Þjóðvegur 1

vegur sem liggur um Ísland From Wikipedia, the free encyclopedia

Þjóðvegur 1
Remove ads

Þjóðvegur 1 eða Hringvegurinn er vegur sem liggur um Ísland og tengir saman flest öll byggileg héruð á Vestur-, Norður-, Austur- og Suðurlandi. Vegurinn er samtals 1321 km á lengd og liggur um alla landshluta nema Vestfirði og Miðhálendið. Hringurinn var kláraður árið 1974 þegar Skeiðarárbrú var opnuð. Núllpunktur Hringvegarins er á sýslumörkum Skaftafellssýslnanna tveggja á Skeiðarársandi.

Vegurinn er að mestu tvíbreiður nema þar sem hann liggur í gegnum stærri bæi þar sem hann er breiðari og einnig í hluta Hvalfjarðarganganna. Lokið var að setja bundið slitlag árið 2019.

Umferð um veginn er langmest í nágrenni höfuðborgarinnar og stærri bæja eins og Akureyrar og Selfoss en fjarri þéttbýli er að finna kafla þar sem umferð er mjög lítil eða undir 100 ökutækjum á dag. Enn eru 30 einbreiðar brýr á hringveginum (2023) en árið 1990 voru þær um 140. [1]

Lengi hefur það verið vinsælt hjá íslenskum ferðamönnum að fara hringinn enda er stór hluti landsins innan seilingar frá honum. Í seinni tíð hefur leiðin öðlast meiri vinsældir meðal erlendra ferðamanna sem leigja sér bíl, taka með eigin bíl eða hjóla þessa leið.

Friðrik Þór Friðriksson gerði kvikmyndina Hringinn þar sem hann keyrði allan Hringveginn og tók það upp.

Thumb Thumb Thumb Thumb Thumb Thumb Thumb
Remove ads

Helstu ágrip í sögu Hringvegarins (listinn er ekki tæmandi)

  • 1928: Brúin yfir Hvítá í Borgarfirði hjá Hvítárvöllum reist. Síðar leyst af hólmi með tilkomu Borgarfjarðarbrúar.
  • 1930-1940: Lokið var við veginn fyrir Hvalfjörð. Þar með var komið vegasamband milli Reykjavíkur og Akureyrar.
  • 1933: Gamla Markarfljótsbrúin reist. Síðar leyst af hólmi með nýrri brú.
  • 1945-1946: Núverandi Ölfusárbrú reist eftir að sú fyrri hafði gefið sig.
  • 1947: Brúin yfir Jökulsá á Fjöllum hjá Grímsstöðum tekin í notkun. Þar með styttist leiðin milli Norðurlands og Austurlands en áður þurfti að fara um Öxarfjörð.
  • 1949-1950: Gamla brúin yfir Þjórsá reist og leysti af hólmi fyrstu Þjórsárbrúna. Síðar leyst af hólmi með nýrri brú.
  • 1952: Brúin yfir Jökulsá í Lóni reist.
  • 1958: Núverandi Lagarfljótsbrú reist.
  • 1961: Brúin yfir Hornafjarðarfljót reist.
  • 1962: Núverandi Blöndubrú á Blönduósi reist.
  • 1967: Brú yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi reist.
  • 1967: Núverandi brú yfir Jökulsá á Sólheimasandi reist.
  • 1967: Brúin yfir Eldvatn hjá Ásum reist eftir að sú fyrri hrundi. Síðar leyst af hólmi með tilkomu Kúðafljótsbrúar.
  • 1968: Núverandi brú yfir Fnjóská hjá Nesi reist. Hún leysti af hólmi gömlu Fnjóskárbrúna frá 1908.
  • 1972: Lokið var við að leggja nýjan veg milli Reykjavíkur og Selfoss og hann lagður bundnu slitlagi. Hann er enn að mestu óbreyttur.
  • 1972: Núverandi brú yfir Skjálfandafljót hjá Fosshóli reist. Hún leysti af hólmi gömlu brúna sem enn stendur.
  • 1974: Lokið var við veginn yfir Skeiðarársand og þar með síðasta hlutann af Hringveginum. Brýr voru byggðar á Skeiðará, Sandgígjukvísl og Núpsvötn sem allar töldust meðal fimm lengstu brúa landins.
  • 1979-1980: Lokið var við að byggja Borgarfjarðarbrúna, næstlengstu brú landsins. Leysti hún af hólmi veginn um Hvanneyri og Hvítárvelli.
  • 1980: Lokið var við að leggja bundið slitlag milli Selfoss ög Hvolsvallar.
  • 1981: Núverandi brú yfir Héraðsvötn byggð. Hún leysti af hólmi eldri brú á Grundarstokki.
  • 1983-1986: Vegurinn um Víkurskarð tekinn í notkun. Hann leysti af hólmi veginn um Vaðlaheiði.
  • 1986: Nýr vegur yfir leirurnar í botni Eyjafjarðar opnaður. Leysti af hólmi þrjár eldri brýr sem stóðu fyrir innan Akureyrarflugvöll.
  • 1988: Nýr og betri vegur yfir Mýrdalssand lagður. Leysti af hólmi veg sem lá inn undir Hafursey.
  • Um 1990: Lokið var við að leggja bundið slitlag á veginn fyrir Hvalfjörð og þar með milli Reykjavíkur og Borgarness.
  • 1990: Ný brú yfir Múlakvísl reist. Hana tók af síðar í jökulhlaupi árið 2011.
  • 1991-1992: Núverandi brú yfir Markarfljót tekin í notkun. Leysti af hólmi gömlu brúna frá 1933 og stytti leiðina milli Hvolsvallar og Víkur í Mýrdal nokkuð. Með þessari framkvæmd komst á bundið slitlag milli Hvolsvallar og Víkur í Mýrdal.
  • 1993: Brúin yfir Kúðafljót reist. Stytti hún leiðina milli Víkur í Mýrdal og Kirkjubæjarklausturs nokkuð.
  • 1994: Núverandi brú á Jökulsá á Dal reist og leysti af hólmi gamla brú og veg með kröppum beygjum.
  • 1994-1995: Lokið var við að leggja bundið slitlag á síðustu kaflana milli Reykjavíkur og Akureyrar.
  • 1996: Stórt jökulhlaup á Skeiðarársandi tók af brúna yfir Sandgígjukvísl, skemmdi Skeiðarárbrúna og einnig stóran hluta af veginum yfir Skeiðarársand.
  • 1996-1998: Hvalfjarðargöngin voru grafin og opnuð 1998. Leystu þau af hólmi gamla veginn fyrir Hvalfjörð. Þau voru fyrstu jarðgöngin á Hringveginum og jafnframt fyrstu neðansjávargöngin á Íslandi.
  • 1998: Ný brú yfir Sandgígjukvísl tekin í notkun í stað þeirrar sem fór í hlaupinu 1996.
  • 1999-2000: Síðasti kaflinn milli Víkur í Mýrdal og Hafnar í Hornafirði lagður bundnu slitlagi.
  • 2000: Lagður var nýr vegur í nokkurri fjarlægð frá Grímsstöðum á Fjöllum sem stytti Hringveginn nokkuð.
  • 2000: Nýr vegur um Háreksstaðaleið var tekinn í notkun í stað vegarins um Möðrudalsfjallgarða. Þar með var komin ágæt heilsársleið á milli Norðurlands og Austurlands.
  • 2003: Núverandi Þjórsárbrú var reist og leysti af hólmi brúna frá 1949/1950. Vegurinn styttist örlítið.
  • 2004-2005: Göng undir Almannaskarð grafin og opnuð 2005. Leystu þau af hólmi veginn um Almannaskarð og þar með bröttustu brekkuna á Hringveginum sem hafði 16,5% halla.
  • 2004-2008: Vesturlandsvegur frá Reykjavík og upp í Mosfellsbæ breikkaður frá tveimur akreinum í fjórar. Nokkur mislæg gatnamót reist á svipuðum tíma.
  • 2005: Nýr þriggja akreina vegur um Svínahraun og ný vegamót við Þrengslaveg tekin í notkun.
  • 2007: Nýr vegur um Norðurárdal í Skagafirði tekinn í notkun sem leysti af hólmi fjórar einbreiðar brýr.
  • 2007-2008: Vegurinn um Arnórsstaðamúla endurgerður og lagður bundnu slitlagi. Þar með var komið bundið slitlag milli Akureyrar og Egilsstaða.
  • 2008: Nýr vegur og brú um Hrútafjarðarbotn byggð. Leystu þau af hólmi einbreiða brú og gömlu brúna yfir Hrútafjarðará hjá Brú. Nýr Staðarskáli reistur vegna breytinganna.
  • 2008: Endurbættur vegur um Stafholtstungur og Norðurárdal tekinn í notkun en fyrir endurbætur var hann einn af hættulegustu köflunum á Hringveginum.
  • 2010-2011: Vegurinn um Sandskeið breikkaður úr tveimur akreinum í fjórar.
  • 2011: Brúna yfir Múlakvísl tók af í jökulhlaupi. Bráðabrigðabrú reist á um 100 klukkustundum frá því að brúna tók af.
  • 2013-2015: Vegurinn um Hellisheiði breikkaður í þrjár akreinar.
  • 2013-2018: Vaðlaheiðargöng grafin.
  • 2014: Ný brú yfir Múlakvísl reist í stað þeirrar sem tók af árið 2011.
  • 2016-2017: Ný brú yfir Morsá reist. Hún leysti af hólmi Skeiðarárbrúna sem nú stendur að mestu á þurru og orðin léleg og þarfnast viðhalds.
  • 2017: Hringvegurinn var færður af malarveginum á Breiðdalsheiði og yfir á Suðurfirðina og veginn um Fagradal en þeir voru með bundnu slitlagi.
  • 2018: Vaðlaheiðargöng opnuð. Leystu þau af hólmi veginn um Víkurskarð.
  • 2019: Lokið var við að leggja bundið slitlag á kaflann um Berufjarðarbotn. Þar með var síðasti kaflinn á Hringveginum lagður bundnu slitlagi og hægt að aka allan hringinn án þess að rekast á malarkafla, 45 árum eftir að hringnum var lokað með vígslu Skeiðarárbrúar og vegarins um Skeiðarársand.
  • 2019-2023: Vegurinn milli Hveragerðis og Selfoss breikkaður í þrjár akreinar.
Remove ads

Leiðarlýsing

Sandgígjukvísl - Kirkjubæjarklaustur (41 km)

Vegurinn liggur um Skeiðarársand, Fljótshverfi og Síðu.

Vestur-Skaftafellssýsla
  • Upphafspunktur: Sýslumörk Austur-Skaftafellssýslu og Vestur-Skaftafellssýslu skammt frá Sandgígjukvísl.
  • Súla/Núpsvötn: Brú.
  • Slóði í Núpsstaðarskóga Athyglisverður staður (illfær).
  • Lómagnúpur.
  • Núpsstaður: Bænhúsið á Núpsstað. Athyglisverður staður Lokað vegna átroðnings. Lokað
  • Brú Djúpá í Fljótshverfi: 60 m (2001).
  • 201 Vallavegur frá Brúará og aftur á Hringveginn við Brunná (1).
  • 201 Vallavegur frá Brunná og aftur á Hringveginn við Brúará (1).
  • Hverfisfljót: Brú.
  • Brunahraun
  • Orrustuhóll
  • Einbreið brú Fossálar: 36 m - einbreið (1972)
  • Dverghamrar Athyglisverður staður.
  • Foss á Síðu Athyglisverður staður.
  • Fossálar - Hörgsá: Stytting 2023 og betri vegur án blindhæða og einbreiðra brúa.
  • 202 Prestsbakkavegur frá Breiðbalakvísl, framhjá PrestsbakkaMörtungu 1.
  • Einbreið brú Breiðbalakvísl: 166 m - einbreið (1972).
  • Breiðbalakvísl: Brú.
  • Stjórnarsandur
  • Þéttbýli Kirkjubæjarklaustur.
  • Hringtorg: 203 Geirlandsvegur frá SkaftárbrúGeirlandi (Kirkjugólf Athyglisverður staður, Stjórnarfoss Athyglisverður staður). / 205 Klausturvegur frá Skaftárbrú að Kirkjubæjarklaustri.

Kirkjubæjarklaustur - Vík í Mýrdal (72 km)

Vegurinn liggur um Eldhraun og Mýrdalssand.

Vestur-Skaftafellssýsla
  • Brú Skaftárbrú á Skaftá: Tvær brýr, 20 og 26 m (2003).
  • 204 Meðallandsvegur frá Skaftárbrú niður í Landbrot og Meðalland.
  • Systrastapi.
  • Þéttbýli endar Kirkjubæjarklaustur.
  • 206 Holtsvegur frá Ytri-Dalbæ að Heiði. (Fjaðrárgljúfur Athyglisverður staður / F206 áfram að Lakagígum Athyglisverður staður.)
  • Eldhraun.
  • 208 Skaftártunguvegur frá Ásum upp í Skaftártungu. (F208 og F210 framhald af þessari leið.)
  • 204 Meðallandsvegur frá Hringveginum niður í Meðalland.
  • Brú Kúðafljót: 302 m (1993).
  • 209 Hrífunesvegur frá Laufskálavörðu um Hrífunes og áfram í Skaftártungu. Laufskálavarða Athyglisverður staður.
  • Brú Skálm: 44 m (1994).
  • 211 Álftaversvegur frá Skálm niður í Álftaver. (Liggur að 212.) Álftavershólar. Athyglisverður staður
  • Mýrdalssandur.
  • Hjörleifshöfði. Athyglisverður staður
  • Brú Múlakvísl: 162 m (2014).
  • Múlakvísl. Athyglisverður staður
  • 214 Kerlingardalsvegur frá HöfðabrekkuKerlingardal og áfram að Þakgili (lokað á veturna Lokað).
  • Þéttbýli Vík í Mýrdal.

Vík í Mýrdal - Hvolsvöllur (80 km)

Vegurinn liggur um Reynisfjall, Mýrdal, Sólheimasand/Skógasand, Eyjafjöll og Landeyjar.

Vestur-Skaftafellssýsla
  •  Um Reynisfjall og Mýrdal: Jarðgöng undir Reynisfjall og vegur um Mýrdal nær sjónum. Rekstur vegarins verður fjármagnaður með veggjöldum Veggjald.
  • Slóði frá Vík í Mýrdal upp á Reynisfjall. Einn brattasti vegur landsins. Lokað
  • Þéttbýli endar Vík í Mýrdal.
  • Reynisfjall: 119 m.y.s. hefst hér.
  • 215 Reynishverfisvegur frá Gatnabrún á Reynisfjalli, um Reynishverfi og að bílastæðinu við Reynisfjöru Athyglisverður staður.
  •  Um Gatnabrún: Nýr og endurbættur vegur með minna kröppum beygjum en áður.
  • Reynisfjall: 119 m.y.s. endar hér.
  • Mýrdalur
  • 218 Dyrhólavegur frá Litla-Hvammi um Dyrhóla og Loftsalahelli Athyglisverður staðurDyrhólaey Athyglisverður staður.
  • Brú Klifandi: 65 m (2003).
  • 219 Péturseyjarvegur frá Hringveginum vestan Klifanda umhverfis Pétursey og á Hringveginn aftur (1).
  • Pétursey.
  • 219 Péturseyjarvegur frá Hringveginum umhverfis Pétursey og á Hringveginn aftur vestan Klifanda (1).
  • 222 Mýrdalsjökulsvegur frá Hringveginum, um Ytri-Sólheima og áfram upp að Mýrdalsjökli Athyglisverður staður.
  • Sólheimasandur
  • Bílastæði og slóði að flugvélarflaki Douglas DC-35 Super Dakota sem nauðlenti árið 1973. Athyglisverður staður Slóðinn er lokaður almennri umferð. Lokað
  • 221 Sólheimajökulsvegur frá brúnni yfir Jökulsá á SólheimasandiSólheimajökli Athyglisverður staður.
  • Einbreið brú Jökulsá á Sólheimasandi: 159 m - einbreið (1967).
  • Jökulsá á Sólheimasandi: Brú.
  • Sýslumörk Vestur-Skaftafellssýslu og Rangárvallasýslu.
Rangárvallasýsla
  • Skógasandur
  • 2420 Skógavegur frá Hringveginum að Skógum Athyglisverður staður og Skógafossi Athyglisverður staður.
  • 242 Raufarfellsvegur frá Kaldaklifsá um Raufarfell, hjá veginum inn til Seljavallalaugar Athyglisverður staður og aftur á Hringveginn hjá Svaðbælisá (1).
  • 242 Raufarfellsvegur frá Svaðbælisá hjá veginum inn til Seljavallalaugar Athyglisverður staður, um Raufarfell og aftur á Hringveginn hjá Kaldaklifsá (1).
  • 243 Leirnavegur frá Svaðbælisá og á Hringveginn aftur við Steina (1).
  • Þorvaldseyri
  • 243 Leirnavegur frá Steinum og á Hringveginn aftur við Svaðbælisá (1).
  • Steinar
  • 245 Hverfisvegur frá Holti og aftur á Hringveginn hjá Írá (1).
  • 246 Skálavegur frá Hringveginum vestan Holtsár um Ásólfsskála og aftur á Hringveginn austan Hvamms (1).
  • 245 Hverfisvegur frá Hringveginum hjá Írá og aftur á Hringveginn hjá Holti (1).
  • 246 Skálavegur frá Hringveginum austan Hvamms um Ásólfsskála og aftur á Hringveginn vestan Holtsár (1).
  • 247 Sandhólmavegur frá Hvammi og aftur á Hringveginn hjá Heimalandi (1).
  • 247 Sandhólmavegur frá Heimalandi og aftur á Hringveginn hjá Hvammi (1).
  • Paradísarhellir. Athyglisverður staður
  • 249 Þórsmerkurvegur frá SeljalandiSeljalandsfossi Athyglisverður staður og áfram í áttina að gömlu Markarfljótsbrúnni. F249 liggur áfram inn í Þórsmörk Athyglisverður staður.
  • Brú Markarfljótsbrú yfir Markarfljót: 250 m (1991).
  • 254 Landeyjahafnarvegur frá Markarfljóti og niður með því til Landeyjahafnar. Ferja Ferja til Vestmannaeyja (Herjólfur).
  • 250 Dímonarvegur frá Steinmóðarbæ framhjá Stóra-Dímon og inn í Fljótshlíð. / 251 Hólmabæjavegur frá Steinmóðarbæ um Austur-Landeyjar.
  • 2418 Auravegur frá Vorsabæ að Dímonarvegi (250).
  • 253 Bakkavegur frá Affalli, um Austur-Landeyjar og að Bakkaflugvelli.
  • 255 Akureyjarvegur frá Hemlu niður Vestur-Landeyjar og að Akurey.
  • 252 Landeyjavegur frá brúnni yfir Þverá og niður með Þverá og um Vestur-Landeyjar.
  • Brú Þverá í Fljótshlíð: 54 m (2002).
  • Þéttbýli Hvolsvöllur.
  • 261 Fljótshlíðarvegur frá Hvolsvelli og inn í Fljótshlíð.

Hvolsvöllur - Hella (13 km)

Vegurinn liggur um Rangárvelli.

Rangárvallasýsla
  • Þéttbýli endar Hvolsvöllur.
  • Brú Eystri-Rangá: 44 m (1969).
  • 264 Rangárvallavegur frá Eystri-Rangá um HofKeldum Athyglisverður staður.
  • 266 Oddavegur frá Hringveginum að Odda Athyglisverður staður.
  • 267 Selalækjarvegur frá VarmadalSelalæk.
  • 264 Rangárvallavegur frá Hróarslæk um Gunnarsholt og áfram að Keldum Athyglisverður staður.
  • Þéttbýli Hella.
  • Hringtorg: Þrúðvangur / Rangárbakki.

Hella - Selfoss (36 km)

Vegurinn liggur um Ásahrepp og Flóa.

Rangárvallasýsla
  • Brú Ytri-Rangá: 84 m (1960).
  • Þéttbýli endar Hella.
  • 25 Þykkvabæjarvegur frá Ægissíðu um Safamýri og niður í Þykkvabæ.
  • 271 Árbæjarvegur frá BjargiÁrbæ.
  • 273 Bugavegur frá LyngásiVetleifsholtshverfi,
  • Þéttbýli Rauðalækur.
  • Vegamót.
  • 26 Landvegur frá Vegamótum um Holt og LandsveitGaltalæk og Heklu Athyglisverður staður. (Heldur síðan áfram sem Sprengisandsleið F26). / 275 Ásvegur frá Vegamótum um ÁshverfiSandhólaferju.
  • 281 Sumarliðabæjavegur frá Sléttalandi um Sumarliðabæ á Landveg (26).
  • 282 Ásmundarstaðavegur frá SelssandiÁsmundarstöðum.
  • 288 Kálfholtsvegur frá Einbúa um Hamra og Kálfholt og aftur á Hringveginn á Lónsheiði (1).
  • 284 Heiðarvegur frá Hringveginum að Gíslholti.
  • 288 Kálfholtsvegur frá Lónsheiði um Kálfholt og Hamra og aftur á Hringveginn hjá Einbúa (1).
  • Brú Þjórsárbrú á Þjórsá: 170 m (2003).
  • Sýslumörk Rangárvallasýslu og Árnessýslu.
Árnessýsla
  • 302 Urriðafossvegur frá Þjórsárbrú um Urriðafoss Athyglisverður staðurVillingaholti.
  • 30 Skeiða- og Hrunamannavegur frá Hringveginum um Skeið og áfram í Hrunamannahrepp.
  • Bitra.
  • 303 Ölvisholtsvegur frá KjartansstöðumÖlvisholti.
  • Þingborg
  • Aðalskurður Flóaáveitunnar.
  • 304 Oddgeirshólavegur frá Hraungerði um Stóru-ReykiOddgeirshólum.
  • 305 Villingaholtsvegur frá Hringveginum um Villingaholt og niður með Þjórsá að Fljótshólum.
  • 318 Langholtsvegur frá TúniLangholti.
  •  Brú á Ölfusá norðaustan Selfoss: Vegur utan við bæinn. Rekstur vegarins verður fjármagnaður með veggjöldum Veggjald. Verklok 2028.
  • Þéttbýli Selfoss
  • Hringtorg: 33 Gaulverjabæjarvegur frá Selfossi niður í Gaulverjabæ og áfram að Stokkseyri.
  • Vegur að Laugardælum.
  • Hringtorg Tryggvatorg: Eyrarvegur: 34 Eyrarbakkavegur frá Selfossi að Eyrarbakka.

Selfoss - Hveragerði (12 km)

Vegurinn liggur um Ölfus.

Árnessýsla
  • Brú Ölfusárbrú á Ölfusá: 132 m (1945).
  • Hringtorg: 3710 Árbæjarvegur vestri frá Selfossi að Árbæjarhverfi. / Hrísmýri.
  • Þéttbýli endar Selfoss.
  • 35 Biskupstungnabraut frá Selfossi upp í Uppsveitir Árnessýslu og að Geysi Athyglisverður staður og Gullfossi Athyglisverður staður.
  • Vegur í byggingu Selfoss - Hveragerði: Breikkun og á köflum nýr vegur sem verður byggður sem 2+1 vegur. Hliðarvegir gerðir til að fækka vegamótum. Framkvæmdir hófust 2019 og áætluð verklok eru 2023.
  • Ingólfsfjall.
  • Kögunarhóll Athyglisverður staður.
  • 374 Hvammsvegur frá Kögunarhóli um Hvamm, Gljúfur og Sogn og á Hringveginn aftur vestan Kotstrandar (1).
  • 375 Arnarbælisvegur frá Kotströnd að Ósgerði.
  • 374 Hvammsvegur frá Hringveginum vestan Kotstrandar um Sogn, Gljúfur og Hvamm og á Hringveginn aftur hjá Kögunarhóli (1).
  • Vegur að Ölfusborgum.
  • Þéttbýli Hveragerði.
  • Grænamörk að heilsuhæli Náttúrulækningafélags Íslands (NLFÍ).
  • Hringtorg: 38 Þorlákshafnarvegur um Ölfus og niður í Þorlákshöfn. / 376 Breiðamörk í miðbæ Hveragerðis og áfram upp í Reykjadal Athyglisverður staður.

Hveragerði - Reykjavík (37 km)

Vegurinn liggur um Hellisheiði, Svínahraun, Sandskeið og Lækjarbotna.

Árnessýsla
  • Þéttbýli endar Hveragerði.
  • Hellisheiði: 374 m.y.s. hefst hér (2+2 vegur í Kömbum 2+2 vegur, 2+1 vegur á heiðinni 2+1 vegur).
  • Kambar.
  • Útsýnisstaður á Kömbum Athyglisverður staður (aðeins á leið til Hveragerðis).
  • Vegur að Hellisheiðarvirkjun. Lokað
  • Hveradalabrekka.
  • Hellisheiði: 374 m.y.s. endar hér.
  • 378 Skíðaskálavegur frá Reykjafelli að Skíðaskálanum í Hveradölum Athyglisverður staður. Vegurinn liggur einnig að Hellisheiðarvirkjun.
  • 2+1 vegur 2+1 vegur að Litlu-Kaffistofu.
  • Svínahraun.
  • Mislæg vegamót ein akbraut 39 Þrengslavegur frá Svínahrauni um Þrengsli og niður í ÖlfusÞorlákshöfn.
  • Draugahlíðabrekka.
  • Litla-Kaffistofan Athyglisverður staður.
  • 2+2 vegur 2+2 vegur að Fossvöllum.
  • Sýslumörk Árnessýslu og Kjósarsýslu.
Kjósarsýsla
  • Vegur í Jósefsdal.
  • Sandskeið.
  • 417 Bláfjallavegur frá Fóelluvötnum upp í Bláfjöll Athyglisverður staður og að Þríhnúkagíg. Athyglisverður staður
  • 2+1 vegur 2+1 vegur um Lögbergsbrekku.
  •  Fossvellir - Hólmsá: Breikkun í 2+2 veg.
  • Vegur að Waldorfsskóla í Lækjarbotnum.
  • Lögbergsbrekka.
  • Tvöfaldur vegur endar
  • Gunnarshólmi
  • Vegur að Silungapolli og áfram í Heiðmörk Athyglisverður staður. Vegurinn er lokaður við mörk Heiðmerkur. Lokað
  • Hólmsá - Norðlingavað: Breikkun í 2+2 veg.
  • Mörk lögsagnarumdæmis Reykjavíkur.
Reykjavík
  • 435 Nesjavallaleið frá Geithálsi um HólmsheiðiMiðdal og áfram til Nesjavalla. Athyglisverður staður Leiðin til Nesjavalla er lokuð á veturna Lokað.
  • Heiðmerkurvegur frá Rauðhólum Athyglisverður staður í Heiðmörk Athyglisverður staður.
  • Þéttbýli Reykjavík.
  • Hringtorg: Norðlingavað inn í Norðlingaholt. / Vegbrekkur inn í Almannadal.
  • Norðlingavað - Breiðholtsbraut: Breikkun í þröngan 2+2 veg.
  • Hringtorg: 413 Breiðholtsbraut frá Rauðavatni upp í Breiðholt og áfram í Kópavog. (Tengivegur fyrir 41 til Hafnarfjarðar og Keflavíkur).
  • Breiðholtsbraut - Bæjarháls: Breikkun í 2+2 veg.
  • Mislæg vegamót tvær akbrautir : Bæjarháls inn í Árbæ / Selás / Hádegismóar.
  • 2+2 vegur 2+2 frá Bæjarhálsi að Vesturlandsvegi.
  • Mislæg vegamót tvær akbrautir : Vesturlandsvegur: 49 Nesbraut frá Smálöndum inn til Reykjavíkur. 1 víkur fyrir 49 Vegur beygir til hægri.

Reykjavík - Borgarnes (66 km)

Vegurinn liggur um Mosfellsbæ, Kollafjörð, Kjalarnes, Hvalfjarðargöng, Akrafjall, Leirársveit, Hafnarfjall og Borgarfjarðarbrú.

Reykjavík
  • 2+2 vegur 2+2 vegur frá Nesbraut (49) að Þingvallavegi (36)
  • Mislæg vegamót tvær akbrautir : Stórhöfði (aðeins á leið til Reykjavíkur).
  • Mislæg vegamót tvær akbrautir : Víkurvegur/Reynisvatnsvegur/Þúsöld: Grafarvogur/Grafarholt.
  • Hringtorg: Lambhagavegur: Úlfarsárdalur/Korputorg/Bauhaus.
  • Mislæg vegamót tvær akbrautir : Fráreinar að Bauhaus (aðeins á leið til Borgarness) og Korputorgi (aðeins á leið til Reykjavíkur).
  • Þéttbýli endar Reykjavík.
  • Mörk lögsagnarumdæmis Reykjavíkur.
Kjósarsýsla
Reykjavík
Borgarfjarðarsýsla
  • Tvöfaldur vegur endar
  • Hringtorg: 51 Akrafjallsvegur frá Hvalfjarðargöngum til Akraness.
  • 506 Grundartangavegur frá Galtarlæk að verksmiðjunum og höfninni á Grundartanga.
  • 51 Akrafjallsvegur frá Urriðaá til Akraness.
  • Þéttbýli Melahverfi í Hvalfirði.
  • 5033 Hagamelsvegur um Melahverfi og áfram að Eiðisvatni.
  • 47 Hvalfjarðarvegur frá Laxárbakka um Hvalfjarðarströnd og inn í botn Hvalfjarðar. (Varaleið fyrir Hvalfjarðargöngin).
  • 504 Leirársveitarvegur frá Leirárbrú um Leirársveit og inn í Svínadal.
  • 505 Melasveitarvegur frá Skorholti um Melasveit og aftur á Hringveginn hjá Fiskilæk (1).
  • 505 Melasveitarvegur frá Fiskilæk um Melasveit og aftur á Hringveginn hjá Skorholti (1).
  • Vegur að sumarhúsahverfi við Ölver.
  • 50 Borgarfjarðarbraut frá Seleyri til Hvanneyrar og áfram í uppsveitir Borgarfjarðar.
  • Brú Borgarfjarðarbrú yfir Borgarfjörð: 520 m (1979).
Mýrasýsla
  • Þéttbýli Borgarnes
  • Ljósastýrð gatnamót: Borgarbraut frá Brúartorgi niður í miðbæ Borgarness. 1 víkur fyrir Borgarbraut Vegur beygir til hægri.

Borgarnes - Staðarskáli (89 km)

Vegurinn liggur um Stafholtstungur, Norðurárdal og Holtavörðuheiði.

Mýrasýsla
Strandasýsla
  • Miklagil
  • Holtavörðuheiði: 407 m.y.s. endar hér.
  • Brú í Hrútafirði
  • 701 Hrútatunguvegur frá Brú í Hrútafirði, um HrútatunguStað í Hrútafirði og aftur á Hringveginn (1).
  • F586 Haukadalsskarðsvegur frá Ormsá um Haukadalsskarð og yfir í Haukadal í Dölum.
  • Staðarskáli

Staðarskáli - Blönduós (80 km)

Vegurinn liggur um Hrútafjörð, Hrútafjarðarháls, Miðfjörð, Línakradal, Víðidal, Vatnsdal og Ása.

Blönduós - Varmahlíð (51 km)

Vegurinn liggur um Langadal og Vatnsskarð.

Varmahlíð - Akureyri (94 km)

Vegurinn liggur um Blönduhlíð, Norðurárdal, Öxnadalsheiði, Öxnadal, Hörgárdal og Kræklingahlíð.

Akureyri - Reykjahlíð (83 km)

Vegurinn liggur um Vaðlaheiðargöng, Fnjóskadal, Ljósavatnsskarð, Fljótsheiði, Reykjadal, Mývatnsheiði og norðan Mývatns.

Reykjahlíð - Egilsstaðir (165 km)

Vegurinn liggur um Námaskarð, Mývatnsöræfi, Biskupsháls, Vegaskarð, Möðrudalsöræfi, Jökuldalsheiði, Jökuldal, Lágheiði, Fellabæ og Lagarfljót.

Egilsstaðir - Reyðarfjörður (31 km)

Vegurinn liggur um Fagradal.

Reyðarfjörður - Fáskrúðsfjörður (16 km)

Vegurinn liggur um Reyðarfjörð, Fáskrúðsfjarðargöng og Daladal.

Fáskrúðsfjörður - Stöðvarfjörður (26 km)

Vegurinn liggur um Fáskrúðsfjörð, Gvendarnes og Stöðvarfjörð.

Stöðvarfjörður - Breiðdalsvík (17 km)

Vegurinn liggur um Stöðvarfjörð, Kambaskriður og Breiðdalsvík.

Breiðdalsvík - Djúpivogur (60 km)

Vegurinn liggur um Streitishvarf og Berufjörð.

Djúpivogur - Höfn í Hornafirði (98 km)

Vegurinn liggur um Hamarsfjörð, Álftafjörð, Hvalnes- og Þvottárskriður, Lón, Almannaskarðsgöng og Skarðsfjörð.

Höfn í Hornafirði - Jökulsárlón (75 km)

Vegurinn liggur um Hornafjörð, Mýrar, Suðursveit og Breiðamerkursand.

Austur-Skaftafellssýsla
  •  Um Hornafjarðarfljót: Gerð vegar nær Höfn í Hornafirði yfir ósa Hornafjarðarfljóts. Styttir hringveginn um 11 kílómetra. Verklok lok árs 2025.
  • 982 Flugvallarvegur Hornafirði frá Seljavöllum Hornafjarðarflugvelli.
  • Þéttbýli Nesjahverfi í Hornafirði.
  • Þéttbýli endar Nesjahverfi í Hornafirði.
  • Þveit.
  • Einbreið brú Hoffellsá: 60 m - einbreið (1960).
  • 984 Hoffellsvegur frá HoffellsáHoffelli 1. (Liggur að 983).
  • Einbreið brú Hornafjarðarfljót: 254 m - einbreið (1961).
  • 986 Rauðabergsvegur frá ViðborðsseliHlíðarbergi.
  • Einbreið brú Holtakíll: 50 m - einbreið (1970).
  • Slóði að Fláajökli (illfær). Athyglisverður staður
  • Gamla brúin yfir Heinabergsvötn. Athyglisverður staður Brú Einbreið brú: 38 m - einbreið (1948).
  • Einbreið brú Kolgríma: 77 m - einbreið (1977).
  • Skálafell.
  • F985 Jökulvegur frá SmyrlabjörgumSmyrlabjargavirkjun og áfram inn að Skálafellsjökli.
  • Einbreið brú Steinavötn á Steinasandi: 102 m - einbreið (1964). (Brúin skemmdist í vatnavöxtum árið 2017. Verið er að reisa nýja brú).
  • Hali: Þórbergssetur. Athyglisverður staður
  • Breiðamerkursandur.
  • Jökulsárlón. Athyglisverður staður

Jökulsárlón - Skaftafell (54 km)

Vegurinn liggur um Breiðamerkursand og Öræfi.

Austur-Skaftafellssýsla
  • Einbreið brú Jökulsá á Breiðamerkursandi: 108 m - einbreið (1967).
  •  Jökulsá á Breiðamerkursandi: Brú og vegur nær Jökulsárlóni.
  • Breiðamerkursandur.
  • Brú Fjallsá í Öræfum: 128 m (1996).
  • Kvísker.
  • Fagurhólsmýri.
  • Slóði frá Fagurhólsmýri í áttina að Ingólfshöfða. Athyglisverður staður
  • Hof: Gamla kirkjan á Hofi. Athyglisverður staður
  • Einbreið brú Kotá: 48 m - einbreið (1965).
  •  Um Kotá. Brú í stað einbreiðrar brúar.
  • Sandfell: Öræfajökull: Gönguleið á Hvannadalshnjúk. Athyglisverður staður
  • Einbreið brú Virkisá: 37 m - einbreið (1958).
  •  Um Virkisá. Brú í stað einbreiðrar brúar.
  •  Virkisá - Morsá. Stytting um 5 km og fækkun um fjórar einbreiðar brýr.
  • Svínafell.
  • Einbreið brú Svínafellsá: 34 m - einbreið (1965).
  • Freysnes.
  • Einbreið brú Skaftafellsá: 51 m - einbreið (1954).
  • 998 Skaftafellsvegur frá Hringveginum að þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli. Athyglisverður staðurUpplýsingamiðstöð

Skaftafell - Sandgígjukvísl (26 km)

Vegurinn liggur um Skeiðarársand.

Austur-Skaftafellssýsla
Remove ads

Tenglar

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads