Geimkönnun
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Geimkönnun kallast það að nota stjörnufræði og geimtækni til að kanna geiminn. Könnun á geiminum er framin af annaðhvort mönnum eða vélmennum. Þar sem stjörnufræði kallast það að athuga geiminn frá Jörðinni og hefur verið stunduð frá ómunatíð var geimkönnun aftur á móti gerð að raunveruleika á 20. öld með þróun stórra og hagkvæmra geimflauga. Almennar ástæður sem lagðar eru fram fyrir könnun geimsins eru m.a. framþróun vísindarannsókna, samvinna milli þjóða og sköpun aðstöðumuna miðað við önnur lönd.
![]() |
![]() |
![]() |
(frá toppi til táa)
|
Mikil samkeppni hefur verið milli þjóða á leiðinni til könnunar geimsins, t.d. á milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna í Kalda stríðinu. Fyrsta tímabilinu í könnun geimsins fylgdi Geimferðakapphlaupið, þar sem fyrirnefndu lönd kepptu við hvorn annan. Spútnik 1, það fyrsta geimfar sett á braut um jörðu, var skotið í geiminn af Sovétríkjunum 4. október 1957. Það fyrsta geimfarið sem lendi á Tunglið var bandaríska geimskipið Apollo 11, sem lendi þar 20. júlí 1969. Sovétríkin náðu mörgum tímamótum fyrst, t.d. sú fyrsta lifandi vera á braut um jörðu, það fyrsta geimflug með menn um borð (Júrí Gagarín um borð í Vostok 1) árið 1961, sú fyrsta geimganga (Aleksei Leonov) árið 1965, sú fyrsta lending á annan himnihnött (Lúna 9) árið 1966 og sú fyrsta geimstöð (Saljút 1) árið 1971.
Eftir fyrstu tuttugu ár í könnun geimsins var byrjað á þroún endurnýtanlegra geimfara eins og Space Shuttle. Nýtt samvinnu- í stað fyrir samkeppnistímabil fygldi þessum árum, og verkefni eins og Alþjóðlega geimstöðin hófust. Frá tíunda áratugnum varð til mikill áhugi á geimferðamennsku og þróun einkageimgeira. Árið 2003 sendi Alþýðulýðveldið Kína mann upp í geiminn og Evrópusambandið, Japan og Indland hafa öll staðfest að þau ætli að senda fleiri menn upp í geiminn. Bandaríkin sögðust ætla að senda geimfar aftur til Tunglsins fram að 2018 og síðar annað til Mars.
Remove ads
Tengt efni
Tenglar
- Stjörnufræðivefurinn: Geimferðir Geymt 27 febrúar 2011 í Wayback Machine
- Stjörnufræðivefurinn: Apollo geimáætlunin Geymt 28 janúar 2011 í Wayback Machine
- Stjörnufræðivefurinn: Apollo 11 Geymt 29 janúar 2011 í Wayback Machine
Heimild
- Fyrirmynd greinarinnar var „Space exploration“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 8. desember 2010.
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads