Páll Skúlason

From Wikipedia, the free encyclopedia

Remove ads

Páll Skúlason (f. 4. júní 1945 á Akureyri á Íslandi, l. 22. apríl 2015) var íslenskur heimspekingur og fyrrverandi rektor Háskóla Íslands.

Staðreyndir strax Íslensk heimspeki Heimspeki 20. aldar,Heimspeki 21. aldar, Nafn: ...

Páll lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1965. Hann stundaði nám í heimspeki við kaþólska háskólann í Louvain í Belgíu og lauk þaðan B.A. gráðu árið 1967 og doktorsgráðu árið 1973. Doktorsritgerð Páls, sem hét Du Cercle et du Sujet: problèmes de compréhension et de méthode dans la philosophie de Paul Ricoeur, fjallaði um heimspeki franska heimspekingsins og túlkunarfræðingsins Pauls Ricœur.

Páll varð lektor í heimspeki við Háskóla Íslands árið 1971 og var skipaður prófessor árið 1975. Hann gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum við Háskóla Íslands. Páll var þrisvar sinnum deildarforseti Heimspekideildar (1977-1979, 1985-1987 og 1995-1997) og rektor Háskólans 1997-2005.

Páll var meðal stofnenda Norrænu heimspekistofnunarinnar og í stjórn hennar frá 1980. Hann var formaður Félags áhugamanna um heimspeki 1981-1986.

Remove ads

Helstu rit

  • 1975 Hugsun og veruleiki
  • 1987 Pælingar
  • 1989 Pælingar II
  • 1990 Siðfræði
  • 1991 Sjö siðfræðilestrar
  • 1994 Menning og sjálfstæði
  • 1995 Í skjóli heimspekinnar
  • 1998 Umhverfing
  • 1999 Saga and Philosophy
  • 2001 Le cercle du sujet dans la philosophie de Paul Ricoeur
  • 2005 Hugleiðingar við Öskju - um samband manns og náttúru

Heimild

  • „Vefur Páls Skúlasonar“. Sótt 10. apríl 2006.

Tenglar

  Þessi heimspekigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads