Þöll (tré)
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Þöll (eða tsuga,[1] úr japönsku 栂 eða ツガ , sem er nafn Tsuga sieboldii) er ættkvísl barrtrjáa. Almennt heiti þallar á ensku er hemlock er dregið af líkindum með lykt af krömdum blöðum þess við lykt hinar óskyldu jurtar Conium maculatum eða gulrætur. Tekið skal fram að tegundir Tsuga eru ekki eitraðar.[2]
Tvær tegundirnar eru lítið eitt ræktaðar á Íslandi: marþöll og fjallaþöll.[3] Átta til tíu tegundir eru taldar til ættkvíslarinnar (eftir höfundum), með fjórar tegundir í Norður-Ameríku og fjórar til sex í Austur-Asíu.[4][5][6][7][8]

Remove ads
Vistfræði
Allar tegundirnar eru vel aðlagaðar (og takmarkaðar af) tiltölulega röku og svölu loftslagi með mikilli úrkomu, svölum sumrum og góðu aðgengi að vatni; þær eru einnig aðlagaðar að miklum eða mjög miklum snjó og þola klakamyndun (á greinum) betur en flest önnur tré.[4][6] Þallir þola betur mikinn skugga en flestar aðrar tegundir, hinsvegar eru þau mjög viðkvæm fyrir þurrki.[9]
Nytjar

Viður þalla er mikilvægur í timburiðnaði, sérstaklega í viðarmassa. Margar tegundir eru notaðar í garða. Börkurinn er einnig notaður til sútunar á leðri. Barr þalla er stundum notað til í te og ilmvötn.
Tegundir
Viðurkenndar tegundir:[10][11][12]
- Tsuga canadensis Skógarþöll – Austur-Kanada, austurhluti Bandaríkjanna
- Tsuga caroliniana Fagurþöll – Suður-Appalasíufjöll
- Tsuga chinensis Kínaþöll – megnið af Kína ásamt Tíbet og Tævan
- Tsuga diversifolia Skuggaþöll - Norður-Japan (Honshu, Kyushu)
- Tsuga dumosa – Himalaja, Tíbet, Yunnan, Sichuan
- Tsuga forrestii – Sichuan, Yunnan, Guizhou
- Tsuga heterophylla Marþöll – Vestur-Kanada, norðvesturhluti Bandaríkjanna
- Tsuga × jeffreyi – Breska Kólumbía, Washington
- Tsuga mertensiana Fjallaþöll – Alaska, Breska Kólumbía, vesturhluti Bandaríkjanna
- Tsuga sieboldii – Japan
- Tsuga ulleungensis – Ulleungdo-eyja, Kóreu[13]
Áður meðtaldar
Fluttar í aðrar ættkvíslir:[10] Cathaya, Keteleeria, Nothotsuga, Picea, Pseudotsuga og Taxus
- T. ajanensis – Picea jezoensis
- T. argyrophylla – Cathaya argyrophylla
- T. balfouriana – Picea likiangensis var. rubescens
- T. japonica – Pseudotsuga japonica
- T. lindleyana – Pseudotsuga menziesii var. glauca
- T. longibracteata – Nothotsuga longibracteata
- T. macrocarpa – Pseudotsuga macrocarpa
- T. mairei – Taxus mairei
- T. roulletii – Keteleeria evelyniana
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads