
Leyfi | Ýmis frjáls hugbúnaðarleyfi (aðallega GPL) + sumir reklar (e. driver) eru séreignarhugbúnaður |
Vefsíða | www.ubuntu.com |
Ubuntu er sniðið að þörfum venjulegs notanda en Ubuntu fylgir vafrinn Firefox (og val um aðra; yfirleitt er val mögulegt fyrir allan hugbúnað sem kemur uppsettur), tölvupóstforritið Thunderbird og skrifstofuhugbúnaðurinn LibreOffice (afbrigði af eldra OpenOffice.org sem keppir líka við Microsoft Office, en þó enn frekar nýji hugbúnaðurinn með sífellt betri samhæfni). Ubuntu notfærir sér margt frá Debian-verkefninu eins og APT-pakkakerfið, en í seinni tíð hefur snap kerfið líka verið notað til að setja inn forritspakka.
Ubuntu er vinsælasta tegund Linux stýrikerfa samkvæmt vefsíðunni DistroWatch.[5]
Nú orðið krefjast allar Ubuntu útgáfur 64-bita (Intel eða AMD) örgjörva, nema eldri útgáfur líkt og 18.04 LTS (sem er enn studd ef borgað er fyrir ESM, e. Expanded Security Maintenance, þá til apríl 2028), og 32-bita Arm er líka stutt áfram, fyrir t.d. Raspberry Pi.
Nú orðið eru svokallaðar lengur-studdar, „long-term support“ (LTS), útgáfur, studdar í 5 ár frá útgáfudegi þeirra, eða ef keypt er 5 ára stuðningsplan í framhaldinu, í 10 ár allt í allt, en aðrar útgáfur eru aðeins studdar í níu mánuði. Nýjar LTS útgáfur koma út á tveggja ára fresti, í apríl. Ef allar útgáfur eru taldar, ekki aðeins LTS, koma hins vegar út nýjar útgáfur með á hálfs árs fresti, í apríl og október. Síðan í apríl 2025 er nýjasta útgáfan 25.04 („Plucky Puffin“), en margir hafa, alla vega í gegnum tíðina, valið að halda sig við nýjustu LTS útgáfu (því hinar eru bara studdar í 9 mánuði). Nýjasta lengur-studda útgáfan, frá 2024, er 24.04 LTS („Noble Numbat“), studd ókeypis til 2029 og svo sem val til 2034 fyrir þá sem kaupa þann möguleika. Vel er hægt að nota útgáfur sem ekki eru LTS, þó þær séu studdar í styttri tíma en þær taka nýjungar fram yfir fínpússað og óbreytanlegt viðmót. Margar breytingar koma þó ört inn í LTS útgáfur allan líftímann, en sérstaklega framan af. Margir ráðleggja frekar LTS svo sjaldnar þurfi að uppfæra milli útgáfa, þó útgáfur á milli séu ókeypis eins og allar útgáfurnar eru.
Ubuntu stýrikerfið er notað á einkatölvum, en einna mest á þjónum (svo sem fyrir vefi; mjög algent í gagnaverum), og líka á ofurtölvum, s.s. Selene sem varð fimmta hraðvirkasta tölvan í heiminum í nóvember 2020.
Ubuntu 20.04 LTS (sem hætt verður almennum stuðningi við í lok júní 2025, þó hægt að borga fyrir ESM í 5 ár þar á eftir) fékk víðast hvar góða dóma, t.d. Dave McKay, skrifaði fyrir HowToGeek, „frábær útgáfa“ niðurlagið, „Ubuntu 20.04 Is a Great Release. This is a polished, good-looking“.
Ubuntu 22.04 LTS fékk hins vegar mismunandi dóma, t.d. bent á útlitsbreytingar „true dark mode“ en Jesse Smith hjá DistroWatch var gagnrýninn:
- „Ég held að Ubuntu 22.04 sé skýrt merki um að Canonical hafi miklu meiri áhuga á að gefa út útgáfur á ákveðinni tímaáætlun en að framleiða eitthvað sem er þess virði. [..] Þessi útgáfa var ekki tilbúin [ég myndi forðast þessa útgáfu]“.[6]
Ubuntu 24.04 LTS fékk góða dóma (sem uppfærsla).
Ubuntu er líka stutt í stýrikerfum Microsoft, Windows 10 og 11, ef WSL er virkjað (t.d. WSL2; eða WSLg fyrir öll Ubuntu forrit, þ.e. líka með grafík),[7] og t.d í Azure.[8]
Saga

Fyrsta útgáfa Ubuntu kom út 20. október 2004 sem rótarskot frá Debian GNU/Linux og var markmið verkefnisins að gefa út uppfærslu á hálfs árs fresti. Hugbúnaðarpakkar í Ubuntu byggja á Debian Unstable auk þess sem Ubuntu notar APT til að setja upp forrit líkt og Debian.
Frá og með Raring Ringtail (13.04) er uppfærslustuðningur útgáfa nýju mánuðir (svo sú útgáfa er nú óstudd). Þ.e. hið minnsta, því LTS útgáfur eru nú studdar í fimm ár ókeypis.
Útgáfur
Nokkrar útgáfur eru studdar á hverjum tíma, t.d. ofangreint nefndar; þ.e. tvær hefðbundnar á hverjum tíma sem skarast, og margar lengur-studdar, LTS, útgáfur, sem eru studdar í mörg ár, t.d. þar til í maí 2029.
Nýjasta Ubuntu útgáfan er svokölluð minimal útgáfa. Það er samt hægt að setja auðveldlega og ókeypis inn forrit eins og LibreOffice og Thunderbird, sem í eldri útgáfum voru sjálfgefið sett inn. Forritasafnið, þ.e. sem er aðgengilegt (ókeypis), hefur í megindráttum ekki breyst, það er alltaf að bætast í safnið ný forrit og uppfærslur á eldri, og allt sem áður var fáanlegt (eða sjálfkrafa sett inn), enn fáanlegt.
Hliðarverkefni með önnur útlit
Ubuntu notaði upphaflega GNOME-sjáborðið, svo Unity (notað í 16.04 LTS), svo aftur GNOME (sem þá var komið í uppfærða útgáfu þrjú). Unity er enn valmöguleiki í öllum nýjustu útgáfum. Forrit virka fyrir annað hvort virka í hinu (og KDE, XFCE o.s.frv.). Hins vegar er útlitið og virknin sem snýr að notanda önnur. Hægt er að fá annað útlit og virkni með öðru skjáborði, og að einhverju leiti önnur forrit sem fylgja með sjálfgefið með því að velja önnur hliðarverkefni en Ubuntu. Þetta er hægt með því að velja hliðarverkefnið í upphafi, en líka er hægt að bæta viðkomandi skjáborði við eftirá og hafa val á milli eða jafnvel hreinsa það upphaflega út.
Hliðarverkefni Ubuntu eru t.d.: Kubuntu (notar KDE) og Xubuntu (notar XFCE) og fleiri.
Tilvísanir
Tenglar
- (Íslenska) Upplýsingar um Ubuntu á vef Netöryggis
- (Enska) Opinber heimasíða Ubuntu
- (Enska) Opinber spjallvefur Ubuntu
- (Enska) Ubuntu 22.04.10 á Launchpad þar sem hægt er að þýða Ubuntu
- Íslenska útgáfan af Ubuntu 22.04 á Launchpad þar sem hægt er að þýða Ubuntu yfir á íslensku
- Ubuntu.hugi.is Geymt 22 apríl 2016 í Wayback Machine, íslensk síða þar sem hægt er að sækja útgáfur af Ubuntu
Mandriva | Debian | Mepis | Linspire | Lycoris | Ubuntu | Red Hat | Fedora Core | SUSE | Slackware | Gentoo | Knoppix | CentOS | Yellow dog Linux | Trustix
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.