JD Vance

50. varaforseti Bandaríkjanna From Wikipedia, the free encyclopedia

JD Vance
Remove ads

James David Vance (f. 2. ágúst 1984) er bandarískur stjórnmálamaður sem hefur verið 50. varaforseti Bandaríkjanna frá 2025. Áður var hann öldungadeildarþingmaður fyrir Ohio-ríki frá 2023 til 2025. Hann var varaforsetaefni Donald Trumps í forsetakosningum í Bandaríkjunum 2024.[1] Donald Trump vann forsetakosningarnar og tóku hann og Vance við embættum sínum þann 20. janúar 2025.[2]

Staðreyndir strax Varaforseti Bandaríkjanna, Forseti ...
Remove ads

Æviágrip

Vance ólst upp í stáliðnaðarbænum Middletown í Ohio. Móðir hans var fíkill og Vance segist sumpart hafa alið sig upp sjálfur þegar ástand hennar var með versta móti. Þegar hann var í tíunda bekk flutti hann til ömmu sinnar. Hann gekk í landgöngulið Bandaríkjahers til þess að geta átt efni á námi við Ríkisháskólann í Ohio. Hann útskrifaðist þaðan með glæsibrag og lærði síðan lögfræði við Yale-háskóla.[3]

Vance varð frægur í Bandaríkjunum árið 2016 þegar hann gaf út sjálfsævisöguna Hillbilly Eligy. Í bókinni lýsti Vance uppvexti sínum við fátæklegar aðstæður í Ohio. Bókin var síðar gerð að kvikmynd af streymiveitunni Netflix.[3]

Á námsárum sínum í Yale kynntist Vance auðmanninum og frjálshyggjumanninum Peter Thiel, sem er gjarnan talinn hafa komið Vance til metorða. Thiel réð Vance í vinnu hjá fjárfestingarfyrirtæki sínu árið 2017 og hjálpaði honum að klífa metorðastigann innan Repúblikanaflokksins. Thiel fjármagnaði jafnframt framboð Vance til öldungadeildar Bandaríkjaþings fyrir Ohio árið 2022 og hjálpaði honum að koma sér upp tengslaneti í tæknigeiranum.[4]

Vance var andsnúinn Trump fyrir forsetakosningarnar 2016 og var bendlaður við „Never Trump“-hreyfinguna innan Repúblikanaflokksins. Árið 2016 skrifaði hann skilaboð til vinar síns sem síðar var lekið, þar sem hann sagði: „Ég get ekki ákveðið hvort mér þyki Trump bituryrtur fáviti eins og Nixon, sem væri ekki sem verst (og gæti reynst gagnlegt) eða hvort hann sé Hitler Ameríku.“[5]

Vance fór að styðja Trump eftir að Trump var kjörinn forseti. Honum tókst að fá stuðningsyfirlýsingu Trumps þegar hann bauð sig fram í forvali Repúblikanaflokksins fyrir öldungadeildarþingskosningar í Ohio árið 2022. Vance vann tilnefningu flokksins og var kjörinn á þing í kjölfarið.[3] JD Vance var kjörinn varaforseti í forsetakosningunum 2024 og tók við embætti af Kamölu Harris þann 20. janúar 2025. Hann sagði af sér þingmennsku 10. janúar 2025 tíu dögum áður en hann tók við embætti varaforseta.[6]

Stjórnmálaskoðanir

Vance hefur ítrekað gagnrýnt fólk, sér í lagi konur, sem velur að eignast ekki börn. Í viðtali árið 2020 sagði hann að barnleysi gerði fólk siðspillt og drægi úr stöðugleika samfélagsins. Vance hefur jafnframt viðrað þá skoðun að atkvæði barnafjölskyldna ættu að vega þyngra en barnlauss fólks í kosningum.[4] Árið 2021 lét hann þau orð falla að Demókrataflokkurinn samanstæði af „barnlausum kattarkonum sem lifi í eymd“ og vilji gera annað fólk óhamingjusamt vegna óánægju þeirra með líf sitt og val. Vance hefur í seinni tíð sagt ummælin hafa verið í kaldhæðni, en hefur þó ítrekað að hann telji stefnu Demókrataflokksins fjandsamlega barneignum.[7]

Varaforsetatíð

JD Vance tók við embætti varaforseta Bandaríkjanna 20. janúar 2025 sama dag og Donald Trump tók við embætti forseta öðru sinni. Vance hefur þótt ákafur í embættisverkum sínum og má þar nefna heimsókn hans og eiginkonu hans til Grænlands en skiptar skoðanir eru á þeirri heimsókn.[8]

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads