Formúla 1 2021

From Wikipedia, the free encyclopedia

Formúla 1 2021
Remove ads

2021 FIA Formúla 1 Heimsmeistarakeppnin var 72 tímabilið af Formúlu 1 heimsmeistarakeppninni. Það er samkvæmt Fédération Internationale de l'Automobile (FIA), stjórn alþjóðlegra akstursíþrótta, hæsti flokkur í keppni bíla án yfirbyggingar yfir hjóla. Heimsmeistarakeppnin spannaði 22 kappakstra víðsvegar um heiminn. Tímabilið byrjaði í mars og lauk í nóvember. Tímabilinu lauk fyrr en árin fyrir til að vera ekki á sama tíma og HM karla í fótbolta. Ökumenn og lið kepptu um tvö titla, annarsvega heimsmeistaratitil ökumanna og hinsvegar heimsmeistaratitil bílasmiða.

Thumb
Max Verstappen vann sinn fyrsta heimsmeistaratitil keyrandi fyrir Red Bull Racing-Honda
Thumb
Lewis Hamilton, ríkjandi heimsmeistari, var átta stigum á eftir Verstappen og endaði í öðru sæti keyrandi fyrir Mercedes.
Thumb
Valtteri Bottas, liðsfélagi Hamilton, endaði í þriðja sæti á sínu seinasta tímabili með liðinu.
Thumb
Mercedes unnu sinn áttunda heimsmeistaratitil bílasmiða.
Thumb
Red Bull endaði í öðru sæti.
Thumb
Ferrari endaði í þriðja sæti

Max Verstappen hjá Red Bull Racing-Honda vann sinn fyrsta heimsmeistaratitil ökumanna. Hann vann 10 keppnir á tímabilinu og varð fyrsti hollenski ökumaðurinn til að taka titil ökumanna,[1] fyrsti á Honda knúnum bíl síðan Ayrton Senna árið 1991[2] og fyrsti Red Bull ökumaðurinn síðan Sebastian Vettel árið 2013. Þetta tímabil sá endurkomu Aston Martin í Formúlu 1 síðan 1960 eftir að auðkýfingurinn Lawrence Stroll fjárfesti í bílaframleiðandanum.

Tímabilið einkenndist af harðri baráttu milli Verstappen og Hamilton. Ökumennirnir skiptust á að taka forystuna þónokkrum sinnum og áttu stóra árekstra við hvorn annan í breska og ítalska kappakstrinum og smávægilega árekstra í Emilía-Rómanja og Sádi-Arabíska kappakstrinum. Ökumennirnir komu inn í lokaumferðina í Abú-Dabí með jafn mörg stig og endaði kappaksturinn á umdeildan hátt. Mótastjórn meðhöndlaði ekki seinan öryggisbíl samkvæmt ýtrustu reglum. Verstappen komst framúr Hamilton á seinasta hring eftir að öryggisbílinn yfirgaf brautina á seinasta hring tímabilsins og fór að Verstappen tók sinn fyrsta heimsmeistaratitil ökumanna. Mercedes mótmældu niðurstöðunni í fyrstu en ákvöðu að áfrýja ekki eftir að mótmælum þeirra var hafnað.[3]

Þetta var fyrsta tímabilið síðan 2008 þar sem heimsmeistari ökumanna keyrði ekki fyrir liðið sem vann heimsmeistaratitil bílasmiða. Tímabilið var jafnframt seinasta tímabil heimsmeistarans árið 2007 Kimi Räikkönen.[4]

Remove ads

Lið og ökumenn

Nánari upplýsingar Lið, Bílasmiðir ...

Liðsbreytingar

McLaren sleit samstarfi sínu við Renault og fór aftur í vélar frá Mercedes og hóf þannig aftur McLaren-Mercedes samstarfið sem var áður frá 1995 til 2014.[7] Racing Point varð að Aston Martin. Nafnabreyting kom frá því að einn af eigendum liðsins, Lawrence Stroll, keypti Aston Martin bílaframleiðandann og snéri hann því aftur í Formúlu 1 í fyrsta skiptið síðan 1960. Renault liðið varð að Alpine, nafnið kemur frá sportbíla merki Renault bílaframleiðandans.[8]

Ökumannsbreytingar

Thumb
Mick Schumacher átti frumraun sína í Formúlu 1 með Haas.

Fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel fór frá Ferrari í lok 2020 tímabilsins eftir 6 tímabil með liðinu.[9] Carlos Sainz Jr. tók sæti Vettel hjá Ferrari eftir tvö tímabil hjá McLaren.[10] Daniel Ricciardo fór frá Renault til McLaren.[11] Fernando Alonso kom aftur inn í Formúlu 1 með Alpine eftir að hafa seinasta keppt með McLaren árið 2018.[12]

Vettel fór til Aston Martin, þar sem hann tók við af Sergio Pérez.[13] Pérez var upprunnulega með samning við Racing Point út 2022 en fór til Red Bull Racing þar sem hann kom í stað Alexander Albon sem varð prufu og varaökumaður liðsins árið 2021.[14]

Romain Grosjean og Kevin Magnussen, sem höfðu keyrt fyrir Haas frá 2016 og 2017, sögðu skilið við liðið eftir 2020 tímabilið.[15] 2020 Formúlu 2 meistarinn Mick Schumacher, sonur sjöfalda heimsmeistarans Michael Schumacher, tók annað sæti Haas[16] en Nikita Mazepin tók hitt sætið eftir að enda í 5 sæti í Formúlu 2 2020.[17]

Yuki Tsunoda, sem hafnaði í þriðja sæti í Formúlu 2 2020, fór uppí Formúlu 1 með Scuderia AlphaTauri, hann kom í stað Daniil Kvyat, hann varð varaökumaður Alpine árið 2021.[18]

Mið-tímabils breytingar

Kimi Räikkönen greindist með kórónuvírus fyrir hollenska kappaksturinn. Robert Kubica, varaökumaður Alfa Romeo Racing, keppti í hans stað en hann keppti seinast árið 2019 fyrir Williams.[19] Kubica kom aftur í stað Räikkönen í Ítalska kappakstrinum helgina eftir.[20]

Nikita Mazepin greindist með kórónuvírs fyrir Abú Dabí kappaksturinn, engin keppti í staðin fyrir hann þar sem Haas skorti varaökumann þá helgina.[21]

Remove ads

Umferðir

Nánari upplýsingar Umferð, Kappakstur ...
Remove ads

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads