From Wikipedia, the free encyclopedia
Fossafjöll (Cascade Range á ensku) eru fjallgarður sem liggur frá suðurhluta Bresku Kólumbíu til norðurhluta Kaliforníu í vesturhluta Norður-Ameríku. Fjöllin eru hluti af Eldhringnum á Kyrrahafi sem er eldvirkt svæði. Hæsta fjallið er Mount Rainier í Washington-fylki og er 4392 metrar [1].
Hæstu fjöllin eru eldkeilur sem rísa hátt yfir umhverfið og auk Mount Rainier eru meðal annars áberandi: Mount Baker og Mount Adams (Washington fylki), Mount Hood (hæsta fjall Oregon), Mount McLoughlin (Oregon) og Mount Shasta (fimmta hæsta fjall Kaliforníu). Í norðurhluta fjallanna eru vernduð svæði eins og North Cascades-þjóðgarðurinn, í suðri eru Crater Lake-þjóðgarðurinn og Lassen Volcanic-þjóðgarðurinn. Elsta heimild um notkun á nafninu Fossafjöll (Cascade Range) er frá breska grasafræðingnum David Douglas í byrjun 19. aldar.
Í vesturhlíðum Fossafjalla vaxa tré eins og degli, marþöll og ryðelri. Í austurhlíðunum þar sem þurrara er, vaxa í ríkara mæli gulfura, klettafura, risalerki, fjallaþöll, fjallaþinur, eðalþinur, fjallalerki og mýralerki.
Svartbjörn, sléttuúlfur, rauðgaupa, fjallaljón, bjór, hjartardýr, vapítihjörtur og elgur eru meðal spendýra. Úlfur hefur numið land að nýju í fjöllunum Bandaríkjamegin. Nokkrir tugir grábjarna eru á svæðinu.
Síðustu gos í fjallgarðinum eru gos í Lassen Peak (Kaliforníu) sem gaus frá 1914 til 1921 og gos í Mount St. Helens (Washington-fylki) árið 1980. Smágos í St. Helens hafa verið árin 2004-2008. Af eldfjöllum í Fossafjöllum hefur St. Helens gosið tíðast síðustu 10 þúsund árin.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.