Burn Notice

bandarísk sjónvarpsþáttaröð (2007-2013) From Wikipedia, the free encyclopedia

Burn Notice
Remove ads

Burn Notice er bandarískur sjónvarpsþáttur sem fjallar um njósnarann Michael Westen sem settur er á Brunalistann af yfirvöldum. Reynir hann með öllum ráðum að komast að því hver setti hann á listann. Höfundurinn að þættinum er Matt Nix og aðalleikaranir eru Jeffrey Donovan, Gabrielle Anwar, Bruce Campbell, Sharon Gless og Coby Bell.

Staðreyndir strax Tegund, Þróun ...

Framleiddar voru sjö þáttaraðir og var fyrsti þátturinn frumsýndur 28. júní 2007.

Remove ads

Framleiðsla

Burn Notice var framleiddur af Fox Television Studios, Fuse Entertainment og Flying Glass of Milk Production (3-7).

Þann 7. nóvember 2012, tilkynnti USA sjónvarpsstöðinBurn Notice hafi verið endurnýjaður fyrir sjöundu þáttaröðinni. Síðan þann 10. maí 2013, var tilkynnt að sú þáttaröð yrði sú síðasta.[1]

Tökustaðir

Þátturinn var tekinn upp í Miami, Flórída og hefur fasta leikmynd í gamla Coconut Grove ráðstefnuhúsinu í Coconut Grove hverfinu þar sem þátturinn er að mestu tekinn upp.

Söguþráður

Burn Notice fylgir eftir njósaranum Michael Westen sem settur er á Brunalistann. Brunalisinn er listi yfir njósnara sem settir eru út í kuldann og njóta ekki lengur verndar yfirvalda. Reynir Michael að gera allt sem hann getur til að finna þá sem brenndu hann en á meðan vinnur hann sem einkaspæjari.

Remove ads

Persónur

Nánari upplýsingar Persóna, Leikin af ...

Aðalpersónur

  • Fyrrverandi njósnari/Einkaspæjari: Michael Westen er njósnari sem var brenndur og skilinn eftir í heimabæ sínum Miami þaðan sem hann getur ekki yfirgefið. Hefur þrjátíu ára reynslu af karate og hæfur á öll skotvopn. Hefur þann hæfileika að geta leikið hvaða persónu sem er og getur talað hin ýmsu tungumál og mállýskur. Michael átti vonda æsku, faðir hans var drykkfelldur og árásargjarn, á yngri bróðir. Á í eldfimu ástarsambandi við Fionu. Í byrjun seríu fimm fær hann starf sitt aftur en er enn að berjast við þá sem brenndu hann.
  • Fyrrverandi meðlimur Írsku Lýðræðishreyfingarinnar (IRA)/Einkaspæjari: Fiona Glenanne kynntist Micheal á Írlandi þar sem hann vann sem njósnari. Er sérfræðingur í skoptvopnum og sprengjum. Á í eldfimu ástarsambandi við Michael.
  • Fyrrverandi meðlimur í sérsveit bandaríska sjóhersins (Navy Seal)/Einkaspæjari: Sam Axe er gamall vinur Michaels úr njósna-og sérsveitaheiminum. Lifir nú á ríkum og eldri konum í Miami.
  • Fyrrverandi gangnjósnari/Einkaspæjari: Jesse Porter er gagnnjósnari sem var óvart brenndur af Michael. Bað um aðstoð Michaels til að finna þá sem brenndu hann og verður á endanum hluti af liði Michael. Kemst að því að Michael var sá sem brann hann og ætlar sér að drepa Michael en hættir við það. Í byrjun seríu fimm fær hann starf sitt aftur en hættir fljótlega þar sem honum líkar ekki starfið lengur. Í staðinn fer hann að vinna hjá öryggisfyrirtæki.
  • Móðir Michaels: Madeline Westen er keðjureykjandi móðir Michaels og Nates. Eftir andlát Nate tekur hún að sér að ala upp Charlie son hans. Madeline ákveður að fórna sér fyrir Charlie og Jesse í þættinum Reckoning í seríu 7 með því að sprengja hús sitt upp.
  • Bróðir Michaels: Nate Westen er bróðir Michaels og spilafíkill. Nate er drepinn í þættinum Shock Wave af Tyler Gray.
Remove ads

Þáttaraðir

Fyrsta þáttaröð

Önnur þáttaröð

Þriðja þáttaröð

Fjórða þáttaröð

Fimmta þáttaröð

Sjötta þáttaröð

Sjöunda þáttaröð

Útgáfa

Bækur

Nánari upplýsingar Titill, Höfundur ...

Sjónvarpsmynd

Sjónvarpsmyndin Burn Notice: The Fall of Sam Axe var frumsýnd 17. apríl 2011. Myndin fylgir eftir seinustu dögum Sam Axe áður en hann hættir sem Navy Seal og sest að í Miami.[2][3] Jeffrey Donovan leikstýrði myndinni og kemur fram í smáhlutverki í byrjun myndarinnar sem Michael Westen.

DVD

Allar sjö þáttaraðirnar af Burn Notice hafa verið gefnar út.

Nánari upplýsingar DVD nafn, Þættir ...
Remove ads

Verðlaun og tilnefningar

ASCAP Film and Television Music-verðlaunin

  • 2012: Verðlaun fyrir bestu tónlistina í sjónvarpsseríu - John Dickson.
  • 2011: Verðlaun fyrir bestu tónlistina í sjónvarpsseríu - John Dickson.
  • 2010: Verðlaun fyrir bestu tónlistina í sjónvarpsseríu – John Dickson.
  • 2009: Verðlaun fyrir bestu tónlistina í sjónvarpsseríu – John Dickson.
  • 2008: Verðlaun fyrir bestu tónlistina í sjónvarpsseríu – John Dickson.

Edgar Allan Poe-verðlaunin

  • 2008: Verðlaun fyrir besta sjónvarpshandritið fyrir Pilot – Matt Nix.

Emmy-verðlaunin

  • 2011: Tilnefndur fyir besta hljóðmix í grín-drama seríu fyrir Last Stand – Sherry Klein, Scott Clements og David Raines.
  • 2010: Tilnefnd sem besta leikkona í aukahlutverki – Sharon Gless.
  • 2009: Tilnefndur fyrir bestu áhættuleikstjórn fyrir Lesser Evil – Artie Malesci.
  • 2008: Tilnefndur fyrir besta hljóðmix í grín-drama seríu fyrir Loose Ends – Part 1 – Scott Clements, Sherry Klein og David Raines.

Gracie Allen-verðlaunin

  • 2010: Verðlaun sem besta leikkona í aukahlutverki – Sharon Gless.

People's Choice-verðlaunin

  • 2013: Tilnefndur sem uppáhalds dramaþáttur í kapalsjónvarpi.
  • 2011: Tilnefndur sem uppáhalds sjónvarps þráhyggja.

Satellite-verðlaunin

  • 2010: Tilnefndur sem besti leikari í aukahlutverki í seríu/míniseríu eða sjónvarpsmynd – Bruce Campbell.
  • 2010: Tilnefnd sem besta leikkona í aukahlutverki í seríu/míniseríu eða sjónvarpsmynd – Sharon Gless

Screen Actors Guild-verðlaunin

  • 2011: Tilnefndur fyrir bestan áhættuleikhóp í sjónvarpsseríu – Kiana Politis, Jessika Brodosi, Dave Pope, Christopher Parker, Cort Hessler, Chick Bernhardt, Kevin Ball, Amy Jordan, Bill Scharpf, Erika Grimes, Don Abbatiello, Juan Bofill, Artie Malesci, Dean Grimes og Henry Gilbert.

Teen Choice-verðlaunin

  • 2011: Tilnefndur sem besti leikari í spennuþætti – Jeffrey Donovan.
  • 2011: Tilnefndur sem besti spennuþátturinn.
  • 2010: Tilnefndur sem besti leikari í spennuþætti – Jeffrey Donovan.
  • 2010: Tilnefnd sem besta leikkona í spennuþætti – Gabrielle Anwar.
  • 2010: Tilnefndur sem besti spennuþátturinn.

Writers Guild of America-verðlaunin

  • 2009: Tilnefndur fyrir besta dramahandritið fyrir Double Booked – Craig S. O'Neill og Jason Tracey.
Remove ads

Tilvísanir

Heimildir

Tenglar

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads