Reykjavík - Rotterdam

Íslensk kvikmynd frá árinu 2008 From Wikipedia, the free encyclopedia

Reykjavík - Rotterdam
Remove ads

Reykjavík-Rotterdam er íslensk kvikmynd frá árinu 2008 sem var leikstýrt af Óskari Jónassyni. Óskar skrifaði einnig handritið ásamt glæpasagnahöfundinum Arnaldi Indriðasyni. Í aðalhlutverkum eru Baltasar Kormákur og Ingvar E. Sigurðsson.

Staðreyndir strax Leikstjóri, Handritshöfundur ...

Myndin var tilnefnd til sex Edduverðlauna árið 2008 og vann fimm, þar á meðal Leikstjóri ársins. Myndin var frumsýnd á Íslandi þann 3. október 2008 og á 13 vikna tímabili tók myndin inn 25 milljónir íslenskra króna og varð átjánda tekjuhæsta mynd ársins á Íslandi. [1]

Endurgerð myndarinnar á ensku undir nafninu Contraband kom út þann 13. janúar 2012 og fóru Mark Wahlberg og Kate Beckinsale með aðalhlutverkin í myndinni.[2][3]

Remove ads

Söguþráður

Öryggisvörðurinn og fyrrverandi sjómaðurinn Kristófer sem afplánað hefur fangelsisdóm fyrir áfengissmygl berst við að halda fjölskyldu sinni á floti. Honum finnst hann reyna of mikið á besta vin sinn Steingrím sem gefur honum allt sem honum er fært. Kristófer býðst að fara í einn vel launaðan túr á flutningaskipi milli Reykjavíkur og Rotterdam. Hann slær til í þeirri von að hann geti komið sér á réttan kjöl fjárhagslega en óvæntir atburðir setja strik í reikninginn. [4] Á meðan hann er á sjó stritar eiginkona hans Íris við að halda sér á floti, ásamt sonum þeirra Agli og Skúla. Ofsóknir frá mönnum sem Kristófer hefur í gegnum tíðina barist við fara alveg með hana og hún leitar til Steingríms eftir hjálp. Steingrímur býður þeim að halda til heima hjá sér þangað til Kristófer kemur heim. Það kemur í ljós að hann hefur staðið á bak við allar ofsóknirnar sökum þess að hann er ástfanginn af Írisi. Þá hefst barátta við tímann þegar Kristófer verður að komast heim án þess að vera tekinn með áfengið og bjarga Írisi sem var orðið ljóst hvaða mann Steingrímur hafði að geyma.

Remove ads

Leikarar

Útgáfa

Í kvikmyndahúsum

Thumb
Óskar Jónasson eftir frumsýningu kvikmyndarinnar

Reykjavík-Rotterdam var frumsýnd þann 30. september 2008 í Háskólabíói fyrir troðfullum bíósal, þúsund manns. Áhorfendur voru yfirleitt hrifnir af myndinni. Leikstjóri, leikarar og handritshöfundar voru allir viðstaddir frumsýningu. Svo var slegið til veislu þegar sýningu lauk og stóð hún alla nóttina. [5] Sýningar á myndinni hófust um allt land þann 3. október 2008 og skilaði myndin inn um það bil sex milljónum íslenskra króna fyrstu sýningarhelgina. Hún var tekjuhæsta myndin á landinu þá helgi og einnig helgina á eftir þegar þrjú þúsund manns sáu myndina. Eftir tvær vikur höfðu fjórtán þúsund manns séð myndina. Þriðju helgina datt myndin niður í annað sæti á eftir Max Payne. [6] Myndin gekk í þrettán vikur og á þeim tíma náði Reykjavík-Rotterdam að hala inn rúmar 25 milljónir í kvikmyndahúsum. [7]

Álit gagnrýnenda

Verðlaun

Reykjavík-Rotterdam hlaut næstflestar tilnefningar til Edduverðlaunanna 2008, tíu talsins. Kvikmyndin Brúðguminn, sem Baltasar Kormákur, aðalleikari Reykjavíkur-Rotterdams leikstýrði, fékk fjórtán tilnefningar. Reykjavík-Rotterdam vann til fimm verðlauna.

Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían valdi Reykjavík-Rotterdam sem framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna í flokki bestu kvikmyndar á tungumáli öðru en ensku það árið en myndin var ekki tilnefnd til verðlaunanna.

Nánari upplýsingar Flokkur, Keppendur ...
Remove ads

Heimildir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads