461

ár From Wikipedia, the free encyclopedia

Remove ads

Árið 461 (CDLXI í rómverskum tölum)

Staðreyndir strax Árþúsund:, Aldir: ...

Atburðir

  • 2. ágúst - Majoríanus, keisari Vestrómverska ríkisins, er handtekinn af germanska hershöfðingjanum Ricimer. Þann 7. ágúst, eftir að hafa verið pyntaður, er Majoríanus tekinn af lífi. Ricimer er á þessum tíma æðsti yfirmaður vestrómverska hersins (magister militum) og verður við dauða Majoríanusar valdamesti maður ríkisins.
  • 10. nóvember - Leó 1. páfi deyr í Róm eftir 21 árs setu á páfastóli. Hilarius tekur við af honum.
  • 19. nóvember - Libíus Severus, rómverskur öldungaráðsmaður, er skipaður keisari Vestrómverska ríkisins af Ricimer. Ricimer er hinn raunverulegi stjórnandi ríkisins alla valdatíð Severusar.
  • Aegidíus, rómverskur herforingi, neitar að viðurkenna vald Libíusar Severusar og stjórnar svæði í norður-Gallíu í eigin nafni.
  • Vestgotar hertaka Septimaníu, í suður Gallíu, eftir dauða Majoríanusar. Í kjölfarið gera Vestgotarnir svo innrás í Hispaníu.
Remove ads

Fædd

Dáin

  • Leó 1. páfi.
  • Majoríanus, vestrómverskur keisari.
  • Heilagur Patrekur, verndardýrlingur Írlands (áætluð dagsetning).
Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads