Formúla 1 2018

From Wikipedia, the free encyclopedia

Formúla 1 2018
Remove ads

2018 FIA Formúla 1 Heimsmeistarakeppnin var 69 tímabilið af Formúlu 1 heimsmeistarakeppninni. Það er samkvæmt Fédération Internationale de l'Automobile (FIA), stjórn alþjóðlegra akstursíþrótta, hæsti flokkur í keppni bíla án yfirbyggingar yfir hjóla. Ökumenn og lið kepptu um tvö titla, annarsvega heimsmeistaratitil ökumanna og hinsvegar heimsmeistaratitil bílasmiða. Tímabilið byrjaði í mars og endaði í nóvember, það spannaði 21 kappakstur.

Thumb
Lewis Hamilton vann sinn fimmta heimsmeistaratitil
Thumb
Sebastian Vettel endaði í öðru sæti keyrandi fyrir Ferrari.
Thumb
Kimi Räikkönen endaði í þriðja sæti á sínu seinasta tímabili með Ferrari.
Thumb
Mercedes unnu sinn fimmta heimsmeistaratitil bílasmiða í röð.
Thumb
Ferrari enduðu í öðru sæti annað árið í röð.
Thumb
Red Bull Racing enduðu í þriðja sæti annað árið í röð.
Thumb
Thumb
Hér sést munurinn greinilega á McLaren bílnum frá 2017 (uppi) og 2018 bílnum (niðri) þar sem er búið að koma fyrir „halo“ í kringum ökumannsrýmið sem eykur öryggi ökumanna til muna.

Þetta var annað tímabilið í röð þar sem Mercedes og Ferrari börðust um heimsmeistaratitilinn og voru þar Lewis Hamilton og Sebastian Vettel fremstir í flokki. Þetta var í fyrsta skipti sem tveir fjórfaldir heimsmeistarar börðust um fimmta titilinn. Yfir tímabilið skiptust þeir á forystunni oft en endaði á að Hamilton vann titilinn í þriðju seinustu keppni tímabilsins í Mexíkó og Mercedes vann titil bílasmiða í keppninni eftir það. Vettel endaði 88 stigum á eftir meistaranum Hamilton og Kimi Räikkönen, liðsfélagi Vettel, endaði í þriðja. Mercedes enduðu 84 stigum á undan Ferrari og Red Bull enduðu þriðju, 152 stigum á eftir Ferrari.

Nýr öryggisbúnaður var tekin í notkun fyrir tímabilið sem kallast „halo“, það verndar ökumanninn gegn veltum eða aðskota hlutum sem gætu hafnað á ökumanninum.

Remove ads

Lið og ökumenn

Nánari upplýsingar Lið, Bílasmiðir ...

Liðsbreytingar

McLaren riftu vélasamning sínum við Honda og gerði nýjan þriggja ára samning við Renault.[2]

Toro Rosso gerðu samning um að hætta með Renault vélar og fóru yfir í vélar frá Honda, sem hluti af samningnum var Toro Rosso ökumaðurinn Carlos Sainz Jr. lánaður til Renault liðsins.[3]

Sauber endurnýjaði vélasamning sinn við Ferrari ásamt því að gera samning við Alfa Romeo svo liðið varð Alfa Romeo Sauber F1 Team.[4][5]

Mið-tímabils breytingar

Sahara Force India F1 liðið varð gjaldþrota á miðju tímabili. Racing Point UK keypti eignir liðsins og kepptu frá 13 umferðinni og út tímabilið sem Racing Point Force India F1 Team.[6]

Ökumannsbreytingar

Thumb
Thumb
Charles Leclerc (vinstri) og Sergey Sirotkin (hægri) áttu báðir frumraun sína í Formúlu 1 með Sauber og Williams hvor fyrir sig.
  • Toro Rosso gerði samning við tvo nýja ökumenn, 2016 GP2 meistarann Pierre Gasly og tvöfalda World Endurance meistarann Brendon Hartley.[7]
  • Charles Leclerc, ríkjandi Formúlu 2 meistarinn, skrifaði undir hjá Sauber sem ökumaður.[8]
  • Felipe Massa hætti eftir 15 tímabil í Formúlu 1 í lok 2017 tímabilsins. Sergey Sirotkin kom í hans stað og átti sína frumraun í Formúlu 1 með Williams.[9]
Remove ads

Umferðir

Nánari upplýsingar Umferð, Kappakstur ...


Remove ads

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads