1670
ár From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Árið 1670 (MDCLXX í rómverskum tölum) var 70. ár 17. aldar sem hófst á miðvikudegi samkvæmt gregoríska tímatalinu en laugardegi samkvæmt júlíska tímatalinu sem er tíu dögum á eftir.
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |
Ísland
Ódagsettir atburðir
- Galdramál: Sigmundur Valgarðsson og Eyjólfur Jónsson frá Trékyllisvík voru hýddir fyrir galdra.
- Gísli Magnússon (Vísi-Gísli) skrifaði til sonar síns Björns, í Kaupmannahöfn, og biður hann um að senda sér fræ af furu, greni, eik, beyki, hör og hampi, sem og enskar kartöflur, sem þá höfðu ekki borist til Danmerkur.
Fædd
- Eyjólfur Jónsson, annálaritari (d. 1745)
Dáin
- Ketill Jörundarson, heyrari og skólameistari í Skálholtsskóla (d. 1603)
Opinberar aftökur
Remove ads
Atburðir

- 27. janúar - Aurangzeb, keisari Mógúlveldisins á Indlandi gaf skipun um að eyða öllum Hindúahofum og skólum í ríkinu.
- 9. febrúar - Kristján 5. var smurður sem konungur Danmerkur.
- 18. mars - Petar Zrinski, landstjóri Króatíu innan hins heilaga rómverska keisaradæmis, hvatti til uppreisnar gegn valdhöfunum Habsborgurum. Hann var dæmdur til dauða ásamt mági sínum.
- 29. apríl - Klemens 10. varð páfi.
- 2. maí - Hudsonflóafélagið (The Governor and Company of Adventurers of England trading into Hudson's Bay) var stofnað með konungsleyfi. Það réð stórum hluta núverandi Kanada og norður-Bandaríkjunum.
- 26. maí - Karl 2. Englandskonungur og Loðvík 14. Frakkakonungur gerðu með sér leynilegan friðarsamning þar sem Loðvík lofaði að greiða Karli 200.000 pund árlega en Karl á móti lofaði að létta á andkaþólskri löggjöf í Englandi, styðja Frakka gegn Hollendingum og snúast sjálfur til kaþólskrar trúar.
- 24. júní - Stenka Rasín réðist inn í Astrakan, rændi borgina og stofnaði þar kósakkalýðveldi.
- 11. júlí - Spánverjar og Englendingar gerðu samning um skiptingu nýlendna í Vesturheimi.
- 1.-5. september - Réttað var yfir William Penn og William Mead þar sem þeir höfðu haldið kvekaramessu í London.
- 24. nóvember - Loðvík 14. gaf út framkvæmdaleyfi fyrir byggingu öryrkjaheimilisins Les Invalides í París.
- 15. desember - Sjóræninginn Henry Morgan hóf að herja á núverandi Panama og Kólumbíu.
Ódagsettir atburðir
- Höfuðborg Malíveldisins, Niani, var rænd af mönnum frá hinu rísandi Segouveldi.
Fædd
Dáin
- 19. febrúar - Friðrik 3. Danakonungur (f. 1609).
- 23. apríl - Loreto Vittori, ítalskt tónskáld (f. 1604).
- 23. maí - Ferdinand 2. stórhertogi, hertogi stórhertogadæmisins Toskana. (f.1610)
- 15. nóvember - Comenius, tékkneskur rithöfundur (f. 1592).
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads