1627
ár From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Árið 1627 (MDCXXVII í rómverskum tölum) var 27. ár 17. aldar sem hófst á föstudegi samkvæmt gregoríska tímatalinu en mánudegi samkvæmt júlíska tímatalinu sem er tíu dögum á eftir.
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Ísland
- 20. júní - Tyrkjaránið í Grindavík: Sjóræningjar undir stjórn Murat Reis (Hollendingsins Jan Janszoon) hernámu fimmtán Grindvíkinga.
- 4.-13. júlí - Tyrkjaránið á Austfjörðum: Sjóræningjar frá Barbaríinu rændu og rupluðu í Berufirði og víðar á sunnanverðum Austfjörðum og hernámu 110 manns.
- 16. júlí - Tyrkjaránið í Vestmannaeyjum: Sjóræningjar frá Barbaríinu hernámu 234 Vestmannaeyinga og drápu 36.
- 21. júlí - Guðbrandur Þorláksson, biskup á Hólum lést í embætti.
Fædd
Dáin
- 17. júlí - Jón Þorsteinsson píslarvottur, prestur (f. 1570)
- 21. júlí - Guðbrandur Þorláksson biskup á Hólum (f. 1541).
- Ólafur Jónsson á Söndum (f. 1560), prestur og skáld á Dýrafirði.
Opinberar aftökur
- Herdísi Guðmundsdóttur drekkt í Miðdölum í Dalasýslu, fyrir sakir dulsmáls.[1]
Remove ads
Erlendis

- 26. janúar - Hollenska skipið Gulden Zeepaert, stjórnað af François Thijssen, var í augsýn við Ástralíu.
- 17. febrúar - Fyrstu ensku landnemarnir settust að á Barbados.
- 13. apríl - Pólsk-litháíska samveldið vann sigur á Svíum í orrustunni við Hammerstein.
- 25. maí - Gústaf 2. Adolf særðist við Danziger Haupt í orrustu við Pólsk-litháíska samveldið.
- 22. júlí - Englendingar, undir stjórn Buckinghams hertoga, réðust á Réeyju til stuðnings húgenottum í La Rochelle.
- 27. júlí - Jarðskjálfti eyddi bæjunum San Severo og Torremaggiore á Ítalíu.
- 10. september - Umsátrið um La Rochelle hófst.
- 20. nóvember - Þrjátíu ára stríðið: Hertoginn af Pommern skrifaði undir uppgjöf fyrir keisarahernum.
- 20. desember - Indland: Shah Jahan fór inn í Lahore eftir að hafa sigrað bróður sinn í orrustu.
Ódagsettir atburðir
- Keisaraherinn undir stjórn Albrechts von Wallenstein réðist inn í Jótland, rændi þar og brenndi allt sem fyrir varð.
- Síðustu úruxarnir voru drepnir af veiðiþjófum í Póllandi.
- Byssupúður var fyrst notað til sprengingar í námugreftri.
Fædd
- 25. janúar - Robert Boyle, írskur efnafræðingur (d. 1696).
- 29. nóvember - John Ray, enskur líffræðingur (d. 1705).
- 27. ágúst - Koxinga, herforingi Mingveldisins. (d. 1692)
Dáin
- 28. október - Jahangir, mógúlkeisari (f. 1569).
- 12. desember - Wei Zhongxian, kínverskur hirðgeldingur (f. 1568)
- Zidan Abu Maali, soldán Marokkó.
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads