Jean Castex
Forsætisráðherra Frakklands From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Jean Castex (f. 25. júní 1965) er franskur stjórnmálamaður og fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands. Hann var skipaður þann 3. júlí árið 2020 af Emmanuel Macron Frakklandsforseta.
Remove ads
Æviágrip
Áður en Castex var skipaður forsætisráðherra var hann meðlimur í franska Lýðveldisflokknum og hafði verið bæjarstjóri smábæjarins Prades í Pýreneafjöllum.[1] Castex starfaði sem ráðgjafi Nicolasar Sarkozy Frakklandsforseta og gegndi aðstoðarskrifstofustjórastöðu í forsætisráðuneytinu á stjórnartíð hans.[2] Árið 2020 var Castex fenginn til að stýra afléttingu útgöngubanns vegna kórónaveirufaraldursins í Frakklandi. Hann hafði áður stýrt neyðaráætlun vegna fuglaflensufaraldursins í Frakklandi.[3]
Þann 3. júli árið 2020 skipaði Emmanuel Macron Frakklandsforseti Castex forsætisráðherra Frakklands eftir að Édouard Philippe baðst lausnar ásamt ríkisstjórn sinni. Stjórnarskipti höfðu legið í loftinu um nokkurt skeið og Macron hafði gefið í skyn að hann vildi breyta um áherslur á síðustu tveimur árum kjörtímabils síns.[4] Castex var lítt þekktur þegar hann var skipaður en þótti hafa breiðari skírskotun á pólitíska litrófinu en forveri sinn og meðal annars eiga í betra sambandi við stéttarfélög.[3]
Castex sagði af sér í maí 2022, eftir að Macron vann endurkjör í forsetakosningum mánuðinn á undan. Hann sagði tíma sinn í landsmálunum vera liðinn. Élisabeth Borne varð nýr forsætisráðherra.[5]
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads