Justin Trudeau
23. forsætisráðherra Kanada From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Justin Pierre James Trudeau (f. 25. desember 1971) er kanadískur stjórnmálamaður sem að var forsætisráðherra Kanada frá 2015 til 2025 fyrir Frjálslynda flokkinn. Hann var formaður Frjálslynda flokksins frá 2013 til 2025 og vann þingkosningarnar 2015, 2019 og 2021. Hann er elsti sonur fyrrum forsætisráðherra Kanada, Pierre Trudeau.
Remove ads

Trudeau mældist mjög vinsæll bæði í Kanada og víðsvegar um heiminn í upphafi forsætisráðherraferils síns, vegna sjarma og myndarlegs útlits.[1] Margir litu svo á að hann hafi setti Kanada á kortið hvað varðar stjórnmál og viðskipti. Vinsældir hans heima fyrir höfðu hins vegar dalað undir lok stjórnartíðar hans.[2]
Remove ads
Skoðanir
Meðal áherslumála Trudeau eru bætt samskipti við Sameinuðu þjóðirnar. Hann fagnar kjarnorkusamningi stórvelda við Íran og íhugar að taka upp stjórnmálasamband við landið. Í byrjun stjórnartíðar sinnar tilkynnti Trudeau að Kanadamenn myndu hætta þátttöku í lofthernaðinum gegn Íslamska ríkinu í Írak og Sýrlandi og boðaði að allt að 25.000 sýrlenskum flóttamönnum yrði veitt hæli í Kanada árið 2015.[3] Baráttan gegn loftslagsbreytingum er áherslumál Trudeau.[heimild vantar]
Trudeau vill að konur hafi frjálst val um fóstureyðingu og afglæpavæða kannabis. Ríkisstjórn Trudeau fékk því framgengt árið 2018 að neysla kannabisefna var gerð lögleg.[4] Hann vill auka réttindi innfæddra í Kanada og koma af stað rannsókn á fjölgun morða innfæddra kvenna.[5] Hann skilgreinir sig sem feminista.[6]
Remove ads
Forsætisráðherra Kanada (2015–2025)
Vinsældir Trudeau báðu hnekki í Kanada í kjölfar hins svokallaða SNC-Lavalin-hneykslismáls árið 2019. Trudeau var sakaður um að hafa beitt Jody Wilson-Raybould, þáverandi dómsmálaráðherra og ríkissaksóknara landsins, óeðlilegum þrýstingi til að fá hana til að fella niður ákæru gegn verktakafyrirtækinu SNC-Lavalin, sem sakað var um að greiða mútufé til yfirvalda Líbíu í stjórnartíð einræðisherrans Muammar Gaddafi. Í ágúst 2019 úrskurðaði siðanefnd að Trudeau hefði brotið siðareglur með afskiptum sínum af málinu. Trudeau sagðist sætta sig við niðurstöðuna þótt hann væri henni ekki sammála og viðurkenndi að hann og ráðgjafar hans hefðu haft áhyggjur af mögulegum afleiðingum sem dómur gegn SNC-Lavalin gæti haft fyrir efnahag Kanada.[7][8][9]
Í þingkosningum sem fóru fram 21. október 2019 tapaði Frjálslyndi flokkurinn þingmeirihluta sínum en var þó áfram stærsti flokkurinn á kanadíska þinginu. Trudeau varð áfram forsætisráðherra eftir kosningarnar en leiddi minnihlutastjórn á öðru kjörtímabili sínu.[10]
Trudeau lét rjúfa þing á undan áætlun í ágúst 2021 og boðaði til nýrra kosninga mánuðinn eftir. Hann réttlætti ákvörðun sína með því móti að þjóðin yrði að geta sagt hug sinn um það hvernig ljúka skyldi baráttunni gegn kórónaveirufaraldrinum. Andstæðingar Trudeau sökuðu hann um tækifærismennsku fyrir að boða til nýrra kosninga á tíma heimsfaraldurs.[11] Í kosningunum, sem voru haldnar 20. september 2021, mistókst Frjálslynda flokknum að endurheimta meirihluta á þingi en flokkurinn hlaut aftur flest þingsæti og tók þá Trudeau við minnihlutastjórn eftir kosningarnar.[12]
Í febrúar 2022 virkjaði Trudeau neyðarlög til þess að bregðast við mótmælum vörubílstjóra og fleiri gegn bólusetningaskyldu og sóttvarnareglum í Kanada.[13] Neyðarheimildirnar sem fylgja lögunum ganga meðal annars út á að frysta bankainnistæður þeirra sem tengjast mótmælunum án dómsúrskurðar og gera farartæki þeirra upptæk. Lögin voru virkjuð í kjölfar langra mótmæla í höfuðborginni Ottawa og vikulangrar tálmunar mótmælenda á Ambassador-brúnni í Windsor við bandarísku landamærin sem höfðu komið í veg fyrir vöruflutning milli Kanada og Bandaríkjanna.[14] Árið 2024 dæmdi alríkisdómstóll að beiting neyðarlaganna hefði ekki verið réttlætanleg og hefði brotið í bága við réttindaskrá stjórnarskrár Kanada.[15]
Trudeau tilkynnti afsögn sína sem forsætisráðherra og leiðtogi Frjálslynda flokksins þann 6. janúar 2025 eftir tíu ár í embætti. Flokkurinn hafði þá lengi mælst illa í skoðanakönnunum og fjármálaráðherra í stjórn hans, Chrystia Freeland, hafði nýlega sagt af sér.[16] Mark Carney tók við sem forsætisráðherra Kanada þann 14. mars 2025.[17]
Remove ads
Störf og einkalíf
Trudeau hefur starfað sem kennari, leikari, þjálfari og verkfræðingur. Hann er með húðflúr af hrafni á vinstri handlegg sem er innblásið af menningu frumbyggja á Haida Gwaii-eyjum.
Trudeau var kvæntur Sophie Grégoire og saman eiga þau þrjú börn. Þau skildu árið 2023 eftir átján ára hjónaband.[18]
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads