Listi yfir forseta Bandaríkjanna
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Eftirfarandi er listi yfir alla forseta Bandaríkjanna frá upphafi til nútímans. Á listanum eru einungis þeir sem hafa verið svarnir í embætti eftir að stjórnarskrá Bandaríkjanna var samþykkt árið 1789. Á listanum er enginn sem hefur einungis gegnt embættisverkum forseta Bandaríkjanna í fjarveru kjörins forseta samkvæmt 25. viðauka stjórnarskrár Bandaríkjanna. George H. W. Bush, Dick Cheney og Kamala Harris hafa öll sinnt embættisskyldum tímabundið í fjarveru forseta en það hefur engin áhrif á talninguna. George H. W. Bush var síðar kjörinn forseti.

Tölurnar gefa til kynna hvar í röð kjörinna forseta viðkomandi er. Til dæmis gegndi George Washington embættinu tvö kjörtímabil í röð og er talinn fyrsti forseti Bandaríkjanna, en ekki fyrsti og annar. Gerald Ford tók við embætti eftir að Richard Nixon sagði af sér og gegndi embættinu út annað kjörtímabil Nixons. Sú staðreynd að Ford var ekki kosinn í embættið hefur ekki áhrif á talninguna, sem gerir hann að 38. forseta Bandaríkjanna. Grover Cleveland og Donald Trump gengdu embættinu tvisvar en ekki tvö kjörtímabil í röð. Af þessum sökum eru 47 forsetar á listanum en eru í raun einungis 45 einstaklingar allt í allt.
Remove ads
Listi yfir forseta Bandaríkjanna
Remove ads
Sjá einnig
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads