Laddi

íslenskur leikari, tónlistarmaður og skemmtikraftur From Wikipedia, the free encyclopedia

Remove ads

Þórhallur Sigurðsson (f. 20. janúar 1947), best þekktur sem Laddi, er íslenskur leikari, söngvari, lagahöfundur og skemmtikraftur. Hann hefur gefið út plötur, leikið í kvikmyndum og tekið þátt í miklum fjölda skemmtiþátta sem handritshöfundur og leikari, t.d Heilsubælinu, Imbakassanum og Spaugstofunni. Einnig hefur hann leikið í mörgum Áramótaskaupum og tekið þátt í að semja þau. Hann hefur skapað fjöldann allan af persónum fyrir dagskrárgerð í Sjónvarpinu og á Stöð 2, eins og Þórð húsvörð (Stundin okkar), Eirík Fjalar (Áramótaskaup 1980), Saxa lækni (Heilsubælið), Skúla rafvirkja (Allt í ganni), Magnús bónda (Spaugstofan), Ho Si Mattana, Elsu Lund (Á tali hjá Hemma Gunn), Martein Mosdal, Dengsa hafnfirðing, Jón spæjó, Skrám, og svo framvegis. Kvikmyndir sem hann hefur leikið í eru meðal annars Stella í orlofi, Stella í framboði, Magnús, Regína, Íslenski draumurinn, Jóhannes, Ófeigur gengur aftur og fleiri. Hann hefur líka starfað mikið í leikhúsi, en frægustu hlutverk hans á þeim vettvangi eru líklega Fagin í Óliver Twist og tannlæknirinn í Litlu hryllingsbúðinni.

Staðreyndir strax Fæddur, Önnur nöfn ...
Remove ads

Ferill

Laddi var í tvíeykinu Halla og Ladda ásamt bróður sínum Haraldi Sigurðssyni. Þeir bræður nutu gríðarlegra vinsælda á áttunda áratug tuttugustu aldar, þóttu ómissandi í skemmtiþáttum í sjónvarpi og gáfu út nokkrar hljómplötur með tónlist og gamanmálum. Þekktasta plata þeirra er líklega Látum sem ekkert C, sem þeir gerðu ásamt Gísla Rúnari Jónssyni árið 1976.

Laddi hóf tónlistarferil sinn sem trommari í hljómsveitinni Föxum. Hann hefur samið fjölda laga og mörg þeirra hafa náð miklum vinsældum, til dæmis „Sandalar“, „Austurstræti“ og „Búkolla“, en útgefin lög hans og textar skipta tugum. Hann starfaði um tíma með hljómsveitunum Brunaliðinu og HLH-flokknum, en mest af tónlistarefni hans hefur komið út á sólóplötum eins og Einn voða vitlaus og Deió, auk þess sem það er að finna á fjölmörgum safnplötum.

Á níunda áratugnum stofnuðu Halli og Laddi HLH-flokkinn ásamt Björgvini Halldórssyni. Hljómsveitin stældi útlit og tónlistarstíl rokktímans á 6. áratugnum og átti nokkra sívinsæla smelli eins og „Riddari götunnar“, „Seðill“ og „Í útvarpinu heyrði lag“.

Laddi tók þátt í stofnun Spaugstofunnar 1985 og starfaði með þeim hóp fyrstu árin. Hann skaut líka upp kollinum í seinni þáttum Spaugstofunnar, oftast sem gestaleikari, en veturinn 2013-14 tók hann þátt í heilli þáttaröð á Stöð 2. Hann hefur talsett mikinn fjölda teiknimynda og kvikmynda og má þar nefna Aladdín, Konung ljónanna, Múlan, Rústaðu þessu Ralph, Frosinn, Brakúla og margar fleiri. Þó var það ef til vill eftirtektarverðast þegar hann talsetti alla teiknimyndaþættina um Strumpana einn síns liðs frá 1985.

Árið 2007 setti Laddi upp sýninguna Laddi 6-tugur í Borgarleikhúsinu til að fagna sextugsafmæli sínu. Í byrjun áttu bara að vera 4 sýningar en vegna mikillar aðsóknar varð sýningin ein vinsælasta grínsýning sem sett hefur verið upp á Íslandi. Sex árum var sýningin Laddi lengir lífið sett upp í Hörpu. Þar sló Laddi enn á nýja strengi, afhjúpaði sjálfan sig og fortíð sína og leyfði áhorfendum að skyggnast inn í sálarlíf mannsins sem hafði skemmt þeim svo vel í öll þessi ár.

Remove ads

Fjölskylda

Laddi á fjóra syni: Martein Böðvar, Ívar Örn, Arnþór Ara og Þórhall, sem vann keppnina Fyndnasti maður Íslands árið 2007.[1][2]

Verk

Hljómplötur

Nánari upplýsingar Ár, Hljómplata ...

Kvikmyndir og sjónvarpsþættir

Nánari upplýsingar Ár, Kvikmynd/Þáttur ...

Talsetning teiknimynda

Nánari upplýsingar Ár, Kvikmynd ...
Remove ads

Tilvísanir

Tenglar

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads