Formúla 1 2023

From Wikipedia, the free encyclopedia

Formúla 1 2023
Remove ads

2023 FIA Formúla 1 Heimsmeistarakeppnin var 74 tímabilið af Formúlu 1 heimsmeistarakeppninni. Það er samkvæmt Fédération Internationale de l'Automobile (FIA), stjórn alþjóðlegra akstursíþrótta, hæsti flokkur í keppni bíla án yfirbyggingar yfir hjóla. Heimsmeistarakeppnin spannaði 22 kappakstra víðsvegar um heiminn. Tímabilið byrjaði í mars og lauk í nóvember.

Thumb
Max Verstappen vann sinn þriðja heimsmeistaratitil í röð, keyrandi Red Bull Racing-Honda RBPT.
Thumb
Sergio Pérez endaði í öðru sæti og er það í fyrsti skiptið sem Red Bull endar með ökumenn sína í efstu tveimur sætum í ökumannskeppninni
Thumb
Lewis Hamilton kláraði þriðji, keyrandi fyrir Mercedes.
Thumb
Red Bull Racing vann sinn sjötta heimsmeistaratitil
Thumb
Mercedes enduðu í öðru sæti
Thumb
Ferrari enduðu í þriðja sæti.

Keppt var um tvo heimsmeistaratitla, annarsvega ökumanna og hinsvegar bílasmiða. Ríkjandi heimsmeistari Max Verstappen sigldi örugglega í sinn þriðja titil og vann 19 af 22 keppnum og var á verðlaunapalli 21 sinni. Lið hans Red Bull Racing vann sinn sjötta titil bílasmiða og sinn annan í röð, sem lið unnu þeir 21 keppni af 22. Ferrari var eina liðið fyrir utan Red Bull til að vinna keppni þegar Carlos Sainz Jr. sigraði Singapúr kappaksturinn.

Remove ads

Lið og ökumenn

Nánari upplýsingar Lið, Bílasmiðir ...

Ökumanns breytingar

Thumb
Thumb
Thumb
Oscar Piastri (vinstri), Nyck de Vries (miðju) og Logan Sargeant (hægri) kepptu í fyrsta sinn í Formúlu 1 með McLaren, AlphaTauri og Williams.

Sebastian Vettel hætti eftir 2022 tímabilið,[3] Fernando Alonso tók sæti hans hjá Aston Martin eftir að hafa verið hjá Alpine í tvö tímabil.[4] Pierre Gasly átti upprunnulega að keyra fyrir AlphaTauri en fór í staðin til Alpine í stað Alonso.[5] Þaulreyndur Nyck De Vries, sem hefur unnið Formúlu E og Formúlu 2, tók þá sæti Gasly hjá Alphatauri.[6][7] Daniel Ricciardo fór frá McLaren eftir 2022 tímabilið[8] og kom samlandi hans Oscar Piastri í lið McLaren.[9] Nicholas Latifi fór frá Williams eftir þrjú tímabil með þeim[10] og kom Logan Sargeant í hans stað.[11] Mick Schumacher fór frá Haas,[12] Nico Hülkenberg tók hans sæti hjá Haas en hann hafði seinast keppt í Formúlu 1 með Renault árið 2019.[13]

Nyck De Vries entist ekki lengi hjá AlphaTauri, honum var sagt upp eftir 10 keppnir[14] og kom Daniel Ricciardo í hans stað.[15] Í æfingum fyrir hollenska kappaksturinn slaðist Ricciardo illa á hendi, Liam Lawson keppti í hans stað í 5 keppnir.[16]

Remove ads

Umferðir

Nánari upplýsingar Umferð, Kappakstur ...
Remove ads

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads