McDonald's

bandarískur skyndibitastaður From Wikipedia, the free encyclopedia

McDonald's
Remove ads

McDonald's Corporation (NYSE: MCD) er bandarískur skyndibitastaður. Hann er stærsta hamborgarakeðja í heimi og þjónar um það bil 47 milljónum viðskiptavina á hverjum degi. Það eru um það bil 31.000 McDonald's veitingastaðir um allan heim. Margir veitingastaðir fyritækisins eru reknir undir sérleyfi. Einkum selur McDonald's hamborgara, ostborgara, kjúkling, franskar kartöflur, morgunmat, gos, mjólkurhristing og eftirrétti. Big Mac er með vinsælustu hamborgurum McDonald´s og McFlurry er með vinsælustu eftirréttum McDonald´s.

Thumb
Elsti McDonald's staðurinn sem að er ennþá starfandi í Kaliforníu.
Thumb
McDonald's Plaza, þar sem aðalstöðvar fyrirtækisins eru.

Fyrirtækið var stofnað árið 1940 af Dick og Mac McDonald þegar þeir opnuðu fyrsta McDonald's veitingastaðinn í San Bernardino, Kaliforníu, Bandaríkjunum. McDonald's var starfrækt á Íslandi frá 1993 til 2009.

Remove ads

McDonald's á Íslandi

Fyrsti veitingastaður McDonald's opnaði þann 9. september 1993 við Suðurlandsbraut 56 í Reykjavík. Hann var opnaður af þáverandi forsætisráðherra, Davíð Oddssyni. Þann 16. júní 1995 opnaði svo annar veitingastaður keðjunnar hér á landi í Hressingarskálanum í Reykjavík, að Austurstæti 20. Því útibúi var lokað árið 2003. Þann 30. september 2001 opnaði svo þriðji staður keðjunnar í Kringlunni.[1] Árið 2002 opnaði svo fjórði veitingastaður keðjunnar við Smáratorg 5 (þar sem að Popeyes var áður).[2]

Þann 26. október 2009 tilkynnti rekstraraðili McDonald's á Íslandi, Lyst ehf. að vegna falls krónunnar væri orðið erfitt um aðföng erlendis frá og því verið ákveðið að hætta rekstri undir merkjum McDonald's-leyfisins frá og með 1. nóvember og lokuðu því allar þrjár keðjur fyrirtækisins. Fyrirtækið hélt áfram að reka McDonald's á Íslandi í nóvember 2009 undir nafninu Metro í Kringlunni, Smáratorgi og að Suðurlandsbraut. Útibúið í Kringlunni lokaði sumarið 2010[3] en hin tvö útibúin eru ennþá starfandi.

Síðan McDonald´s hætti á Íslandi hafa reglulega heyrst í fólki sem vill fá McDonald´s aftur til Íslands. Árið 2018 greindi New York Post frá því að McDonald's hyggðist opna nýtt útibú hér á landi. Þeir fréttir reyndust falskar og vísaði talsmaður fyrirtækisins fyrirsögnunum á bug.[4] 2. febrúar 2025 hélt Youtube-stjarnan Sindri Leví Ingason viðburð í Urriðaholti þar sem hann gaf 200 McDonald´s hamborgara með það að markmiði að reyna að vekja athygli McDonald´s en nokkrum dögum áður talaði hann fyrir því að fá McDonald´s aftur til Íslands.[5]

Remove ads

Aprílgöbb tengd McDonald's

Gerð hafa verið tvö eftirminnilega aprílgöbb á Íslandi tengd Mcdonald's. Árið 2002 birti fréttastofa Rúv gabb um að verið væri að hylja Kópavogskirkju með dúk þar sem McDonald´s hefði farið í mál við kirkjuna vegna líkinda við lögun á McDonald´s merkinu.[6] Árið 2016 kom síðan aprílgabb þar sem sagt var McDonald´s myndi snúa aftur til Íslands þar sem Simmi og Jói hygðust opna McDonald´s stað í Egilshöll.[7]

Remove ads

Tilvitnanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads