Jack Nicholson
bandarískur leikari From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
John Joseph Nicholson (f. 22. apríl 1937 í Neptune, New Jersey), best þekktur sem Jack Nicholson, er bandarískur leikari.
Remove ads
Ævi
Yngri ár
Nicolson fæddist á Jersey Shore Medical Center í Neptune, New Jersey. Móðir hans hét June Frances Nicholson (betur þekkt sem June Nilson) sem starfaði sem fatafella.[1] Þann 16. október 1936, 6 mánuðum áður en Nicholson fæddist hafði June gifst Donald Furcillo í Elkton, Maryland.[2] Þó svo að Donald Furcillo hafi staðfest að hann sé faðir Nicholson heldur Patrick McGilligan því fram að raunverulegi faðir Nicholsons sé Eddie King, umboðsmaður June.[3] Nicholson hefur neitað að úr sér verði skoðað DNA-sýni til að athuga hver hans raunverulegi faðir sé.
Móðir June, Ethel, krafðist þess að taka Nicholson að sér í fóstur svo að June gæti einbeitt sér að starfsferli sínum.[3] Nicholson hélt að afi hans og amma, Ethel May Rhoads og John J. Nicholson, væru foreldrar hans. Nicholson komst að því að svo var ekki árið 1974, þegar hann var 37 ára gamall. Blaðamaður frá „Time Magazine“ komst að þessu við skrif á grein um líf Nicholsons. Þá höfðu bæði móðir hans og amma látist, en þær voru þær einu sem vissu hver raunverulegi faðir hans var.[4]
Nicholson ólst upp kaþólskur,[5] en í viðtali við Vanity Fair árið 1992 sagðist hann ekki trúa á Guð enn.[6]
Upphaf leiklistarferils
Þegar Nicholson flutti til Hollywood var honum boðið starf hjá teiknimyndarisanum Hanna-Barbera, en hann neitaði. Hann vildi heldur verða leikari.[7]
Nicholson hóf feril sinn sem leikari, handritshöfundur og kvikmyndaframleiðandi. Hann starfaði hjá og með Roger Corman, ásamt öðrum. Hann skrifaði handritin og lék lítil hlutverk í myndunum The Cry Baby Killer (1958), The Little Shop of Horrors (1960), The Raven (1963) og The Terror (1963). Í The Terror vann hann með Sandra Knight, sem hann giftist síðar.
Leiðin til frama
Nicholson hlaut sinn fyrsta Óskar fyrir leik sinn í kvikmyndinni One Flew Over the Cuckoo's Nest sem besti leikari í aðalhlutverki árið 1975. Aðrar stórar kvikmyndir sem Nicholson hefur leikið í eru The Shining (1980), Batman (1989), As Good as It Gets (1997), About Schmidt (2002), Anger Management (2003), The Departed (2006)
Einkalíf
Samkvæmt tímaritinu Maxim hefur Nicholson sofið hjá yfir 2.000 kvenmönnum[8] Hann á 5 börn með 4 mismunandi konum en hefur aðeins verið giftur einu sinni.[9]
Börn hans eru:
- Jennifer Nicholson (f. 1963) með Sandra Knight (giftur frá 17. júní 1962 – 8. ágúst 1968)
- Caleb Goddard (f. 1970) með Susan Anspach.
- Honey Hollman (f. 1981) með Winnie Hollman.
- Lorraine Nicholson (f. 1990) og Raymond Nicholson (f. 1992) með Rebecca Broussard.
Lengsta sambandið hans spannaði yfir 17 ára tímabil, en það var með leikkonunni Anjelica Huston, dóttir kvikmyndaleikstjórans John Huston. Sambandinu lauk þegar Anjelicu bárust fréttir af því að Rebecca Broussard væri ólétt eftir Jack.
Remove ads
Verðlaun og tilnefningar
Óskarinn

Nicholson hefur verið tilnefndur fyrir leik (aðal- eða aukahlutverk) á fimm mismunandi áratugum: 7. áratug 20. aldar, 8. áratug 20. aldar, 9. áratug 20. aldar, 10. áratug 20. aldar og 1. áratug 21. aldar. Aðeins einn leikari hefur afrekað það sama, Michael Caine.
Nicholson hefur verið tilnefndur 12 sinnum (8 sinnum fyrir aðallhlutverk og 4 sinnum fyrir aukahlutverk). Hann hefur fengið flestar tilnefningar karlleikara í sögu Óskarsins. Hann hefur unnið Óskarinn samtals þrisvar sinnum.
- Tilnefndur: Besti leikari í aukahlutverki, Easy Rider (1969)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki, Five Easy Pieces (1970)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki, The Last Detail (1973)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki, Chinatown (1974)
- Hlaut: Besti leikari í aðalhlutverki, One Flew Over the Cuckoo's Nest (1975)
- Tilnefndur: Besti leikari í aukahlutverki, Reds (1981)
- Hlaut: Besti leikari í aukahlutverki, Terms of Endearment (1983)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki, Prizzi's Honor (1985)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki, Ironweed (1987)
- Tilnefndur: Besti leikari í aukahlutverki, A Few Good Men (1992)
- Hlaut: Besti leikari í aðalhlutverki, As Good as It Gets (1997)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki, About Schmidt (2002)
BAFTA-verðlaunin
- Tilnefndur: Besti leikari í aukahlutverki, Easy Rider (1970)
- Hlaut: Besti leikari í aðalhlutverki, The Last Detail (1975)
- Hlaut: Besti leikari í aðalhlutverki, Chinatown (1975)
- Hlaut: Besti leikari í aðalhlutverki, One Flew Over the Cuckoo's Nest (1977)
- Hlaut: Besti leikari í aukahlutverki, Reds (1983)
- Tilnefndur: Besti leikari í aukahlutverki, Batman (1990)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki, About Schmidt (2003)
- Tilnefndur: Besti leikari í aukahlutverki, The Departed (2007)
Golden Globe-verðlaunin
- Tilnefndur: Besti leikari í aukahlutverki, Easy Rider (1969)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki (drama), Five Easy Pieces (1970)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki (drama), Carnal Knowledge (1971)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki (drama), The Last Detail (1973)
- Hlaut: Besti leikari í aðalhlutverki (drama), Chinatown (1974)
- Hlaut: Besti leikari í aðalhlutverki (drama), One Flew Over the Cuckoo's Nest (1975)
- Tilnefndur: Besti leikari í aukahlutverki, Reds (1981)
- Hlaut: Besti leikari í aukahlutverki, Terms of Endearment (1983)
- Hlaut: Besti leikari í aðalhlutverki (tónlistar-/gamanmynd), Prizzi's Honor (1985)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki (drama), Ironweed (1987)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki (tónlistar-/gamanmynd), Batman (1989)
- Tilnefndur: Besti leikari í aukahlutverki, A Few Good Men (1992)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki (drama), Hoffa (1992)
- Hlaut: Besti leikari í aðalhlutverki (tónlistar-/gamanmynd), As Good as It Gets (1997)
- Hlaut: Cecil B. DeMille-verðlaunin (1999)
- Hlaut: Besti leikari í aðalhlutverki (drama), About Schmidt (2002)
- Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki (tónlistar-/gamanmynd), Something's Gotta Give (2003)
- Tilnefndur: Besti leikari í aukahlutverki, The Departed (2006)
Screen Actors Guild-verðlaunin
- Hlaut: Besti leikari í aðalhlutverki, As Good as It Gets (1997)
AFI-verðlaunin
Árið 1994 hlaut Nicholson AFI-verðlaunin fyrir leik um ævina.
Remove ads
Kvikmyndaferill
Tilvísanir
Tenglar
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads