Formúla 1 2024
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
2024 FIA Formúla 1 Heimsmeistarakeppnin var 75 tímabilið af Formúlu 1 heimsmeistarakeppninni. Það er samkvæmt Fédération Internationale de l'Automobile (FIA), stjórn alþjóðlegra akstursíþrótta, hæsti flokkur í keppni bíla án yfirbyggingar yfir hjóla. Heimsmeistarakeppnin spannaði 24 kappakstra víðsvegar um heiminn. Tímabilið byrjaði í mars og lauk í desember.
Max Verstappen vann sinn fjórða titil í röð sem ökumaður Red Bull Racing-Honda RBPT.
Lando Norris endaði í öðru sæti, hans besti árangur síðan hann kom inní Formúlu 1 árið 2019, keyrandi fyrir McLaren-Mercedes.
Charles Leclerc endaði í þriðja sæti keyrandi fyrir Scuderia Ferrari.
Scuderia Ferrari endaði í öðru sæti í keppni bílasmiða.
Red Bull Racing-Honda RBPT, ríkjandi heimsmeistarar, enduðu í þriðja sæti.
Keppt var um tvo heimsmeistaratitla, annarsvega ökumanna og hinsvegar bílasmiða. Ríkjandi heimsmeistari Max Verstappen hóf tímabilið af krafti og tók 5 sigra í fyrstu 7 keppnunum en var undir pressu frá McLaren ökumanninum Lando Norris þegar fór að líða á tímabilið þar sem MCL38 McLaren bíllinn fór að skara framúr RB20 Red Bull bílnum í afköstum. Þrátt fyrir það náði Verstappen reglulega að keppa meðal fremstu bíla og tók sinn fjórða heimsmeistaratitil í röð þegar hann sigraði Las Vegas kappaksturinn. McLaren fór framúr Red Bull í keppni bílasmiða og tók sinn níunda heimsmeistaratitil bílasmiða í Abú-Dabí kappakstrinum, fyrsti titill þeirra í 26 ár. McLaren varð þá fyrsti bílasmiðurinn til að vinna titilinn fyrir utan Red Bull og Mercedes síðan Brawn vann árið 2009.
Remove ads
Lið og ökumenn
Ökumanns breytingar
Carlos Sainz Jr. þurfti að draga sig úr keppni fyrir Sádi-Arabíska kappaksturinn eftir vera greindur með botnlangabólgu.[31] Í hans stað kom varaökumaður Ferrari og Formúlu 2 ökumaðurinn Oliver Bearman, sem keppti sína fyrstu keppni í Formúlu 1.[7] Sainz kom aftur fyrir Ástralska kappaksturinn.[32] Kevin Magnussen í Haas fékk tvö refsistig fyrir að valda árekstri í Ítalska kappakstrinum, var hann þá komin með 12 refsipunkta á tólf mánuðum sem setur hann sjálfkrafa í bann í eina keppni fyrir Aserbaísjan kappaksturinn.[33] Bearman kom í hans stað í annað skipti á tímabilinu sem varaökumaður.[34] Magnussen kom aftur fyrir Singapúr kappaksturinn.[33] Bearman kom aftur í stað Magnussen í São Paulo vegna veikinda Magnussen.[35][36][37][11]
Frá og með Ítalska kappakstrinum, kom Formúlu 2 ökumaðurinn Franco Colapinto í stað Logan Sargeant hjá Williams, frumraun hans í Formúlu 1. Sargeant var sagt upp eftir slaka frammistöðu yfir tímabilið, liðsstjórinn James Vowles sagði að breytingin myndi auka líkurnar á að liðið myndi skora einhver stig fyrir lok tímabils.[38] Daniel Ricciardo var sagt upp hjá RB fyrir Bandaríska kappaksturinn eftir slaka frammistöðu á tímabilinu.[39][40] Liam Lawson kom í hans stað en hann hafði keppt eina keppni fyrir RB á 2023 tímabilinu eftir að Ricciardo slasaðist í Hollenska kappakstrinum.[41] Varaökumaðurinn Jack Doohan keppti sína fyrstu keppni í Abú-Dabí þar sem hann kom í stað Esteban Ocon hjá Alpine eftir að Ocon var sleppt frá Alpine svo hann gæti tekið prufur fyrir Haas í lok tímabils.[42]
Remove ads
Dagatal
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads