Eritrea
ríki í Norðaustur-Afríku From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Eritrea er land í Austur-Afríku með landamæri að Súdan í vestri, Eþíópíu í suðri og Djibútí í austri. Landið á langa strandlengju við Rauðahafið en handan þess eru Sádí-Arabía og Jemen. Eritrea nær einnig yfir Dahlak-eyjaklasann og hluta Hanish-eyja. Nafnið Eritrea er ítölsk útgáfa gríska heitisins Ἐρυθραία (Eryþraia) sem merkir „rautt (land)“.
Remove ads
Íbúar Eritreu tilheyra mörgum þjóðarbrotum en níu eru opinberlega viðurkennd. Flestir tala ýmis semísk eða kúsísk mál. Yfir helmingur talar tígrinja og Tígrar eru um þriðjungur þjóðarinnar. Að auki eru þar ýmsir hópar Nílóta sem tala nílósaharamál. Um helmingur íbúa aðhyllist kristni og um helmingur íslam.[1]
Konungsríkið Aksúm náði yfir það sem nú er Erítrea og norðurhluta Eþíópíu frá því um 100 til 940 e.Kr.[2][3] Síðar var landið hluti af konungsríkinu Medri Bahri frá 12. öld þar til Ítalir hófu að leggja það undir sig frá 1882 ásamt öðrum sjálfstæðum og hálfsjálfstæðum héruðum norðan við Eþíópíu. Ítalska Erítrea var formlega búin til árið 1890. Eftir Annað Abyssiníustríðið 1936 lögðu Ítalir Eþíópíu undir sig og sameinuðu Erítreu undir heitinu Ítalska Austur-Afríka. Andspyrna gegn hernámi Ítala var útbreidd í Eþíópíu. Árið 1940 lögðu Ítalir síðan Breska Sómalíland undir sig. Eftir orrustuna um Keren 1941 tóku Bretar við stjórn landsins til 1951 þegar Erítrea varð sambandsríki innan Eþíópíu. Landið var með eigið þing en var síðan innlimað 1960. Þá hófst vopnuð sjálfstæðisbarátta sem stóð þar til landið fékk de facto sjálfstæði 1991 (opinberlega viðurkennt 1993). Mannskætt stríð blossaði upp milli ríkjanna 1998 út af landamæradeilum, og lauk formlega með Alsírsáttmálanum 2000.
Í Eritreu er flokksræði og kosningar til þings og forseta hafa aldrei verið haldnar þar. Isaias Afwerki hefur verið forseti frá því landið fékk formlega sjálfstæði árið 1993. Samkvæmt samtökunum Human Rights Watch er orðspor stjórnar Eritreu í mannréttindamálum með því versta sem gerist í heiminum. Stjórn landsins hefur hafnað þessum ásökunum með þeim orðum að þær séu af pólitískum rótum.[4] Fjölmiðlafrelsi í Eritreu er mjög takmarkað og samtökin Press Freedom Index hafa oftast sett landið í neðstu sætin. Blaðamenn án landamæra telja fjölmiðlafrelsi í Eritreu vera það minnsta í heimi, þar sem allir fjölmiðlar eru undir strangri stjórn yfirvalda.[5]
Eritrea er aðili að Afríkusambandinu, Sameinuðu þjóðunum, Alþjóðaþróunarstofnuninni og á áheyrnaraðild að Arababandalaginu ásamt Brasilíu og Venesúela.[6]
Remove ads
Heiti
Nafn landsins Eritrea er dregið af grísku heiti Rauðahafs, Ἐρυθρὰ Θάλασσα Eryþra Þalassa, sem er dregið af lýsingarorðinu ἐρυθρός eryþros sem merkir „rauður“. Það var fyrst tekið upp sem formlegt heiti landsins þegar nýlendan Ítalska Eritrea (Colonia Eritrea) var stofnuð.[7] Nafnið hélt sér síðan eftir að Bretar og síðar Eþíópía tóku yfir stjórn landsins, og fékk formlega staðfestingu í þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Eritreu 1993 og Stjórnarskrá Eritreu frá 1997.[8]
Remove ads
Stjórnmál
Stjórnsýslueiningar
Eritrea skiptist í sex héruð. Þau skiptast síðan aftur í 58 umdæmi.

Héruð Eritreu eru helstu stjórnsýslueiningar landsins. Þegar Eritrea fékk sjálfstæði árið 1993 skiptist landið í tíu sýslur sem voru svipaðar og þær níu sýslur sem landinu var skipt í á nýlendutímanum. Áirð 1996 var þeim fækkað í sex héruð (zoba). Landamæri héraðanna miðast við vatnaskil.
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads