Laukar
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Laukar (fræðiheiti: Allium) eru fjölærar laukplöntur með einkennandi sterkt bragð og lykt. Margar tegundir eru notaðar sem matjurtir eða kryddjurtir. Ættkvíslin telur um 1250 tegundir sem gerir hana að einni fjölbreyttustu ættkvísl jurta. Langflestar lauktegundir eru upprunnar á norðurhveli jarðar.
- Um tegundina Allium cepa, sjá lauk.
Flestir laukar fjölga sér með því að mynda smálauka við rót aðallauksins, auk þess að mynda fræ. Sumar tegundir mynda æxliknappa í blóminu sem falla til jarðar og verða að nýjum lauk. Blómsveipurinn vex á einum berum stilk sem vex uppúr lauknum.

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist laukum.
Remove ads
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads