Heilaga rómverska ríkið

From Wikipedia, the free encyclopedia

Heilaga rómverska ríkið
Remove ads

Heilaga rómverska ríkið (þýska Heiliges Römisches Reich, Ítalska Sacro Romano Impero, Latína Sacrum Romanum Imperium) er formlegt heiti á þýska keisaraveldinu. Ríkið var stjórnarsamband hertogadæma og furstadæma á landsvæði núverandi Þýskalands og að nokkru utan þess svæðis (s.s. Austurríki, Sviss, Norður-Ítalía). Heilaga rómverska ríkið myndaðist við Verdun-samninginn 843 og var lagt niður 1806 á tímum Napóleonstríðanna, er Austurríki varð til sem sérstakt keisaradæmi og Þýska bandalagið (Rínarsambandið) var stofnað.

Staðreyndir strax
Remove ads

Merking heitisins

Þegar Karlamagnús var krýndur keisari hins mikla ríkis Franka var ekki verið að skapa nýtt ríki, heldur að endurnýja Rómaveldi. Ástæðan fyrir því er sú að í bók Daníels í Biblíunni kemur fram að fjögur stórveldi eigi að koma fram fyrir endalok heimsins. Rómaveldi var fjórða stórveldið og því fannst Karlamagnúsi mikilvægt að Rómaveldi héldi áfram að vera til. Við krýningu hans til keisara árið 800 var ríkið því endurnýjað, þótt Austrómverska ríkið (Býsans) væri að vísu enn við lýði. Ríki Karlamagnúsar kallaðist Frankaríki. Þegar því var skipt 843 varð vesturhlutinn að Frakklandi (konungsríki), en austurhlutinn kallaðist rómverska ríkið (keisaradæmi). Orðið heilagur var ekki notað fyrr en löngu seinna, á konungslausa tímanum (Interregnum) á miðri 13. öld.

Remove ads

Verdun-samningurinn

Thumb
Skipting frankaríkis Karlamagnúsar með Verdun-samningnum.

Ríki Karlamagnúsar náði yfir stærsta hluta Vestur-Evrópu í upphafi 9. aldar. Þegar Karlamagnús lést árið 814 erfði sonur hans, Lúðvík hinn frómi, allt ríkið. Lúðvík þótti ekki sterkur stjórnandi og því viku synir hans honum frá. Þeir hittust svo í borginni Verdun árið 843 og skiptu ríkinu í þrennt á eftirfarandi hátt:

  • Karl sköllótti fékk vesturhlutann, nokkurn veginn það sem nú er Frakkland (blátt)
  • Lóþar fékk miðhlutann (grænt)
  • Lúðvík hinn þýski fékk austurhlutann, nokkurn veginn það sem nú er Þýskaland (appelsínugult)
  • Gula svæðið tilheyrði ríkinu ekki beint, en var áhrifasvæði
  • Dökkgræna svæðið var kirkjuríkið

Skipting þessi markaði upphaf hins heilaga rómverska ríkis (þýska ríkisins). Árið 855 var miðríkinu skipt upp. Norður-Ítalía varð þá hluti af þýska ríkinu og varð keisari þýska ríkisins samtímis konungur Langbarðalands. Fyrirkomulag þetta hélst allt til 16. aldar. Niðurlönd lentu um síðir einnig í þýska ríkinu.

Remove ads

Konungskjör

Þýska ríkið var ekki erfðaríki, eins og reyndin var í öðrum ríkjum í Evrópu. Enda var þýska ríkið sett saman úr aragrúa furstadæma, greifadæma og nokkurra konungsríkja. Kjörnefnd valdi konung ríkisins, en í henni sátu kjörfurstarnir, sem jafnframt voru furstar í sínum eigin héruðum. Furstarnir voru upphaflega 7, en urðu seinna 9. Þeir voru:

Á 17. öld bættust tveir furstar við:

Árið 1803 voru erkibiskupsdæmin lögð niður og misstu biskuparnir þá kjörgengið. Í stað þeirra var fjórum nýjum furstum bætt við, en aðeins þremur árum síðar var heilaga rómverska ríkið lagt niður. Þar með skipti embætti kjörfurstanna ekki lengur máli. Kjörfurstarnir völdu ávallt konung, ekki keisara. Konungarnir urðu að eiga náin samskipti við páfa hverju sinni og réðist þá hvort páfi samþykkti að krýna þá til keisara. Í mörgum tilvikum var það ekki gert.

Söguágrip

Sjá Þýskaland.

Konungar og keisarar ríkisins

Thumb
Kóróna hins heilaga rómverska ríkis, frá síðari helming 10. aldar.

Listi þessi nær yfir konunga og keisara hins heilaga rómverska ríkis frá 843-1806, er ríkið var lagt niður. Stundum var ríkið án konungs, en þá réði drottning ríkjum sem eiginkona látins konungs eða móðir ómyndugs konungs. Tímabilið 1254-1273 var með öllu án konunglegrar stjórnar og kallast Interregnum á latínu. Á þeim tíma hétu þrír erlendir þjóðhöfðingjar konungar ríkisins, en þeir koma nær ekkert við sögu í ríkinu sjálfu og stigu varla fæti inn fyrir landamærin. Þjóðhöfðingjar þessir voru enda með öllu áhrifalausir og eru ekki taldir með í þýskum upptalningum á konungum ríkisins. Í allmörgum tilvikum voru til gagnkonungar, þ.e. tveir konungar ríktu samtímis í ríkinu. Kom það til af því að aðalkonungurinn varð óvinsæll, þannig að nýr konungur var valinn sem gagnkonungur. Ekki eru allir gagnkonungar með á listanum. Listi konunganna hefst með Verdun-samningunum, en konungarnir miðuðu raðtölur sínar við Karlamagnús. Samkvæmt þýskum upptalningum er Karlamagnús Karl I. Sonur hans, Lúðvík hinn frómi, er þá Lúðvík I. Synir hans þrír eru Karl sköllótti (Karl II.), Lúðvík hinn þýski (Lúðvík II.) og Lóþar. Því er fyrsti konungur þýska ríkisins Lúðvík II.(Lúðvík hinn þýski), ekki Lúðvík I. Sama gildir um nafnið Karl. Fyrsti konungur þýska ríkisins með þessu heiti er sem sé Karl III.

Nánari upplýsingar Konungur, Krýning ...

Interregnum

Rúdolf I1273-1291AachenNeiHabsborg
Adolf1292-1298AachenNeiNassauSettur af af kjörfurstunum
Albrecht I1298-1308AachenNeiHabsborg
Hinrik VII1308-1313Aachen1312 í RómLúxemborg
Lúðvík IV hinn bæríski1314-1347Aachen1328 í RómWittelsbach
Karl IV1347-1378Aachen1355 í RómLúxemborg
Wenzel1378-1400AachenNeiLúxemborgSettur af af kjörfurstunum
Ruprecht frá Pfalz1400-1410KölnNeiWittelsbach
Jobst frá Mæri1410-1411NeiLúxemborg
Sigmundur1411-1437Achen1433 í RómLúxemborgSonur Karls IV
Albrecht II1438-1439Fór ekki framNeiHabsborg
Friðrik III1440-1493Aachen1452 í RómHabsborg
Maximilian I1493-1519Aachen1508 í TrientHabsborgSonur Friðriks III
Karl V1519-1556Aachen1530 í BolognaHabsborgSagði af sér sökum aldurs
Ferdinand I1531-1564Aachen1556 í FrankfurtHabsborgSonur Karls V
Maximilian II1564-1576Frankfurt1564 í FrankfurtHabsborgSonur Ferdinands I
Rúdolf II1575-1612Regensburg1575HabsborgSonur Maximilians II
Matthías1612-1619Frankfurt1612 í FrankfurtHabsborgSonur Ferdinands I
Ferdinand II1619-1637Frankfurt1619 í FrankfurtHabsborg
Ferdinand III1637-1657Regensburg1637HabsborgSonur Ferdinands II
Leópold I1658-1705Frankfurt1658HabsborgSonur Ferdinands III
Jósef I1705-1711Ágsborg1705HabsborgSonur Leópolds I
Karl VI1711-1740Frankfurt1711HabsborgSonur Leópolds I
Karl VII1742-1745Frankfurt1742Wittelsbach
Frans I1745-1765Frankfurt1745Habsborg
Jósef II1764-1790Frankfurt1765HabsborgSonur Frans I
Leópold II1790-1792Frankfurt1790HabsborgSonur Frans I
Frans II1792-1806Frankfurt1792HabsborgVar síðan fyrsti keisari Austurríkis
Remove ads

Heimildir

  • Höfer, Manfred (1994). Die Kaiser und Könige der Deutschen. Bechtle.
  • Fyrirmynd greinarinnar var „Heiliges Römisches Reich“ á þýsku útgáfu Wikipedia. Sótt febrúar 2010.

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads