Formúla 1 2018
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
2018 FIA Formúla 1 Heimsmeistarakeppnin var 69 tímabilið af Formúlu 1 heimsmeistarakeppninni. Það er samkvæmt Fédération Internationale de l'Automobile (FIA), stjórn alþjóðlegra akstursíþrótta, hæsti flokkur í keppni bíla án yfirbyggingar yfir hjóla. Ökumenn og lið kepptu um tvö titla, annarsvega heimsmeistaratitil ökumanna og hinsvegar heimsmeistaratitil bílasmiða. Tímabilið byrjaði í mars og endaði í nóvember, það spannaði 21 kappakstur.
Lewis Hamilton vann sinn fimmta heimsmeistaratitil
Sebastian Vettel endaði í öðru sæti keyrandi fyrir Ferrari.
Kimi Räikkönen endaði í þriðja sæti á sínu seinasta tímabili með Ferrari.
Mercedes unnu sinn fimmta heimsmeistaratitil bílasmiða í röð.
Ferrari enduðu í öðru sæti annað árið í röð.
Red Bull Racing enduðu í þriðja sæti annað árið í röð.
Þetta var annað tímabilið í röð þar sem Mercedes og Ferrari börðust um heimsmeistaratitilinn og voru þar Lewis Hamilton og Sebastian Vettel fremstir í flokki. Þetta var í fyrsta skipti sem tveir fjórfaldir heimsmeistarar börðust um fimmta titilinn. Yfir tímabilið skiptust þeir á forystunni oft en endaði á að Hamilton vann titilinn í þriðju seinustu keppni tímabilsins í Mexíkó og Mercedes vann titil bílasmiða í keppninni eftir það. Vettel endaði 88 stigum á eftir meistaranum Hamilton og Kimi Räikkönen, liðsfélagi Vettel, endaði í þriðja. Mercedes enduðu 84 stigum á undan Ferrari og Red Bull enduðu þriðju, 152 stigum á eftir Ferrari.
Nýr öryggisbúnaður var tekin í notkun fyrir tímabilið sem kallast „halo“, það verndar ökumanninn gegn veltum eða aðskota hlutum sem gætu hafnað á ökumanninum.
Remove ads
Lið og ökumenn
Liðsbreytingar
McLaren riftu vélasamning sínum við Honda og gerði nýjan þriggja ára samning við Renault.[2]
Toro Rosso gerðu samning um að hætta með Renault vélar og fóru yfir í vélar frá Honda, sem hluti af samningnum var Toro Rosso ökumaðurinn Carlos Sainz Jr. lánaður til Renault liðsins.[3]
Sauber endurnýjaði vélasamning sinn við Ferrari ásamt því að gera samning við Alfa Romeo svo liðið varð Alfa Romeo Sauber F1 Team.[4][5]
Mið-tímabils breytingar
Sahara Force India F1 liðið varð gjaldþrota á miðju tímabili. Racing Point UK keypti eignir liðsins og kepptu frá 13 umferðinni og út tímabilið sem Racing Point Force India F1 Team.[6]
Ökumannsbreytingar
Charles Leclerc (vinstri) og Sergey Sirotkin (hægri) áttu báðir frumraun sína í Formúlu 1 með Sauber og Williams hvor fyrir sig.
- Toro Rosso gerði samning við tvo nýja ökumenn, 2016 GP2 meistarann Pierre Gasly og tvöfalda World Endurance meistarann Brendon Hartley.[7]
- Charles Leclerc, ríkjandi Formúlu 2 meistarinn, skrifaði undir hjá Sauber sem ökumaður.[8]
- Felipe Massa hætti eftir 15 tímabil í Formúlu 1 í lok 2017 tímabilsins. Sergey Sirotkin kom í hans stað og átti sína frumraun í Formúlu 1 með Williams.[9]
Remove ads
Umferðir
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads