Oasis
bresk rokkhljómsveit From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Oasis er bresk rokkhljómsveit, stofnuð í Manchester árið 1991. Hún vakti fyrst athygli árið 1994 þegar hún gaf út plötuna Definitely Maybe og platan (What's The Story) Morning Glory? (1995) er ein sú mest selda í Bretlandi [1].

Oasis varð ein vinsælasta bretapopphljómsveit 10. áratugarins ásamt hljómsveitum eins og Blur, Pulp og Suede [2]. Meðal helstu áhrifavalda sveitarinnar eru Bítlarnir, Rolling Stones og The Stone Roses. Forsprakkar sveitarinnar eru bræðurnir Liam og Noel Gallagher.
Remove ads
Saga
1991–1993: Upphafið
Í fyrstu var hljómsveitin skipuð Paul „Bonehead“ Arthur (gítar), Paul „Guigsy“ McGuigan (bassi), Tony McCaroll (trommur) og Chris Hutton (söngur), og gekk þá undir nafninu „The Rain“. Sveitin var óánægð með Hutton og fékk Arturs kunningja sinn Liam Gallagher til að syngja. Liam fékk síðan þá hugmynd að breyta nafni sveitarinnar í Oasis. Noel Gallagher starfaði þá sem rótari hjá hljómsveitinni The Inspiral Carpets. Noel, sem var uppfullur af tónlistarhugmyndum, sá hljómsveitina spila og hreifst af því sem hann sá. Hann stakk upp á að ganga í sveitina með þeim fyrirvara að hann myndi stjórna hljómsveitinni og semja efnið. Hljómsveitin samþykkti það. Með nýtt nafn og nýjan stíl hóf Oasis árið með löngum og ströngum æfingum.
1994–1998: Gullaldarárin
Alan McGee, meðeigandi Creation Records, sá og heyrði Oasis spila á King Tut's Wah Wah Hut í Glasgow og var svo heillaður að hann bauð þeim plötusamning. Hljómsveitin gaf út sína fyrstu smáskífu „Supersonic“ vorið 1994. Sú smáskífa fékk jákvæða dóma. Lagið var síðan gefið út á plötunni Definitely Maybe. „Shakermaker“ varð enn stærri smellur snemma sumars 1994. Aðeins mánuði seinna gáfu Oasis út sína 3. smáskífu, en það var stórsmellurinn „Live Forever“. Mánuði síðar gáfu Oasis út fyrstu breiðskífu sína, Definitely Maybe, en hún sló hraðamet í sölu í Bretlandi og náði 1. sæti á breska vinsældalistanum. Noel hætti í hljómsveitinni eftir erfiða tónleikaferð um Bandaríkin. Hann kom þó fljótlega aftur og hljómsveitin fór aftur til Englands. Þegar „Supersonic“ var á uppleið á bandaríska listanum yfir rokkplötur og nútímarokk. Smáskífulagið „Whatever“ sem kom aldrei á plötu með hljómsveitinni fór í annað sæti á breska listanum yfir jólin '94. Í byrjun 1995 einbeitti hljómsveitin sér að Bandaríkjunum, komu á framfæri laginu „Live Forever“. Lagið varð risasmellur á MTV, yfir plötur og nútímarokk útvarpsstöðvar, á toppnum númer tvö, og Definitely Maybe varð gullplata í heimkomunni til Englands eftir uppselda tónleikaferð í Bandaríkjunum, hljómsveitin tók upp nýja smellinn „Some Might Say“. Um kvöldið þegar smellurinn var gefinn út var trommarinn Tony McCaroll rekinn úr hljómsveitinni.
Alan White tók við trommukjuðunum í hans stað. Í sama mánuði náði „Some Might Say“ toppnum. Oasis eyddi restinni af sumarinu að klára (What's The Story) Morning Glory?. Oasis og Blur gáfu út smáskífur sama dag í ágúst 1995 og var það nefnt Baráttan um britpoppið af fjölmiðlum. [3] Platan sjálf var gefin út í október 1995. Eftir að hún var gefin út fór hún í fyrsta sæti breska vinsældarlistans, og seldist í 20 milljónum eintaka, var einnig hraðseldasta platan síðan Michael Jackson gaf út plötuna Bad. Yfir 1996 varð (What's the Story) Morning Glory? önnur stærsta plata allra tíma í Bretlandi. Vegna styrks lagsins „Wonderwall“ varð Morning Glory ein af tíu vinsælustu plötunum í Bandaríkjunum. Platan náði komst alls staðar á topp 10 lista í Evrópu og Asíu.
Árið 1996 komst oft hið stormasama samband Gallagher bræðranna í slúðurblöðin, þegar þeir skyndilega hættu við Bandaríkjaferðina seint um sumarið. Í kjölfarið urðu tvennir tónleikar þeirra í Knebworth stærstu útitónleikar í sögu Bretlands, en um 250.000 manns sáu hljómsveitina spila á þessum tónleikum. Eftir að þeir hættu við Bandaríkjaferðina einbeittu þeir sér að því að taka upp þriðju plötuna.
Þar sem það tók stuttan tíma að taka upp fyrstu tvær plöturnar, tók það þá nokkra mánuði að taka upp þessa, sem að var gefinn út 21. ágúst 1997, með smellinum „D'You Know What I Mean?“. Með hjálp góðrar gagngrýni og sölu komst Be Here Now í sæti yfir mest seldu plötur í Bretlandi, og næstum toppaði bandaríska sölulistann. Þó fengu þeir bakslag frá bæði gagnrýnendum og plötukaupendum. Eftir tónleikaferðina sem fylgdi Be Here Now tók hljómsveitin sér kærkomið frí, en þeir höfðu túrað nánast stanslaust í 5 ár. Þeir notuðu tækifærið og gáfu út B-hliðaplötuna The Masterplan 1998. Á henni er m.a. að finna lögin „Acquiesce“ og „The Masterplan“ sem eru meðal bestu verka sveitarinnar og með eftirlætislögum aðdáenda á tónleikum.
1999–2009: Mannabreytingar og endalok
Þegar hljómsveitin var að taka upp sýna fjórðu plötu sumarið 1999, hættu þeir Paul „Bonehead“ Arthurs og Paul „Guigsy“ McGuigan í hljómsveitinni. Bonehead gaf þá ástæðu að hann vildi eyða meiri tíma með fjölskyldu sinni. Andy Bell, fyrrverandi gítarleikari Ride og Heavy Stereo, og Gem Archer, gítarleikari Hurricane #1, gengu til liðs við hljómsveitina eftir að upptökum lauk á plötunni Standing on the Shoulder of Giants. Sú plata kom út snemma á árinu 2000 og er minnst selda plata Oasis. Hún komst þó í efsta sæti á sölulista breska breiðskífulistans. Bell tók að sér að spila á bassa og Gem á gítar. Sama ár fögnuðu þeir nýrri plötu með eftirminnilegu tónleikaferðalagi og gáfu út sína fyrsu tónleikaplötu Familiar To Millions, sem var tekin upp sumarið 2000 á Wembley.
Fyrsta platan þar sem þeir Bell og Gem fengu að spreyta sig á kom út sumarið 2002 og fékk nafnið Heathen Chemistry. Það sem helsta athygli vakti á þeirri plötu var að Noel Gallagher, lagasmiður sveitarinnar, samdi ekki öll lögin. Liam átti þrjú lög á plötunni, Bell og Gem sitthvort lagið. Reyndar hafði Liam samið eitt lag sem er að finna plötunni Standing On The Shoulder Of Giants. Eftir túrinn sem fylgdi plötunni hætti trommari sveitarinnar Alan White.
Þeir Gallagher-bræður réðu Zak Starkey, son Ringo Starr, til að tromma á næstu plötu sem bar titilinn Don't Believe The Truth og kom út árið 2005. Starkey var reyndar ekki fullgildur meðlimur hljómsveitarinnar í fyrstu, en hann bæði trommaði á plötunni og spilaði með hljómsveitinni á tónleikaferðalagi til að fylgja henni eftir. Platan komst í efsta sæti breska listans eins og allar fyrri plötur sveitarinnar. Smáskífurnar „Lyla“ og „The Importance Of Being Idle“ komust í efsta sæti breska smáskífulistans.
Þann 20. nóvember 2006 kom út 18 laga plata sem innihélt brot af því besta sem Oasis hefur sent frá sér. Flest lögin eru frá gullaldarárum sveitarinnar 1994–1996. Platan heitir Stop The Clocks. Sveitin var heiðruð fyrir „Framúrskarandi framlag til tónlistar“ (e. "Outstanding contribution to music") á bresku tónlistarverðlaununum þann 14. febrúar 2007.
Árið 2009 hætti sveitin við tónleika í París þar sem Noel Gallagher lýsti því yfir að hann hafði fengið alveg nóg af því af vinna með bróður sínum Liam. Síðar stofnaði Liam sveitina Beady Eye og hóf sólóferil eftir upplausn hennar og Noel stofnaði Noel Gallaghers High Flying Birds. Fyrrum meðlimir Oasis hafa komið að sólóverkefnum bræðranna. [4]
Endurkoma
Árið 2024 ákvað Oasis að koma saman aftur og spila á tónleikum sumarið eftir. [5]
Remove ads
Meðlimir
- Noel Gallagher - Gítar (1991–2009, 2025–)
- Liam Gallagher - Söngvari (1991–2009, 2025–)
- Gem Archer - Gítar (1999–2009, 2025–)
- Andy Bell - Bassi (1999–2009, 2025-)
- Paul „Bonehead“ Arthurs - Gítar (1991-1999, 2025-)
- Joey Waronker – Trommur (2025-)
Fyrrum meðlimir
- Paul „Guigsy“ McGuigan - Bassi (1991-1999)
- Tony McCarroll - Trommur (1991-1995)
- Alan White - Trommur (1995-2004)
Útgefið efni
Plötur
- Definitely Maybe (1994)
- (What's The Story) Morning Glory? (1995)
- Be Here Now (1997)
- Standing On The Shoulder Of Giants (2000)
- Heathen Chemistry (2002)
- Don't Believe The Truth (2005)
- Dig Out Your Soul (2008)
Safnplötur
- The Masterplan (1998)
- Familiar To Millions (2000)
- Stop The Clocks (2006)
Smáskífur
- „Supersonic“ (1994)
- „Shakermaker“ (1994)
- „Live Forever“ (1994)
- „Cigarettes & Alcohol“ (1994)
- „Whatever“ (1994)
- „Some Might Say“ (1995)
- „Roll With It“ (1995)
- „Wonderwall“ (1995)
- „Don't Look Back In Anger“ (1996)
- „D'You Know What I Mean?“ (1997)
- „Stand by Me“ (1997)
- „All Around The World“ (1998)
- „Go Let It Out“ (2000)
- „Who Feels Love“ (2000)
- „Sunday Morning Call“ (2000)
- „The Hindu Times“ (2002)
- „Stop Crying Your Heart Out“ (2002)
- „Little By Little/She's Love“ (2002)
- „Songbird“ (2003)
- „Lyla“ (2005)
- „The Importance Of Being Idle“ (2005)
- „Let There Be Love“ (2005)
- „Stop The Clocks“ (2006)
DVD
- Live By The Sea, tónleikar frá árinu 1995
- There And Then, tónleikar á Maine Road og Earl's Court frá árinu 1996
- Familiar To Millions, tónleikar á Wembley frá árinu 2000
- Definitely Maybe, afmælisútgáfa í tilefni 10 ára afmælis Definitely Maybe
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads