1624
ár From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Árið 1624 (MDCXXIV í rómverskum tölum) var 24. ár 17. aldar og hlaupár sem hófst á mánudegi samkvæmt gregoríska tímatalinu en fimmtudegi samkvæmt júlíska tímatalinu sem er tíu dögum á eftir.
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Ísland
- 16. nóvember - Dómkirkjan á Hólum brotnaði í ofviðri.
Ódagsettir atburðir
- Morðbréfamálið: Guðbrandur Þorláksson gerði síðustu tilraun til að stefna Jóni og Markúsi Ólafssonum um jarðirnar Hól og Bessastaði í Skagafirði en Jón Sigurðsson ónýtti sókn hans á Alþingi.
Fædd
Dáin
Opinberar aftökur
- Sesselja Jónsdóttir dæmd til dauða á Alþingi, 29 ára, fyrir blóðskömm. Ekki er ljóst í annálum hvort eða hvenær dómnum var framfylgt.
- Hildibrandur Ormsson frá Höfða, Dýrafirði, dæmdur til dauða á Alþingi, 44 ára, fyrir blóðskömm í sama máli. Hann var tekinn af lífi þar á þinginu.[1]
Remove ads
Erlendis
- 7. febrúar - Englendingar námu land á Sankti Kristófer og Nevis.
- Apríl - Richelieu kardínáli var gerður að æðstaráði í ríkisstjórn Loðvíks 13.
- 8. maí - Hollenskur floti undir stjórn Piet Heyn rændi bæinn Salvador þar sem nú er Brasilía.
- 11. maí - Jarðskjálfti varð í Fez, Marokkó. Þúsundir létust.
- 24. maí - Osló brann til kaldra kola. Eftir brunann var borgin flutt um set og nefnd Kristjanía í höfuðið á Kristjáni 4. konungi. Hún hélt því nafni allt fram að þriðja áratug tuttugustu aldar, en þá fékk hún aftur nafnið Osló.
- 25. maí - Dunfermline í Skotlandi eyðilagðist í eldi.
- 8. júní - Jarðskjálfti skók Perú.
- Ágúst - Fyrsti Evrópumaðurinn kom til Tíbet, portúgalski jesúítapresturinn António de Andrade.
- 24. ágúst - Hollendingar settu upp verslunarstað á Tævan eftir að Kínverjar ráku þá annars staðar frá.
- September - Jón Ólafsson Indíafari slasaðist í sprengingu á Indlandi.
- 24. desember - Póstþjónusta var stofnuð í Danmörku af Kristjáni 4. Hún var fyrst til húsa í Dönsku kauphöllinni.
Ódagsettir atburðir
- Bærinn Kongsberg í Noregi var stofnaður af Kristjáni 4. eftir að þar höfðu fundist silfurnámur.
- Gústaf 2. Adolf fékk tilboð um þátttöku í hernaðarbandalagi gegn Habsborgurum í Evrópu en þar sem hann gerði kröfu um að leiða bandalagið varð ekkert af þátttöku Svía í það skipti.
- Þrjátíu fjölskyldur frá Vallóníu settust að í nýlendunni Nýja Hollandi þar sem New York-borg stendur nú.
Fædd
Ódagsett
- George Fox, enskur stofnandi kvekarahreyfingarinnar (d. 1691).
Dáin
- 5. desember - Gaspard Bauhin, svissneskur grasafræðingur (f. 1560).
- 26. desember - Simon Marius, þýskur stjörnufræðingur (f. 1573).
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads