1630
ár From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Árið 1630 (MDCXXX í rómverskum tölum) var 30. ár 17. aldar sem hófst á þriðjudegi samkvæmt gregoríska tímatalinu en föstudegi samkvæmt júlíska tímatalinu sem er tíu dögum á eftir.
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Ísland
- 21. febrúar - Jarðskjálftar hófust á Suðurlandi og ollu nokkru tjóni. Hveravirkni í Biskupstungum breyttist. Hrundu margir bæir í Árnessýslu, fórust þar menn nokkrir og fénaður. Gerði og mikið tjón í Rangárvallasýslu. Urðu 6 menn undir húsum fyrir austan Þjórsá.
- 24. febrúar - Skálholtsstaður brann til grunna.
- Gísli Hákonarson lét af embætti lögmanns sunnan og austan.
Fædd
Dáin
- 28. febrúar - Herluf Daa, hirðstjóri á Íslandi (f. 1565).
- 28. desember - Oddur Einarsson biskup í Skálholti (f. 1559).
Erlendis

- 22. febrúar - Frumbyggjar Ameríku kynntu poppkorn fyrir enskum landnemum.
- Mars - Kósakkar gerðu uppreisn í Pólsk-litáíska samveldinu í nútíma-Úkraínu.
- 17. maí -
- 20. maí - Embætti þjóðminjavarðar Svíþjóðar var stofnað.
- 29. maí - Þrjátíu ára stríðið: Orrustan um Villabuona í Langbarðalandi. Heilaga rómverksa keisaradæmið vann sigur á Feneyingum og Frökkum sem misstu yfir 4.000 menn.
- 25. júní - Gústaf 2. Adolf steig á land með lið sitt í Rügen til að taka þátt í Þrjátíu ára stríðinu.
- 9. júlí - Sænski herinn lagði borgina Stettin undir sig.
- 18. júlí - Karl 1. Gonzaga gafst upp fyrir keisarahernum undir stjórn Jóhanns af Aldringen sem rændi Mantúu í kjölfarið.
- 13. ágúst - Albrecht von Wallenstein var settur af sem hershöfðingi.
- 25. ágúst - Portúgalar biðu ósigur fyrir Senarat konungi á Sri Lanka.
- Ágúst - Svíar gerðu bandalag við borgina Magdeburg.
- 17. september - Borgin Boston í Bandaríkjunum var stofnuð af breskum landnemum.
- 10.-11. nóvember - Dagur flónanna: Misheppnuð tilraun Maríu af Medici til að velta Richelieu kardinála úr sessi.
- 13. nóvember - Svíar sigruðu her keisarans í orrustunni við Falkenberg.
- 25. desember - Svíar sigruðu her keisarans í orrustunni við Marwitz.
Ódagsettir atburðir
- Paramaríbó í Súrínam var stofnuð af breskum landnemum.
- Tvö hundruð Portúgalir voru drepnir í uppreisn innfæddra í Monomotapa í Austur-Afríku.
- Torgið í Covent Garden í London var byggt.
Remove ads
Fædd
- 29. maí - Karl 2. Englandskonungur (d. 1685).
- 13. september - Olof Rudbeck, sænskur vísindamaður. (d. 1702)
- Josiah Child, breskur hagfræðingur (d. 1699)
- Stenka Rasín, uppreisnleiðtogi Don-Kósakka (d. 1671)
Dáin
- 26. janúar - Henry Briggs, enskur stærðfræðingur (f. 1561).
- 25. september - Ambrogio Spinola, herforingi frá Genúa. (f. 1569)
- 15. nóvember - Johannes Kepler, þýskur stærðfræðingur og stjörnufræðingur (f. 1571).
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads