Hella

bær á Suðurlandi From Wikipedia, the free encyclopedia

Hella
Remove ads

Hella er þéttbýlisstaður í Rangárþingi ytra í Rangárvallasýslu, 94 kílómetra frá Reykjavík. Kauptúnið stendur á eystri bakka Ytri-Rangár, við brúna þar sem Suðurlandsvegur liggur yfir ána. Íbúar Hellu eru 1.015 og í Rangárþingi ytra eru þeir um 1.900. [heimild vantar]

Staðreyndir strax Land, Landshluti ...

Á Hellu byggist atvinnulífið að mestu upp á þjónustu við landbúnað, en þar má finna stórgripasláturhús, kjötvinnslu, kjúklingasláturhús og samliggjandi kjötvinnslu, dýralæknamiðstöð, útungunarstöð, bifreiðaverkstæði, rafverkstæði, trésmiðjur og ýmsa aðra smærri þjónustuaðila við landbúnað.

Á Hellu er einnig matvöruverslun, veitingastaðir, hótel og gistiheimili, hjúkrunar- og dvalarheimili, sundlaug, þvottahús, heilsugæsla, glerverksmiðja, fiskvinnsla og fiskbúð, kjötvinnsla og kjötbúð, gjafavöruverslun, sundlaug, banki, pósthús, tjaldstæði, apótek, hjólbarðaverkstæði, bensínstöð, íþróttahús, grunn- og leikskólar auk ýmiskonar annarrar þjónustu og stofnanir. Þá eru ráðhús og þjónustumiðstöð sveitarfélagsins á Hellu.

Hella fór að byggjast upp árið 1927, þegar Þorsteinn Björnsson reisti verslunarhús við brúna yfir Rangá, í landi jarðarinnar Gaddstaða [3]. Þessum frumbyggja Hellu var reistur minnisvarði við árbakka Rangár á 50 ára byggðarafmæli kauptúnsins árið 1977 [4]. Hann rak þó ekki verslun sína nema í 8 ár því að 1935 keypti Kaupfélagið Þór verslunina af honum og byggði síðan upp ýmsa þjónustustarfsemi og iðnað á Hellu.

Þorpið er byggt út úr jörðunum Gaddstöðum, Helluvaði og Nesi á Rangárvöllum.

Mikill vöxtur varð í þorpinu á sjöunda áratugnum þegar fjölmargir þeirra sem störfuðu við uppbyggingu virkjana á svæðinu byggðu sér hús á svæðinu og settust að. Eftir það var vöxturinn hægari fram yfir aldamótin en eftir það hefur verið nokkuð stöðugur vöxtur í þorpinu með byggingu nýrra íbúða á hverju ári.

Á Hellu er eitt þekktasta hestaíþróttasvæði á landinu, Gaddstaðaflatir eða öðru nafni Rangárbakkar. Á svæðinu eru keppnisvellir fyrir hestaíþróttir og þar er einnig reiðhöll. Þar hafa verið haldin sex landsmót hestamanna árin 1986, 1994, 2004, 2008, 2014 og 2022.

Remove ads

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads