13. janúar

dagsetning From Wikipedia, the free encyclopedia

Remove ads

13. janúar er 13. dagur ársins samkvæmt gregoríska tímatalinu. 352 dagar (353 á hlaupári) eru eftir af árinu.

DesJanúarFeb
SuÞrMiFiLa
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293031
2025
Allir dagar

Atburðir

  • 532 - Nika-óeirðirnar í Konstantínópel áttu sér stað.
  • 1177 - Leópold 5. varð hertogi af Austurríki.
  • 1229 - Sauðafellsför, synir Þorvalds Vatnsfirðings drápu fimm og særðu 12.
  • 1234 - Órækja Snorrason drap Odd Álason á Eyri við Arnarfjörð.
  • 1607 - Genúabanki varð gjaldþrota eftir að spænska ríkið lýsti sig gjaldþrota.
  • 1610 - Galileo Galilei uppgötvaði Ganýmedes.
  • 1631 - Þrjátíu ára stríðið: Svíar sömdu um að fá 400 þúsund ríkisdali árlega frá Frakklandi gegn því að nota 36 þúsund manna herlið í Þýskalandi.
  • 1666 - Franski ferðalangurinn Jean-Baptiste Tavernier kom til Dakka í Bengal og hitti Shaista Khan.
  • 1759 - Tavora-fjölskyldan í Portúgal tekin af lífi fyrir meint samsæri og banatilræði gegn Jóhanni 1. Portúgalskonungi. Lífi flestra kvenna og barna var þó þyrmt.
  • 1830 - Venesúela lýsti yfir sjálfstæði frá Stór-Kólumbíu.
  • 1923 - Fárviðri braut 50–60 m skarð í Örfiriseyjagarðinn, aðalhafnargarð Reykjavíkur.
  • 1930 - Fyrsta myndasagan um Mikka mús kom út.
  • 1940 - Sölufélag Garðyrkjumanna var stofnað á fundi á Hótel Borg.
  • 1949 - Frumsýnd var kvikmyndin Milli fjalls og fjöru eftir Loft Guðmundsson, fyrsta íslenska litmyndin með tali og í fullri lengd.
  • 1953 - Josip Broz Tito var kosinn forseti Júgóslavíu.
  • 1957 - Fyrirtækið Wham-O framleiddi fyrsta frisbídiskinn.
  • 1975 - Guðmundur Sigurjónsson varð stórmeistari í skák, 27 ára.
  • 1975 - Stórtjón varð í bruna á Reykjavíkurflugvelli er flugskýli og fleiri byggingar brunnu.
  • 1976 - Mikill jarðskjálfti, 6,5 stig á Richter, varð í grennd við Kópasker og olli miklu tjóni.
  • 1982 - Air Florida-flug 90 rakst á brú skömmu eftir flugtak í Washington-borg og hrapaði í ána Potomac. 80 létust.
  • 1985 - 418 létust og 559 særðust í einu mannskæðasta lestarslysi sögunnar við Awash í Eþíópíu.
  • 1986 - Borgarastyrjöldin í Suður-Jemen hófst.
  • 1988 - Forseti Tævan, Chiang Ching-kuo, lést og varaforsetinn, Lee Teng-hui, tók við.
  • 1988 - Kalksteinsdrangurinn Sommerspiret á Møns Klint í Danmörku hrundi í hafið.
  • 1990 - 132 Armenar létu lífið í þjóðernisofsóknum í Bakú í Aserbaísjan.
  • 1990 - Fyrsta díselknúna IC3-lestin var tekin í notkun í Kaupmannahöfn.
  • 1991 - Sovéskar sveitir réðust á höfuðstöðvar litháíska sjónvarpsins í Vilnius og felldu fjórtán óbreytta borgara en yfir 160 særðust.
  • 1993 - Samningurinn um Evrópskt efnahagssvæði (EES) var staðfestur á Alþingi.
  • 1998 - Alfredo Ormando kveikti í sér á torginu við Péturskirkjuna í Róm í mótmælaskyni við afstöðu kirkjunnar til samkynhneigðar.
  • 2001 - 800 létust þegar jarðskjálfti reið yfir El Salvador.
  • 2002 - Forseti Bandaríkjanna, George W. Bush, féll í yfirlið eftir að saltkringla stóð í honum.
  • 2005 - Myndir af Harry Bretaprins klæddum í nasistabúning á grímuballi voru fordæmdar.
  • 2007 - Gríska skipið Server brotnaði í tvennt úti fyrir strönd Noregs. Um 200 tonn af hráolíu láku í sjóinn.
  • 2009 - Ólafur Þór Hauksson var ráðinn sérstakur saksóknari.
  • 2012 - Ítalska skemmtiferðaskipið Costa Concordia strandaði við eyjuna Giglio og sökk vegna aðgæsluleysis skipstjóra. 32 farþegar létust.
  • 2018 - Naqeebullah Mehsud var myrtur af lögreglumönnum í Karachi í Pakistan. Morðið leiddi til víðtækra mótmæla gegn því að lögregla dræpi fólk án dóms og laga.
  • 2021 - Guðmundur Felix Grétarsson fékk græddar hendur á sig í Frakklandi, 23 árum eftir slys þar sem hann missti báðar hendur.
Remove ads

Fædd

Remove ads

Dáin

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads