Barrtré

From Wikipedia, the free encyclopedia

Barrtré
Remove ads

Barrtré eru plöntur af ætt berfrævinga (Pinophyta). Flest eru þau sígræn.

Staðreyndir strax Barrtré Tímabil steingervinga: Moscovian til nútíma, Vísindaleg flokkun ...

Barrskógabeltið eða taiga á erlendum málum, þekur stórt svæði á norðurhveli jarðar, aðallega í Rússlandi og Kanada. Tiltölulega fáar tegundir trjágróðurs þekja mikil svæði í norðlægum barrskógum. Þær eru af fjórum meginættkvíslum; lerki (Larix), greni (Picea), þinur (Abies) og fura (Pinus). Í Norður-Ameríku eru tvær tegundir af þin og tvær tegundir af greni ríkjandi en í Skandinavíu og vestur-Rússlandi er skógarfuran (Pinus sylvestris) afar útbreidd. [1]

Stærsta tré í heimi, fjallarauðviðurinn (Sequoiadendron giganteum, áður þekkt sem risafura) er barrtré og einnig það hæsta; strandrauðviður (Sequoia sempervivens).[2]

Remove ads

Lýsing

Barrtré hafa löng og mjó, nálarlaga eða hreisturlaga laufblöð sem eru kölluð barr. Barrið er í raun upprúlluð laufblöð. Flest barrtré vaxa meira upp en til hliðar og eru því oft eins og keila í laginu. Barrtré þurfa ekki eins mikið vatn og lauftré og geta því vaxið þar sem lauftré þrífast ekki. Sumt barr hefur vaxkennda húð á yfirborðinu sem verndar það.

Barr inniheldur líka ýmis efni sem virka eins og frostlögur. Það þolir því vel kulda og flest barrtré halda því barrinu á veturna. Trén eru þess vegna græn á litinn allan ársins hring. Margar mismunandi gerðir eru til af barrtrjám.[3]

Á Íslandi eru fura, greni og lerki algengust. Lerki er sérstakt af því að það fellir barrið á haustin. Eina upprunalega barrtréð eftir síðustu ísöld á Íslandi er einir sem, ólíkt flestum öðrum barrtrjám, myndar ekki alvöru köngla. Ýmsar tegundir hafa verið reyndar í skógrækt.[4]

Remove ads

Listi barrtrjáa sem ræktuð hafa verið á Íslandi

(Listinn er ekki tæmandi)

[5]

Remove ads

Tengt efni

Lauftré

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads