HBO Max

Bandarísk streymisveita From Wikipedia, the free encyclopedia

HBO Max
Remove ads

HBO Max áður kölluð Max er bandarísk streymisveita. Hún opnaði þann 27. maí 2020. Hún er í eigu Warner Bros og HBO sjónvarpsstöðvarinnar. Í október 2018 tilkynnti HBO og Warner Bros.streymisveita væri væntanleg og kom hún kom í stað HBO Go þjónustunnar. Hún er sjöunda stærsta streymisveita heims. Árið 2022 var greint frá því að efni streymisveitunnar Discovery+ myndi bætast við HBO Max og því breytti veitan um nafn. Veitan hét upphaflega HBO Max en nafninu var breytt í Max sumarið 2023 og síðan aftur í HBO Max sumarið 2025.

Thumb
Merki HBO Max

Í desember 2020 var greint frá því að veitan yrði aðgengileg á Íslandi seinni hluta ársins 2021.[1] Í september 2021 var tilkynnt að veitan yrði aðgengileg á Íslandi seinna um haustið.[2] Í október 2021 var komunni hinsvegar frestað til ársins 2022.[3] Hinsvegar í ágúst 2022 þá var sagt að veitan myndi ekki koma til Íslands fyrr en um seint á árinu 2024.[4] Í júní 2025 var tilkynnt að veitan yrði aðgengileg á Íslandi í júlí.[5]

Á HBO Max má finna efni frá HBO, Warner Bros., Adult Swim, Bad Robot Productions, Boomerang, Cartoon Network, CNN, Crunchyroll, The Criterion Collection, Comedy Central, The CW, DC Entertainment, GKIDS, New Line Cinema, Rooster Teeth, Sky, TBS, TNT, TruTV, Turner Classic Movies og Turner Entertainment.

Remove ads

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads