Yoon Suk-yeol
13. forseti Suður-Kóreu From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Yoon Suk-yeol (hangúl: 윤석열; hanja: 尹錫悅; f. 18. desember 1960) er suður-kóreskur stjórnmálamaður og fyrrverandi saksóknari sem var forseti Suður-Kóreu frá 2022 til 2025. Hann vann nauman sigur í forsetakosningum landsins í mars árið 2022. Áður var Yoon ríkissaksóknari Suður-Kóreu frá 2019 til 2021. Sem saksóknari átti Yoon þátt í því að fá fyrrum forsetann Park Geun-hye dæmda seka fyrir valdníðslu.[1]
Yoon var leystur úr forsetaembætti af stjórnlagadómstól Suður-Kóreu þann 4. apríl 2025 eftir að hann gerði misheppnaða tilraun til að lýsa yfir herlögum í landinu árið áður.[2]
Remove ads
Bakgrunnur
Yoon er fæddur og uppalinn í Seúl. Árið 1979 útskrifaðist hann úr Chungam-menntaskólanum í borginni. Hann útskrifaðist með gráðu í lögfræði frá Þjóðarháskólanum í Seúl árið 1979. Hann var síðan í framhaldsnámi við skólann og útskrifaðist með mastersgráðu frá lagadeild hans árið 1988. Yoon hlaut lögmannsréttindi árið 1991.
Starfsferill
Frá 1994 til 2001 vann Yoon við skrifstofu héraðssaksóknaranna í Daegu, Seúl og Busan.
Árið 2008 varð Yoon yfirsaksóknari undirdeildar héraðssaksóknarans í Daejon í Nonsan. Frá 2009 til 2011 vann hann hjá skrifstofu aðalsaksóknara suður-kóreska dómsmálaráðuneytisins.[3]
Árið 2013 varð Yoon leiðtogi á skrifstofu héraðssaksóknara Suwon í Yeoju og hafði þar umsjón yfir sérstakri rannsókn á ólögmætum aðgerðum suður-kóresku leyniþjónustunnar til að hafa áhrif á almenningsálit.[3] Frá 2014 til 2016 vann Yoon hjá embættum aðalsaksóknaranna í Daegu og Daejeon.[3]
Frá árinu 2016 stýrði Yoon sérstakri rannsókn á spillingarhneyksli sem tengdist forsetanum Park Geun-hye. Málið leiddi til þess að Park var ákærð og svipt embætti. Árið 2017 fékk Yoon umsjá með skrifstofu saksóknarans í Seúl.[3]
Árið 2019 varð Yoon ríkissaksóknari Suður-Kóreu. Hann sagði af sér úr því embætti í mars árið 2021.[3]
Remove ads
Forseti Suður-Kóreu (2022–2025)
Yoon var frambjóðandi íhaldssama Þjóðaraflsflokksins í forsetakosningum Suður-Kóreu árið 2022.[4][5] Hann vann nauman sigur á móti Lee Jae-myung, frambjóðanda Lýðræðisflokksins, þann 9. mars 2022.[6]
Í kosningabaráttunni hafði Yoon höfðað til ungra karlmanna sem telja að ekkert kerfisbundið kynjamisrétti viðgangist í Suður-Kóreu. Meðal annars hafði Yoon lofað að leggja niður ráðuneyti kynjajafnréttis- og fjölskyldumála ef hann næði kjöri. Hann kvaðst jafnframt vilja endurstilla samskiptin við Norður-Kóreu og Kína og auka samstarf við Bandaríkin.[7] Í aðdraganda kosninganna hafði Yoon sagst vilja rannsaka embættisfærslur fráfarandi forsetans Moon Jae-in en í sigurræðu sinni á kosninganótt dró hann nokkuð úr þeim fyrirætlunum og hvatti til einingar meðal landsmanna.[8]
Yfirlýsing herlaga 2024 og eftirmálar
Þann 3. desember 2024 lýsti Yoon óvænt yfir herlögum í Suður-Kóreu. Í sjónvarpsávarpi vísaði hann til þess að ákvörðunin væri nauðsynleg til að verja landið fyrir kommúnistaógn frá Norður-Kóreu og til að uppræta öfl sem beint væri gegn ríkinu. Yoon tilgreindi ekki til hvaða ráðstafana yrði gripið með herlögunum en talið er að þau hafi í reynd átt að beinast gegn stjórnarandstöðunni innanlands, sem er í meirihluta á suðurkóreska þinginu og hafði hafnað fjárlagafrumvarpi forsetans.[9]
Bæði Þjóðaraflsflokkurinn, flokkur Yoons, og Lýðræðisflokkurinn, sem fer með meirihluta á þinginu, mótmæltu yfirlýsingu Yoons og sögðu herlögin ekki standast stjórnarskrá.[10] Stuttu eftir yfirlýsingu Yoons komu þingmenn saman í þinghúsinu í Seúl og samþykktu að ógilda herlögin með öllum greiddum atkvæðum.[11] Almenningur fjölmennti jafnframt fyrir utan þinghúsið til að mótmæla herlögunum en suðurkóreski herinn lýsti því yfir að herlögin yrðu í gildi þar til forsetinn segði annað.[12] Að endingu lét Yoon undan þrýstingi mótmælenda og þingmanna og dró herlögin til baka.[13]
Í kjölfar útspils Yoons bárust kröfur bæði frá stjórnarflokknum og stjórnandstöðunni um að hann segði af sér.[14] Vantrauststillaga gegn Yoon var borin upp á þingi þann 4. desember og hann sakaður um að hafa brotið gegn stjórnarskrá og lögum landsins. Þingið vændi hann um að hafa lýst yfir herlögum til að komast undan rannsókn á meintu ólöglegu athæfi hans og fjölskyldu hans.[15] Þann 14. desember samþykkti þingið að kæra Yoon til embættismissis. Yoon veik því til hliðar úr embætti forseta á meðan stjórnlagadómstóll Suður-Kóreu tekur ákvörðun um hvort hann verði varanlega sviptur embætti. Forsætisráðherrann Han Duck-soo tók við skyldum forsetaembættisins til bráðabirgða[16] en hann var einnig ákærður til embættismissis þann 27. desember og Choi Sang-mok fjármálaráðherra varð því starfandi forseti.[17] Han Duck-soo var sýknaður af stjórnlagadómstólnum 24. mars 2025 og tók aftur við sem starfandi forseti.[18]
Yoon var handtekinn í lögregluaðgerð þann 15. janúar 2025. Hann hafði girt sig af á heimili sínu og var þetta í annað skiptið sem lögreglan reyndi að handtaka hann.[19]
Stjórnlagadómstóllinn kvað upp dóm sinn þann 4. apríl 2025. Dómstóllinn komst einróma að þeirri niðurstöðu að Yoon hefði brotið gegn stjórnarskrá landsins með yfirlýsingu herlaganna. Var Yoon því varanlega sviptur embætti og kallað var til nýrra forsetakosninga.[2]
Remove ads
Einkahagir
Yoon kvæntist Kim Keon-hee árið 2012.[3]
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads