4. júní

dagsetning From Wikipedia, the free encyclopedia

Remove ads

4. júní er 155. dagur ársins (156. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 210 dagar eru eftir af árinu.

MaíJúníJúl
SuÞrMiFiLa
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930
2025
Allir dagar

Atburðir

  • 780 f.Kr. - Fyrsti sólmyrkvi sögunnar var skráður í Kína.
  • 1133 - Innósentíus 2. páfi krýndi Lóthar 3. keisara hins Heilaga rómverska ríkis.
  • 1134 - Orrustan við Fótavík nálægt Lundi milli Níelsar Danakonungs og Eiríks eimuna átti sér stað.
  • 1561 - Eldingu sló niður í Pálskirkjuna í London og hún stórskemmdist í eldsvoða í kjölfarið.
  • 1629 - Skip Hollenska Austur-Indíafélagsins, Batavia, strandaði á rifi undan vesturströnd Ástralíu.
  • 1666 - Leikritið Mannhatarinn eftir Moliére var frumflutt í Théâtre du Palais-Royal í París.
  • 1738 - Georg 3. varð konungur Bretlands.
  • 1745 - Austurríska erfðastríðið: Friðrik mikli gjörsigraði austurríska herinn í orrustunni við Hohenfriedberg.
  • 1794 - Breskar hersveitir náðu Port-au-Prince á Haítí á sitt vald.
  • 1832 - Tveir Íslendingar voru skipaðir fulltrúar á þing Eydana, en það voru íbúar eyja, sem heyrðu undir Danmörku. Fyrstu fulltrúar Íslands voru þeir Finnur Magnússon prófessor og Lorentz Angel Krieger stiftamtmaður.
  • 1896 - Henry Ford prufukeyrði fyrsta bílinn sem hann hannaði (þetta var jafnframt fyrsti bíllinn sem hann keyrði).
  • 1917 - Fyrsta afhending Pulitzerverðlaunanna fór fram.
  • 1919 - Bandaríkjaþing samþykkti að breyta Stjórnarskrá Bandaríkjanna svo konur nytu kosningaréttar. Þá sendi þingið það til fylkja Bandaríkjanna til staðfestingar.
  • 1924 - Fyrstu íslensku lögin um ríkisskuldabréf voru sett.
  • 1926 - Robert Earl Hughes sem setti met sem þyngsti maður í heiminum, fæddist
  • 1928 - Kínverski stríðsherrann Zhang Zuolin var ráðinn af dögum af japönskum njósnurum.
  • 1936 - Léon Blum varð forsætisráðherra Frakklands.
  • 1938 - Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu hófst í Frakklandi.
  • 1944 - Hornsteinn var lagður að Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Skólinn var tekinn í notkun í október 1945.
  • 1959 - Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, var stofnað.
  • 1960 - Litla kaffistofan í Svínahrauni á Íslandi var stofnuð.
  • 1967 - Reykjavíkurganga var haldin til að minna á baráttuna gegn erlendri hersetu.
  • 1970 - Tonga hlaut sjálfstæði frá Bretlandi.
  • 1973 - Donald Wetzel, Tom Barnes og George Chastain fengu einkaleyfi á nettengdum hraðbanka.
  • 1977 - Hornsteinn var lagður að Hrafnistu í Hafnarfirði.
  • 1979 - Liðþjálfinn Jerry Rawlings steypti herforingjanum Fred Akuffo af stóli í Gana.
  • 1983 - Öll eintök af fyrstu tveimur tölublöðum Spegilsins þetta ár voru gerð upptæk af sýslumanni.
  • 1984 - Bruce Springsteen gaf út sína fjórðu breiðskífu Born in the USA.
  • 1985 - Farø-brýrnar milli Sjálands og Falsturs voru opnaðar í Danmörku.
  • 1986 - Jonathan Pollard lýsti sig sekan um njósnir, en hann hafði selt leyniupplýsingar til Ísrael.
  • 1989 - Aðgerðir kínverskra stjórnvalda til að brjóta á bak aftur mótmæli á Torgi hins himneska friðar enduðu með blóðbaði.
  • 1989 - Samstaða vann yfirburðasigur í þingkosningum í Póllandi.
  • 1989 - Lestarslysið í Ufa: 575 létust þegar neistar frá lestarvögnum ollu sprengingu í lekri gasleiðslu.
  • 1991 - Fatos Nano sagði af sér sem forsætisráðherra Albaníu í kjölfar víðtækra verkfalla.
  • 1991 - Stærsta sólgos sem skráð hefur verið olli óvenjumiklum norðurljósum sem sáust allt suður til Pennsylvaníu.
  • 1992 - Elsta málverk sem boðið hefur verið upp á Íslandi var selt á uppboði í Reykjavík. Það er talið vera eftir séra Hjalta Þorsteinsson (1665-1750) og sýnir biskupshjónin Þórð Þorláksson og Guðríði Gísladóttur.
  • 1993 - Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn tók til starfa í Reykjavík.
  • 1994 - Hljómsveitin HAM hélt fræga lokatónleika á Tunglinu undir yfirskriftinni HAM lengi lifi.
  • 1996 - Geimflaugin Ariane 5 sprakk eftir flugtak frá Frönsku Gvæjana. Verkefnið hafði kostað Evrópuríki 7,5 milljarða dala og tekið 11 ár.
  • 1998 - Mammì-lögin um takmörkun á eignarhaldi fjölmiðla á Ítalíu voru samþykkt.
  • 2000 - Yfir 100 fórust þegar jarðskjálfti reið yfir Súmötru.
  • 2002 - Chad Trujillo og Mike Brown uppgötvuðu reikistirnið 50000 Quaoar.
  • 2011 - Eldfjallið Puyehue-Cordón Caulle í Chile gaus og olli truflunum á flugumferð við Nýja-Sjáland.
  • 2013 - Flóðin í Evrópu 2013: 4 létust þegar árnar Saxelfur og Saale flæddu yfir bakka sína.
  • 2020 - Þjóðarsáttarstjórn Líbíu lýsti því yfir að hún hefði náð tökum á höfuðborginni Trípólí eftir að sveitir Frelsishers Líbíu hörfuðu þaðan.
  • 2020 - Þing Hong Kong samþykkti hina umdeildu Reglugerð um þjóðsöng Kína.
  • 2022 - Bajram Begaj var kjörinn forseti Albaníu af albanska þinginu.
Remove ads

Fædd

Remove ads

Dáin

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads