From Wikipedia, the free encyclopedia
Matarprjónar eru pör af litlum aflöngum prjónum sem eru hefðbundin mataráhöld í Kína, Japan, Kóreu og Víetnam („matarprjónalöndunum fjórum“). Þeir eru alla jafnan úr bambus þar sem það er bragðlaust, ódýrt og algengt efni sem auðvelt er að kljúfa auk þess sem það er hitaþolið, en einnig er algengt að þeir séu úr viði, málmi, beini, hornum dýra, agati, jaði, postulíni, kóral og á vorum dögum úr plasti.
Fínir japanskir „hashi“ matarprjónar að ofan auk einnota „waribashi“ prjóna fyrir neðan. Á waribashi prjónunm stendur „御割箸“ sem þýðir „owaribashi“ sem er afar kurteis útgáfa af orðinu „割箸“ sem aldrei er notuð í daglegu tali. | |
Kínverska | |
Pinyin | kuàizi eða kuài'er |
Wade-Giles | k'uai-tzu eða k'uai-erh |
Kínverska | 筷子 eða 筷兒 |
Japanska | |
Hepburn Romaji | 1. hashi (matarprjónar) 2. waribashi (waribashi matarprjónar) 3. owaribashi (owaribashi matarprjónar) |
Kanji | 1. 箸 2. 割り箸 eða 割箸 3. 御割箸 |
Hiragana | 1. はし 2. わりばし 3. おわりばし |
Kóreska | |
Latneskun | jeotgarak |
McCune-Reischauer | chŏtkarak |
Hangul | 젓가락 |
Víetnamska | |
quốc ngữ | đũa |
Aðalgerðir matarprjóna eru þrjár: Kínverskir prjónar, sem eru langir viðarprjónar með ávala enda; japanskir, sem eru stuttir viðarprjónar, einnig með ávala enda og kóreskir, sem eru stuttir málmprjónar með þverskorna enda, þó viðarútgáfur séu einnig notaðar.
Þar að auki skiptast allir prjónar í tvo flokka: einnota „waribashi“ prjóna og svo hefðbunda prjóna — eða þá sem ætlaðir eru til langvarandi notkunar.
Nafn matarprjóna á mandarín, „kuàizi“ (筷子) eða „kuài'er“ (筷兒) þýðir „bambusáhöld til að borða hratt“. Þeir heita hins vegar „zhù“ (箸) í klassískri kínversku og er tákn þeirra þar mögulega hljóðtákn og gefur það til kynna að þeir séu hlutur gerður úr bambus.
Kínverska orðið „zhù“ barst svo til Japan og er þar borið fram „hashi“ í kunyomi framburði, en er nær rótinni með „zu“ í onyomi framburði. Kórea hins vegar notar sitt eigið orð jeotgarak (젓가락) og er það orð hvorki ættað úr japönsku né kínversku. Í víetnömsku er svo orðið „đũa“ notað.
Hönnun prjónanna er afar einföld, einfaldlega stutt, þunn prik með þverskurðarflatarmál minna en einn fersentimetri, lengd mismunandi. Annar endinn er svo aðeins þynnri en hinn og er það sá endi sem snýr að matnum. Notkun þeirra er list, sem getur tekið allnokkurn tíma að ná tökum á. Matreiðsla í Austur-Asíu, sem er það svæði sem þeir eru aðallega notaðir á, er sniðin að notkun þeirra. Kjöt, grænmeti, núðlur og annað í matnum er skorið niður, svo auðvelt sé að taka upp bitana með prjónunum og hrísgrjón eru elduð þannig að þau festist saman, ólíkt þeim hrísgrjónum, sem algeng eru annars staðar í heiminum, einmitt svo auðvelt sé að taka upp bita af þeim með prjónunum.
Hefðbundnir japanskir matarprjónar eru venjulega um 22 sentimetrar að lengd en einnota waribashi prjónar eru um tveimur sentimetrum styttri, kínverskir prjónar eru svo ögn lengri eða um 25cm.
Prjónarnir eru taldir hafa verið þróaðir fyrir um það bil 3000-5000 árum í Kína (nákvæmara ártal en það þekkist ekki). Þeir höfðu svo þegar komið var fram á 4. öld dreifst frá Kína á það svæði sem í dag er Japan, Kórea og Víetnam. Á 10. öld var farið að búa til matarprjóna í tveimur hlutum í stað eins hluta með samanliggjandi svæði á toppnum, sem þurfti svo að brjóta við notkun, prjónar í gamla stílnum eru þó enn gerðir og þá sérstaklega notaðir sem einnota. Líklega má rekja uppruna þeirra til þess að brjóta greinar af trjám til að borða með og enn fremur þess að mikil hungursneyð og fólksfækkun varð um 4. öld f.Kr., sem neyddi fólk til að spara orku. Var matur þá skorinn í litla búta til að hægt væri að elda hann hraðar og með minni eldivið.
Talið er að kínverski heimspekingurinn Konfúsíus sem uppi var á 6–5. öld f.Kr. hafi haft umtalsverð áhrif á aukna notkun mataprjóna. Hann ráðlagði fólki að nota ekki hnífa við matarborðið þar sem þeir myndu minna það á sláturhúsið og væru þar með og ofbeldisfullir til að hægt væri að nota þá þar.
Verkfæri sem minna á matarprjóna hafa auk þess verið grafin upp við fornleifagröft í Megiddo í Ísrael og voru þeir í eigu innrásarhers Skiþíumanna, sem réðst inn í Kanaan á tíma Móses og Jósúa. Uppgötvun þessi sýnir, hve mikil vöruskipti milli miðausturlanda og Austurlanda fjær voru á þessum tíma. Matarprjónar voru einnig algengir heimilismunir Uyghúrmanna á Mongólsku sléttunum á 5.–7. öld.
Í Japan voru matarprjónar upprunalega álitinn verðmætur varningur, sem var eingöngu notaður í trúarlegum athöfnum. Japanir voru svo fyrstir til að lakka prjónana á 16. öld. Við það urðu þeir örlítið sleipari en mun endingarbetri. Japanir fundu einnig upp einnota matarprjóna sem þeir kalla „waribashi“ árið 1878.
Haldið er á prjónunum milli þumalfingurs og hinna fingra hægri handar. Þeir eru svo notaðir sem tengur til að taka upp mat sem borinn er á borð, niðurskorinn til að gera það auðveldara. Þeir eru þá einnig notaðir sem áhöld til að sópa hrísgrjónum eða smáum matarögnum inn í munninn úr skálum. Athuga skal hins vegar að flóknar siðareglur ríkja um notkun þeirra og að þær eru mismunandi eftir löndum.
Langalgengast er að haldið sé á prjónunum í hægri hönd, jafnvel af örvhentum. Ástæðan fyrir þessu er sú, að í Austur-Asíu sem og í múslimalöndum er það vinstri höndin „óhreina höndin“ sem notuð er á salerninu, þar sem sú hægri er notuð til að matast með. Nú á dögum hefur hins vegar verið slakað á þessum óskrifuðu reglum samfélagsins og er þar með hægt að nota matarprjónana með báðum höndum án þess að vera álitinn dóni.
Almennt skal nota matarprjóna til þess að borða og ekki til neins annars, það að benda eða tákna eitthvað með þeim, tromma með þeim eða kalla á athygli er dónaskapur.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.