George Weah

Forseti Líberíu From Wikipedia, the free encyclopedia

George Weah
Remove ads

George Manneh Oppong Weah (f. 1. október 1966) er líberískur stjórnmálamaður og fyrrum knattspyrnumaður. Weah var forseti Líberíu frá 2018 til 2024.

Staðreyndir strax Forseti Líberíu, Varaforseti ...
Remove ads

Æviágrip

George Weah fæddist í Monróvíu, höfuðborg Líberíu, þann 1. október árið 1966. Hann lék ungur með fjórum fótboltafélögum í Líberíu, þar á meðal Invincible Eleven,[1] en gekk síðan í fótboltalið í Kamerún þar sem hann varð meistari í fyrsta skipti árið 1988. Eftir velgengni sína í Kamerún fór Weah til Mónakó og varð þar bikarmeistari í knattspyrnu með liðinu AS Monaco FC árið 1991. Árið 1993 varð hann bikarmeistari með liðinu Paris Saint-Germain og síðan franskur meistari árið 1994. Weah þakkaði frama sinn þjálfaranum Arsène Wenger, sem hann sagði að hefði gert sig að þeim knattspyrnumanni sem hann væri.[2]

Weah vakti mikla athygli í Frakklandi með frammistöðu sinni hjá Paris Saint-Germain og því fór svo að ítalska knattspyrnufélagið AC Milan keypti hann til liðs við sig árið 1995. Hann fyllti þar í skarðið fyrir Marco van Basten, sem hafði neyðst til að hætta knattspyrnuferli sínum langt fyrir aldur fram vegna meiðsla. Weah náði mikilli velgengni sem leikmaður hjá AC Milan og vann sér orðstír sem eins konar leiðtogi hinna 350 afrísku knattspyrnumanna sem þá léku í Evrópu.[2] Árið 1995 vann Weah Gullknöttinn og var valinn besti knattspyrnumaður heims.[3]

Weah efnaðist vel á knattspyrnuferli sínum og varð annálaður fyrir örlæti og höfðingsskap í heimalandi sínu. Meðal annars greiddi Weah fyrir ferðakostnað og búninga á líberíska fótboltalandsliðið þegar það var gjaldþrota svo það gæti tekið þátt í Afríkukeppninni í knattspyrnu. Einnig fjármagnaði Weah byggingu barnaspítala í Líberíu og stofnun ungliðadeildarinnar Junior Professionals.[2]

Stjórnmálaferill

Weah lauk knattspyrnuferli sínum árið 2003 og hóf þátttöku í stjórnmálum Líberíu. Hann bauð sig fram í forsetakosningum Líberíu árið 2005[3] og náði mestu fylgi í fyrri umferð kosninganna en tapaði í seinni umferðinni fyrir Ellen Johnson Sirleaf. Þrátt fyrir miklar vinsældir í Líberíu var Weah meðal annars gagnrýndur fyrir að vera reynslulaus og ómenntaður og fyrir að hafa ekki skýra stefnu um framtíð landsins.[4] Á næstu árum eftir kosningarnar ákvað Weah því að afla sér menntunar og gekk í DeVry-háskóla í Miami, þar sem hann nam viðskiptafræði.[5][6]

Weah var kjörinn á öldungadeild líberíska þingsins árið 2014. Sem þingmaður var hann hins vegar gagnrýndur fyrir að mæta sjaldan á þingfundi og standa ekki fyrir neinum frumvörpum. Weah bauð sig aftur fram til forseta Líberíu árið 2017 og vann í þetta sinn öruggan sigur í seinni umferð gegn sitjandi varaforseta landsins, Joseph Boakai.[4] Weah tók við forsetaembættinu af Sirleaf þann 22. janúar árið 2018 og var þetta í fyrsta skipti í um sjötíu ár sem friðsamleg stjórnarskipti fóru fram í Líberíu.[7]

Varaforseti Weah var Jewel Taylor, fyrrverandi eiginkona Charles Taylor, fyrrum forseta Líberíu sem situr í fangelsi í Bretlandi vegna stríðsglæpa. Valið á Jewel Taylor var umdeilt vegna tengsla hennar við fyrrverandi forsetann og gagnrýnendur hennar lýstu yfir áhyggjum af því að Charles Taylor gæti haft áhrif á stöðu mála í Líberíu úr fangelsi í gegnum hana. Weah sagði Jewel Taylor hæfa konu og að það gerði Líberíu gott að hafa konu sem varaforseta.[8]

Weah bauð sig fram til endurkjörs í forsetakosningum Líberíu árið 2023 en tapaði í seinni umferð fyrir Joseph Boakai, sem hann hafði sigrað fimm árum fyrr. Weah viðurkenndi ósigur eftir kosningarnar.[9]

Remove ads

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads