Formúla 1 2025
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
2025 FIA Formúla 1 Heimsmeistarakeppnin var 76 tímabilið af Formúlu 1 heimsmeistarakeppninni. Það er samkvæmt Fédération Internationale de l'Automobile (FIA), stjórn alþjóðlegra akstursíþrótta, hæsti flokkur í keppni bíla án yfirbyggingar yfir hjóla. Heimsmeistarakeppnin spannaði 24 kappakstra víðsvegar um heiminn. Tímabilið byrjaði í mars og lauk í desember.
Ríkjandi heimsmeistarinn Max Verstappen endaði í öðru sæti um, keyrandi fyrir Red Bull Racing-Honda RBPT.
Oscar Piastri endaði þriðji, keyrandi fyrir McLaren-Mercedes, eftir að hafa leitt mótið stóra hluta tímabilsins.
Mercedes endaði í öðru sæti í móti bílasmiða.
Red Bull Racing-Honda RBPT endaði í þriðja sæti í móti bílasmiða.
Keppt var um tvo heimsmeistaratitla, heimsmeistaratitill ökumanna og heimsmeistaratitill bílasmiða. Max Verstappen hjá Red Bull var ríkjandi heimsmeistari ökumanna. McLaren-Mercedes voru ríkjandi heimsmeistarar bílasmiða og vörðu titil sinn í Singapúr kappakstrinum þegar enn voru 6 keppnir eftir.[1] Oscar Piastri hjá McLaren hafði leitt ökumannsmótið mest allt tímabilið en missti forystuna til liðsfélaga síns Lando Norris þegar 6 keppnir voru eftir. Í seinustu keppni tímabilsins í Abú-Dabí voru þrír sem gátu unnið titilinn, báðir McLaren ökumennirnir og Max Verstappen. Lando Norris tryggði sér fyrsta heimsmeistaratitil ökumanna eftir að lenda í þriðja sæti í Abú-Dabí kappakstrinum.[2]
2025 Tímabilið var loka tímabil fyrir reglur um vélar sem höfðu verið í gildi síðan 2014[3] og reglur um yfirbyggingu bíla sem höfðu verið í gildi síðan 2022. 2025 var jafnramt seinasta árið sem svokallað DRS kerfi (e. drag reduction system) var notað sem hjálpartæki við framúrakstur en DRS hafði verið í Formúlu 1 bílum síðan 2011.[4]
2025 var seinasta tímabil Renault sem vélaframleiðandi fyrir liðið sitt Alpine, en framleiðandi ákvað að hætta framleiðslu sinni á vélum eftir 2025.[5]
Remove ads
Lið og ökumenn
Ökumanns breytingar
Eftir lélega frammistöðu í fyrstu tveimur keppnum tímabilsins var Liam Lawson færður frá Red Bull til Racing Bulls. Yuki Tsunoda var þá færður frá Racing Bulls til Red Bull og verður fyrsta keppni hans á heimavelli í japanska kappakstrinum.[6] Eftir Miami kappaksturinn skipti Alpine út Jack Doohan fyrir varaökumanninn Franco Colapinto.[7]
Remove ads
Umferðir
Remove ads
Heimildir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads
