1611
ár From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Árið 1611 (MDCXI í rómverskum tölum) var ellefta ár 17. aldar og hófst á laugardegi samkvæmt gregoríska tímatalinu en á þriðjudegi samkvæmt júlíska tímatalinu sem er tíu dögum á eftir.
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |
Ísland
Ódagsett
- Morðbréfamálið: Guðbrandur Þorláksson, Hólabiskup, stefndi lögréttumanninum Jóni Ólafssyni fyrir falsanir og vændi Jón Sigurðsson, lögmann, um hórdómsbrot. Honum var gert að sættast við þann síðarnefnda á Alþingi um sumarið.
- Jón lærði Guðmundsson kvað Fjandafælu til að kveða niður drauga sem stunduðu grjót- moldar- og beinakast á Stað á Snæfjallaströnd.
Fædd
Dáin
Opinberar aftökur
- Ónafngreindur maður tekinn af lífi fyrir morð framið í Steingrímsfirði, Strandasýslu.
- Tveir menn, ónafngreindir, teknir af lífi fyrir morð á syni bóndans að Vindifelli í Vopnafirði.[1]
- Sigríður Halldórsdóttir og Jón Oddsson, mágur hennar, tekin af lífi í Dalasýslu fyrir dulsmál, henni drekkt í Gerðarlæk á Ballarárþingi.[2]
Remove ads
Erlendis

- 4. mars - George Abbot varð erkibiskup í Kantaraborg.
- 19. mars - 20. mars - Uppreisnin í Moskvu: Íbúar borgarinnar risu upp gegn hermönnum Pólsk-litáíska samveldinu sem höfðu hertekið borgina. Hermennirnir lögðu eld að borginni og dóu 6-7.000 manns af þeim sökum.
- 2. maí - Jakobsbiblían var fyrst gefin út í Englandi.
- 3. maí - Kalmarófriðurinn braust út milli Danmerkur og Svíþjóðar þegar Danir settust um borgina Kalmar með 6.000 manna lið.
- 9. maí - Go-Mizunoo varð Japanskeisari.
- Júní - Tveir frísneskir stjörnufræðingar, David og Johannes Fabricius, gáfu út niðurstöður athugana sinna á sólblettum með sjónauka.
- 22. júní - Landkönnuðurinn Henry Hudson, sonur hans og sjö áhafnarmeðlimir voru skildir eftir við Hudson-flóa eftir uppreisn á skipi hans, Discovery. Þeir sjást aldrei framar.
- 17. júlí - Svíar náðu yfirráðum yfir borginni Hólmgarði í Rússlandi og héldu henni í 8 ár.
- 2. ágúst - Thomas Gates tók við stjórn virkisins í Jamestown.
- September - Thomas Dale stofnaði bæinn Henricus ásamt 350 öðrum landnemum.
- 30. október - Gústaf Adolf 2. varð konungur Svíþjóðar 16 ára gamall.
- 1. nóvember - Leikrit Shakespeares, Ofviðrið, var sýnt í fyrsta skipti í Whitehall-höll í London.
Ódagsett
- Rúdolf 2. keisari lét bróður sínum, Matthíasi, eftir konungdæmið í Bæheimi.
Fædd
- 28. janúar - Johannes Hevelius, pólskur borgarstjóri Gdańsk og kortagerðarmaður (d. 1687).
- 16. maí - Innósentíus 11. páfi (d. 1689).
- 1. september - William Cartwright, enskt leikskáld og predikari (d. 1943).
Ódagsett
- (líklega) D'Artagnan, skytta Frakkakonungs (d. 1673).
- Safi Persakonungur (d. 1642)
Dáin
- 23. júní - Henry Hudson, enskur landkönnuður.
- 20. ágúst - Tomás Luis de Victoria, spænskt tónskáld (f. 1548).
- 30. október - Karl 9., Svíakonungur (f. 1550).
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads